Fréttablaðið - 06.03.2012, Síða 28
6. mars 2012 ÞRIÐJUDAGUR20
BAKÞANKAR
Svavar
Hávarðsson
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. kveina, 6. kusk, 8. mælieining, 9.
gerast, 11. tveir eins, 12. sjúga, 14.
sáldur, 16. berist til, 17. uppistaða, 18.
drulla, 20. sjó, 21. malargryfja.
LÓÐRÉTT
1. fyrst fædd, 3. tveir eins, 4. planta,
5. mjög, 7. galli, 10. skammstöfun,
13. skrá, 15. hvæs, 16. hryggur, 19.
óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. emja, 6. ló, 8. mól, 9. ske,
11. ll, 12. totta, 14. svarf, 16. bt, 17.
lón, 18. aur, 20. sæ, 21. krús.
LÓÐRÉTT: 1. elst, 3. mm, 4. jólarós,
5. all, 7. ókostur, 10. etv, 13. tal, 15.
fnæs, 16. bak, 19. rú.
Þvílíkt sigurmark, Maggi!
Sending aftur fyrir, beint
í framtennurnar, slána og
að lokum í hnakkann og
inn! Klassískt!
Já, við
höfum
verið að
æfa síðustu
daga!
Hmm …
hvar hef ég
séð svona
markvörslu
áður?
Ég held að þetta sé
hérna rétt hjá.
Já!
þarna!
Þarna er
bústað-
urinn!
Hvar? Ég sé
bara þennan
sæta garð-
skála.
Pant fá
rúmið.
Hann er
reyndar stærri
að innan en
utan.
Ég ætla að
vera fiðluleikari
þegar ég verð
stór!
Það er
frábært, Solla!
Þá eru fram undan þrotlausar æfingar
í mörg, mörg ár og gríðarlega mikil og
erfið vinna. Þú getur það!
Ég skipti um
skoðun. Ég ætla
að gera það sem
þú gerir. Hvað
sem það er.
LAMAÐUR
AF ÁST
Á LINDU
ÁSTIR
LAMADÝRA
Þegar ég flosnaði upp úr námi á sínum tíma hafði ég ekki klárað helming-
inn af þeim einingum sem mér bar að
skila til stúdentsprófs á félagsfræði-
braut Menntaskólans á Egilsstöðum.
Hafði ég þó „stundað námið“ í fjögur ár
í það heila. Eftir nokkur ár á togara sett-
ist ég svo aftur veturlangt á skólabekk á
Selfossi og kláraði það sem ég átti eftir,
enda hafði ég þá nýlega fengið þá
flugu í höfuðið að Háskóli Íslands
væri eitthvað fyrir mig. Ég hafði
því skýrt markmið og ég lagði
mig fram. Þann vetur komst
ég að því að það kemur sér vel í
prófum að mæta í tíma og frum-
lesa ekki námsefnið nóttina áður.
Þýska er gott dæmi, í þessu
samhengi. Stærðfræði er
annað.
ÞEGAR í háskólann var
komið tóku sig upp gaml-
ir siðir. Það skal bara
viðurkennt að brenni-
vín og kvennafar höfðu
meira aðdráttarafl heldur
en Aðferðir I. Öldurhús-
in höfðu þennan fyrsta
vetur vinninginn yfir
skólastofunni og eftir-
tekjan í samræmi við
það. Þegar frá leið
endurtók sagan sig hins vegar og árang-
urinn batnaði í samræmi við ástundun.
NÚ BERAST fréttir af því að nýnemar
við Háskóla Íslands taki nám sitt ekki
alvarlega. Af þessu hafa kennarar háskól-
ans áhyggjur og spyrja sig hvað veldur.
Menn vísa til þess að áhugi nýnema hafi
sjaldan eða aldrei verið eins lítill og nú,
og reyndar má skilja það af tali háskóla-
manna að ný samskiptatækni leiki stórt
hlutverk í því að afvegaleiða ungt fólk.
ÉG HELD ekki. Ég held reyndar að ekk-
ert hafi breyst. Á öllum tímum er það ein-
faldlega þannig að ungt fólk hefur meiri
áhuga á rassinum á samnemendum sínum
en því sem er verið að reyna að miðla í
skólastofu. Og að skemmta sér í hópi jafn-
aldra sinna. Það var þannig þegar kenn-
arar háskólans hófu nám, það var þannig
þegar ég hóf nám og það verður þannig
næsta haust, og svo öll árin eftir það.
ÞAÐ sem háskólamenn eiga að einbeita
sér að er ekki áhugi eða áhugaleysi ungu
kynslóðarinnar. Hún sér um sig sjálf.
Hins vegar á það að vera verkefni háskóla-
manna að bjóða unga fólkinu fjölbreytta
og góða kosti til náms. Góðan háskóla sem
stenst alþjóðlegan samanburð. Unga fólkið
sem mun nýta þau tækifæri á hverjum
tíma mun sanna sig. Sannið bara til.
Ekkert hefur breyst