Fréttablaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 6. mars 2012 25 Hljómsveitin Blur ætlar að frumflytja nýtt lag á lokaathöfn Ólympíuleikanna í London í sumar. Þetta upplýsti bassaleik- arinn Alex James í sjónvarps- þættinum Top Gear. „Við ætlum að afhjúpa nýtt lag. Ég hlustaði á það í morgun,“ sagði James og bætti við að lagið hljómaði eins og tilfinningaríkur sálmur. Blur frumflutti annað nýtt lag á dögunum, Under the Westway, sem var það fyrsta síðan Fool´s Day kom út fyrir tveimur árum. Sveitin spilar í Hyde Park 12. ágúst á lokahátíð Ólympíuleik- anna ásamt New Order og The Specials. Frumflytur nýtt lag NÝTT LAG Hljómsveitin Blur ætlar að frumflytja nýtt lag í sumar. Tölvuhakkarar hafa stolið yfir fimmtíu þúsund lögum frá útgáfufyrirtækinu Sony, þar á meðal óútgefnum og ókláruð- um lögum sem Michael Jackson tók upp með will.i.am. „Allt sem Sony keypti af dánarbúi Michaels Jackson var tekið,“ sagði heim- ildarmaður The Sunday Times. „Þeir skoðuðu tölvukerfið sitt og eru búnir að stöðva lekann.“ Sony keypti réttinn til að selja öll lög Jacksons árið 2010, ári eftir að hann lést. Fyrirtæk- ið tryggði sér einnig réttinn til að gefa út allt að tíu plötur með popparanum. Óútgefnum lögum stolið LÖGUM STOLIÐ Óútgefnum lögum með Michael Jackson var stolið frá Sony. Leikkonan Cate Blanchett er á móti lýta- lækningum og mundi ekki gangast undir slíkt sjálf, þetta segir hún í nýju viðtali. „Undanfarinn áratug hefur fólk verið að gera ýmislegt við andlit sitt og líkama. Núna, tíu árum síðar, sjáum við að þessar breytingar eru ekki alltaf til hins betra. Ég ætla ekki að skipta mér af því sem fólk kýs að gera við sig, en ég veit að ég mundi ekki gera þetta sjálf. Ég fyll- ist meðaumkun þegar ég sé fólk sem hefur farið hamförum í slíkum breyt- ingum,“ sagði leikkonan. EKKI UNDIR HNÍFINN Leikkonan Cate Blanchett er á móti lýtalækningum. NORDICPHOTOS/GETTY Fyllist meðaumkun Óskar Þór Axelsson, leikstjóri myndarinnar Svartur á leik, ferðast til Hong Kong í lok mars þar sem myndin verður sýnd á alþjóðlegri kvikmyndahátíð þar í borg. „Mér skilst að þetta sé ein af þremur aðalhátíðunum í Asíu. Ég er mjög ánægður með þetta því Asía er stór og spennandi markaður. Þessi mynd gæti virkað á Asíu- markaði,“ segir Óskar Þór. Búið er að selja sýningarréttinn á Svartur á leik til allra Norðurlandanna, Bretlands, Hollands, Belgíu, Lúxemborgar og Eistlands. Fleiri lönd eiga eftir að bætast í hópinn. Rúmlega 8.200 manns borguðu sig inn á mynd- ina um síðustu helgi sem er þriðji besti árang- ur íslenskrar frumsýningarmyndar frá upphafi. Aðeins Mýrin og Bjarnfreðarson hafa náð betri árangri. „Þetta er eiginlega framar vonum,“ segir leikstjórinn. „Mér finnst að myndir eigi að vera skemmtilegar fyrst og fremst. Við erum búin að kynna hana sem undirheimamynd en það er ekki mikið talað um að hún er fyndin og sniðug. Það hefur kannski komið fólki á óvart.“ - fb Svartur á leik sýnd í Hong Kong Á LEIÐ TIL HONG KONG Óskar Þór Axelsson ásamt aðalleikkonunni Maríu Birtu. Hann er á leiðinni til Hong Kong í lok mars. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.