Fréttablaðið - 07.03.2012, Page 2
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR2
DÓMSMÁL Fresta varð til dagsins
í dag aðalmeðferð í máli þriggja
manna sem ákærðir eru fyrir
manndrápstilraun í Bryggju-
hverfinu í Reykjavík síðasta haust
þegar lykilvitni í málinu mætti
ekki fyrir dóm í gær. Málið er
flutt fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur.
Vitnið sem ekki mætti fyrir
dóminn var í bílnum sem menn-
irnir skutu í tvígang á úr hagla-
byssu. Vitnið er það eina sem á
eftir að yfirheyra fyrir dómi.
Við meðferð málsins á mánudag
flutti réttargæslumaður vitnisins
þau skilaboð að það hefði fallið
frá 1,2 milljóna miskabótakröfu
vegna málsins. Sá sem einnig var
í bílnum hefur ekki fallið frá sinni
kröfu.
Þegar vitnið, sem átti að mæta
fyrir dóminn klukkan níu í gær-
morgun, fannst ekki á heimili sínu
var gefin út á hendur því hand-
tökuskipun. Hafi lögregla uppi á
vitninu er ráðgert að aðalmeðferð
í málinu ljúki í dag.
Árásin sem ákært er fyrir er
liður í fíkniefnauppgjöri. Sakborn-
ingarnir þrír bera því við að hafa
ekki ætlað að meiða neinn með
byssunni, bara hræða. - óká
Krókhálsi 11 · Sími 590 2160 · askja.is/notadir-bilar
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR
Skoda Octavia 4x4
Árgerð 2006, ekinn 98.000 km.
Verð 2.190.000 kr
Tilboð 1.990.000 kr.
SAKBORNINGAR Tómas Pálsson Eyþórsson, Axel Már Smith og Kristján Halldór Jens-
son í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Aðalmeðferð stendur yfir í sakamáli vegna skotárásar í Bryggjuhverfi í haust:
Lykilvitni mætti ekki fyrir dóm
SKIPULAGSMÁL Fimm tillögur hafa
verið valdar af dómnefnd í hug-
myndasamkeppni um skipu-
lag á Ingólfstorgi til að fara úr
fyrra þrepi til frekari úrvinnslu í
seinna þrepi samkeppninnar.
„Í seinna þrepi munu þátttak-
endur vinna frekar úr hugmynd-
um sínum um hönnun hótels og
almenningsrýma innan reits-
ins ásamt því að útfæra nánar
tengingar við borgarumhverfið,“
segir á vef Reykjavíkurborgar.
Stefnt er að því í lok mars að álit
og umsögn dómnefndar um til-
lögurnar ásamt keppnislýsingu
verði send út til þeirra fimm sem
voru valdar af dómnefnd til þátt-
töku í seinna þrepið sem er fram-
kvæmdasamkeppni. - gar
Samkeppni á Ingólfstorgi:
Fimm áfram á
seinna þrepið
SVÍÞJÓÐ Tveir karlar og ein kona
fundust látin í Stokkhólmi og
nágrenni um helgina. Grunur leik-
ur á að öll hafi þau verið myrt.
Maður á sjötugsaldri fannst lát-
inn á heimili sínu suður af Stokk-
hólmi á föstudagskvöld. Eiginkona
hans er í haldi lögreglu vegna
málsins. Ekki er þó víst að nokkuð
saknæmt hafi átt sér stað.
Þá fannst 44 ára kona látin á
heimili sínu á laugardag. Sam-
býlismaður hennar hefur verið
handtekinn auk þess sem annar
hefur verið yfirheyrður.
Loks fannst karlmaður látinn
fyrir utan íbúðarhús aðfaranótt
sunnudags og hafa tveir verið
handteknir grunaðir um að hafa
ráðið honum bana. - þeb
Fundust látin um helgina:
Þrjú talin myrt
í Stokkhólmi
NOREGUR Afsögn Auduns Lysbakken,
ráðherra jafnréttismála í Noregi,
virðist ætla að draga dilk á eftir
sér. Hann heldur því fram að þau
brot, sem hann er sakaður um, hafi
almennt tíðkast í flestum ráðuneyt-
um norsku ríkisstjórnarinnar.
Lysbakken sagði af sér þegar upp
komst að hann hafi síðastliðið haust
veitt ungliðahreyfingu síns eigin
flokks styrk úr ríkissjóði. Brot-
ið fólst í því að önnur sambærileg
samtök höfðu ekki vitneskju um, að
slíkur styrkur stæði til boða.
Norski ríkisendurskoðandinn seg-
ist hvorki sérlega hissa né sérlega
hneykslaður á þessu, og staðfest-
ir að sams konar brot hafi tíðkast
árum saman. Lysbakken þótti fram
á síðustu daga nokkuð öruggur um
að taka við formennsku í Sósíalíska
vinstriflokknum af Kristínu Hal-
vorsen, á landsfundi flokksins um
næstu helgi.
Í viðtali við norska ríkisútvarpið
segist Halvorsen enn styðja
Lysbakken til forystu. - gb
Norskur ráðherra segir af sér:
Halvorsen styð-
ur hann áfram
DÓMSMÁL Björn Bjarnason, fyrr-
verandi dómsmálaráðherra, ætlar
að áfrýja dómi sem hann hlaut
fyrir meiðyrði í garð Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar athafnamanns í gær.
Héraðsdómur komst í gær að
þeirri niðurstöðu að tvenn ummæli
í bók Björns, Rosabaugur yfir
Íslandi, hefðu falið í sér meiðyrði.
Birni var ekki gerð refsing
vegna þessa, en hann var dæmdur
til að greiða Jóni Ásgeiri 200 þús-
und króna miskabætur, 200 þúsund
krónur til að kosta birtingu dóms-
ins í fjölmiðlum og til að greiða 500
þúsund króna málskostnað.
Björn segir á heimasíðu sinni að
málinu verði áfrýjað: „Það er óhjá-
kvæmilegt að fá niðurstöðu Hæsta-
réttar um það hvort héraðsdómur sé
réttur. Reynist svo hafa dómstólar
mótað nýja og þrönga málfrelsis-
reglu sem felst í því að menn eiga
ekki lengur leiðréttingu orða sinna
heldur geta setið uppi með mörg
hundruð þúsundir króna í kostn-
að vegna ritvillu.“ Dómurinn taldi
það Birni til tekna að hafa leiðrétt
ummælin á áberandi hátt, en sagði
slíkt ekki leiða til refsileysis.
Jón Ásgeir taldi þrenn ummæli í
bókinni stangast á við lög. Í bókinni
sagði Björn að Jón Ásgeir hafi verið
dæmdur fyrir fjárdrátt, en ekki
meiri háttar bókhaldsbrot eins og
rétt er. Einnig að Jón Ásgeir hafi
verið sakfelldur fyrir fleiri ákæru-
liði en hann var í raun sakfelldur
fyrir. Hvort tveggja taldi dómur-
inn meiðyrði og ákvað að ummælin
skyldu dæmd dauð og ómerk.
Dómurinn taldi það hins vegar
ekki meiðyrði að Björn hafi
ranglega sagt Jón Ásgeir
ákærðan í ákærulið sem
fjallaði um meint brot
annars ákærða.
- bj
Björn Bjarnason dæmdur til að greiða Jóni Ásgeiri Jóhannessyni miskabætur vegna dóms í meiðyrðamáli:
Björn áfrýjar dómnum til Hæstaréttar
BJÖRN
BJARNASON
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
Nanna, eru menn þá ekkert
hræddir við ykkur?
„Það er ekkert að óttast. Þótt við
séum skrímsli þá erum við með stór
hjörtu.“
Hljómsveitin Of Monsters and Men er
á leið í tónleikaferð um Bandaríkin og
Kanada. Þegar er uppselt á flesta tón-
leikana. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir er
söngkona hljómsveitarinnar.
SÝRLAND, AP Sýrlenski herinn
varpaði sprengjum á bæinn Hirak
í sunnanverðu Sýrlandi í gær og
átti í hörðum átökum við liðhlaupa
úr hernum. Stjórnarandstæðingar
fullyrða að sprengjum hafi jafnvel
verið varpað á moskur. Flóttafólk
frá Sýrlandi, sem kom til Líbanons
á mánudag, segist hafa óttast að
verða myrt á heimili sínu. Stjórn-
arherinn hafi elt fólk uppi af mik-
illi grimmd. Undanfarna daga hafa
þúsundir manna flúið yfir landa-
mærin til Líbanons. Átökin hafa
kostað meira en sjö þúsund manns
lífið frá því þau hófust. - gb
Hörð átök í Sýrlandi:
Flóttafólk lýsir
grimmd hersins
FLÓTTAFÓLK Í LÍBANON Segir stjórnar-
herinn hafa elt fólk uppi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ORKUMÁL Sala Orkuveitunnar í
erlendum dótturfélögum, Enex-Kína
og Envent Holding, sem var án aug-
lýsingar, er orðin að sjóðheitu póli-
tísku þrætuepli. Í gær var salan
gagnrýnd á fundi borgarstjórnar en
í kjölfarið fylgdu föst skot sem bár-
ust til fjölmiðla í gærkvöldi, bæði
frá stjórnendum OR og fulltrúum
minnihlutans í borgarstjórn.
Vegna umfjöllunar um söluna
sendi Haraldur Flosi Tryggvason,
stjórnarformaður OR, frá sér yfir-
lýsingu þar sem kemur fram að OR
hafi átt engra annarra kosta völ
en að selja hluti sína. Ástæðan var
samkomulag REI við Geysir Green
Energy (GGE) frá í marsmánuði
árið 2010. Þar skuldbundu félögin
sig gagnvart hvort öðru til að taka
þátt í söluferli félaganna þegar og ef
annar aðila krefðist þess. Sérstak-
lega er tekið fram að samkomulag-
ið var samþykkt af stjórn REI í for-
mannstíð Kjartans Magnússonar 23.
mars 2010 og undirritað af fram-
kvæmdastjóra félagsins, Hjörleifi
Kvaran, sama dag.
Af samkomulaginu leiddi, segir
Haraldur, að stjórn og stjórnend-
ur REI stóðu frammi fyrir því vali
í júní 2011 að gera annað tveggja;
selja hlut sinn í Enex-Kína og Envent
til Orku Energy (OE) sem GGE hafði
samþykkt ellegar kaupa hlut GGE.
„Sem sagt fá 300-400 milljónir í
kassann eða leggja út 1.800 milljón-
ir. Allar aðstæður í rekstri REI og
ekki síður OR voru með þeim hætti
að valið varð næsta einfalt.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði
í borgarstjórn í gær að málið væri
grafalvarlegt, en þar var það hart
gagnrýnt að OR seldi eignirnar án
auglýsingar. Hanna Birna sagðist
Hart deilt um sölu
erlendra eigna OR
Sala Orkuveitunnar á erlendum dótturfélögum án auglýsingar veldur titringi
í borgarpólitíkinni. Stjórnendur OR verja ákvörðunina og vísa til gamals sam-
komulags. Minnihluti borgarstjórnar blæs á rökin og vísar í nýjar reglur á móti.
undrast að meirihlutinn hafi ekki
tekið á málinu og krafði borgar-
stjóra um svör. Haraldur svaraði í
raun kallinu með því að blanda sér
í málið með tilkynningunni, en þar
er í raun sagt að salan hafi ekki lotið
reglum um sölu eigna vegna sam-
komulagsins milli REI og GGE.
Í tilkynningu sjálfstæðismanna
og Vinstri grænna til fjölmiðla
í gærkvöldi segir að þessi skýr-
ing standist enga skoðun þar sem
hvergi er minnst á slíkt í umræddu
samkomulagi auk þess sem í milli-
tíðinni höfðu verið samþykktar sér-
stakar verklagsreglur um fyrir-
komulag á sölu eigna í stjórn OR.
„Ef meirihluti stjórnar eða for-
svarsmenn fyrirtækisins töldu
það þjóna betur hagsmunum fyrir-
tækisins að fara aðra leið en að aug-
lýsa opinberlega, líkt og gera á,
hefði stjórnarformaðurinn átt að fá
til þess heimild í stjórn OR,“ segir í
tilkynningu minnihlutans.
svavar@frettabladid.is
STJÓRNARFORMAÐURINN Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR, segir
söluna hafa verið óumflýjanlega vegna gamals samkomulags. RÉTTABLAÐIÐ/GVA
Félagið Orka Energy Holding keypti erlend dótturfyrirtæki OR sem áður voru
inni í útrásararmi hennar, Reykjavík Energy Invest (REI). Um er að ræða félagið
Iceland America Energy, sem er í slitameðferð, 19,53% í Enex Kína og tæplega
fjórðungshlut í Envent Holding. OR fékk 365 milljónir króna fyrir eignarhluti sína,
samkvæmt aðgerðaáætlun fyrirtækisins og eigenda þess.
Orka Energy Holding er í eigu Orka Energy Pte. Ltd. Það félag er í eigu Hauks
Harðarsonar, sem er kjölfestufjárfestir í félaginu, og starfsmanna Orku Energy
Holding, eins og greint var frá í Fréttablaðinu 1. mars.
Orka Energy kaupir af Orkuveitunni
SPURNING DAGSINS