Fréttablaðið - 07.03.2012, Blaðsíða 18
Fróðleiksmolinn
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsins
| 2 7. mars 2012 | miðvikudagur
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
SAGA CLASS
Úrvalsþægindi, gott rými
og fyrsta flokks þjónusta.
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta
þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og
ánægðara starfsfólki.
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju
fyrirtæki.
Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla
daga ársins.
Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða
Icelandair.
Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
39
19
0
4
/2
01
1
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS
➜ Fasteignamarkaðurinn í feb. eftir landshlutum
➜ Efnahagur Seðlabankans – hagtölur SÍ
➜ Lífeyrissjóðir – hagtölur SÍ
FIMMTUDAGUR 8. MARS
➜ Talningar úr þjóðskrá
➜ Landsframleiðsla 2011 – Hagstofan
➜ Landsframleiðsla á 4. ársfjórðungi 2011 – Hagstofan
FÖSTUDAGUR 9. MARS
➜ Fjármál hins opinbera 2011 – Hagstofan
➜ Vísitala launa á 4. ársfjórðungi 2011 – Hagstofan
➜ Markaðsupplýsingar Lánamála ríkisins
➜ Útboð ríkisbréfa
➜ Evrópufundaröð Alþjóðam. stofnunar – smáríki
MÁNUDAGUR 12. MARS
➜ Greiðslumiðlun – hagtölur SÍ
➜ Ársreikningur HB Granda
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS
➜ Fjöldi þinglýstra leigusamninga
➜ Fæddir Íslendingar árið 2011 – Hagstofan
➜ Atvinnuleysi í febrúar 2012
➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir – hagtölur SÍ
➜ Smásöluvísitala RSV
➜ Útboð ríkisvíxla
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
VIÐSKIPTI
Þórður Snær Júlíusson
thordur@frettabladid.is
Stór fyrirtæki og lífeyrissjóðir
þurfa að fjölga konum í stjórnum
sínum um 211 á næsta eina og
hálfa árinu til að uppfylla lög um
lágmarkshlutfall kynja í stjórnum
fyrirtækja. Einungis vantar einn
karl í stjórnir fyrirtækja til að
uppfylla skilyrði laganna. Alls
falla 285 fyrirtæki og 32 lífeyris-
sjóðir undir löggjöfina. Um 55%
þeirra fyrirtækja þurfa að bæta
við konum eða körlum til að upp-
fylla ákvæði laganna sem ná yfir
öll félög sem eru með fleiri en 50
starfsmenn. Þetta kemur fram í
tölum frá Félagi kvenna í atvinnu-
rekstri (FKA).
Í mars 2010 var gerð breyting
á hlutafélagalögum sem fól í sér
að hlutfall hvors kyns í stjórnum
stærri fyrirtækja og lífeyris-
sjóða verði aldrei lægra en 40%.
Breytingin tekur gildi 1. septem-
ber 2013. Þar segir orðrétt að „í
stjórnum opinberra hlutafélaga
og hlutafélaga þar sem starfa
fleiri en 50 starfsmenn að jafn-
aði á ársgrundvelli skal hvort
kyn eiga fulltrúa í stjórn þegar
stjórn er skipuð þremur mönnum
og þegar stjórnarmenn eru fleiri
en þrír í slíkum félögum skal
tryggt að hlutfall hvors kyns sé
ekki lægra en 40%. Sama gild-
ir um kynjahlutföll meðal vara-
manna í slíkum félögum en hlut-
föllin í stjórn og varastjórn skulu
þó í heild vera sem jöfnust. Náist
ekki viðhlítandi niðurstaða má
samþykkja nauðsynlega breyt-
ingu með nýrri ákvörðun hlut-
hafafundar en ákvæði um þetta
efni skal taka upp í samþykktir
félags“.
Samkvæmt upplýsingum sem
Fréttablaðið fékk hjá FKA upp-
fylla 128 fyrirtæki sem lögin ná
til skilyrðin í dag, eða 45% þeirra.
Því þurfa 157 fyrirtæki að bæta
við konum eða körlum í stjórnir
sínar á næstu aðalfundum. Hjá
einu fyrirtæki þarf konunum að
fjölga um þrjár, hjá 34 þeirra þarf
þeim að fjölga um tvær og 121 fyr-
irtæki þarf að bæta við einni konu
í stjórn sína. Þá vantar 19 konur í
Vantar 211 konur í
stjórnir á Íslandi
Lög sem skylda öll fyrirtæki með fleiri en 50 starfsmenn til að tryggja að hlutfall
hvors kyns sé ekki lægra en 40% í stjórnum þeirra taka gildi í september 2013. Þeir
sem lögin ná til eiga langt í land með að uppfylla skilyrði þeirra.
stjórnir 32 lífeyrissjóða sem lögin
ná til.
Því er ljóst að það hallar mikið
á konur í þessu samhengi, enda
telst FKA til að það vanti 211
konur í stjórnir fyrirtækja og líf-
eyrissjóða til að skilyrðin séu upp-
fyllt. Landssamtök lífeyrissjóða
hafa opinberlega lýst yfir and-
stöðu við lögin og hafa kvartað
yfir því að þau hafi verið sett án
samráðs við lífeyrissjóðina.
Í Noregi hafa sambærileg lög
verið í gildi frá því í ársbyrjun
2006. Þau kveða á um að ef stjórn-
armenn eru fleiri en fimm þá
skuli hlutur hvors kyns ekki vera
minni en 40%. Sökum stærðar
stjórnanna sem lögin ná til snúa
þau fyrst og síðast að stórum fyr-
irtækjum sem eru skráð á mark-
að eða í eigu ríkisins að fullu eða
hluta. Norðmenn hafa verið með
lögin í endurskoðun með það að
leiðarljósi að þau nái einnig til
meðalstórra og minni fyrirtækja.
Þar fengu fyrirtæki tveggja
ára aðlögunartíma til að verða við
ákvæðum laganna. Þegar kynja-
kvótinn var innleiddur var hlut-
fall kvenna í stjórnum fyrirtækja
sem skráð voru í Kauphöllinni í
Ósló 9%. Árið 2009 var það komið
upp í 36%.
FJÓRÐUNGUR STJÓRNARMANNA KONUR
KONUR FKA stendur fyrir fundi um stjórnarhætti á fimmtudag. Á honum verður lista
með nöfnum 190 kvenna sem gefa kost á sér til stjórnarsetu dreift til fundargesta.
Listinn verður einnig sendur til fyrirtækja sem falla undir löggjöfina. Hulda Bjarnadóttir
er framkvæmdastjóri FKA. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í könnun sem KPMG gerði á meðal íslenskra stjórnarmanna um bakgrunn
og störf þeirra sumarið 2011 kom fram að einungis 25% þeirra stjórnar-
manna sem tóku þátt í könnuninni voru konur. Hún náði til 232 fyrittækja
og 32 lífeyrissjóða.
Í niðurstöðum könnunarinnar kom einnig fram að 98% kvenkyns
stjórnarmanna 50 ára og yngri voru háskólamenntaðir samanborið við 82%
karla á sama aldri. Um 74% kvennanna voru með framhaldsmenntun í
háskóla en ekki nema 54% karlanna.
2012 2013 2014 2015
7
6
5
4
3
2
1
Núna
HTTP://DATA.IS/Z2KRUB
12 mánaða verðbólga mældist 6,3% í febrúar 2012 og hefur farið hækkandi
undanfarna mánuði. Nýjustu spár Seðlabanka Íslands, Hagstofunnar og ASÍ
gera ráð fyrir lækkandi verðbólgu á næstu árum.
Hagstofan gerir ráð fyrir að verðbólga árið 2015 verði 2,5% frá því sem
nú er. ASÍ spáir jafnframt lækkun og gerir ráð fyrir að í lok 4. ársfjórðungs
árið 2014 verði verðbólgan komin undir 2%, eða 1,81%. Samkvæmt nýjustu
spá Seðlabankans í febrúar 2012 gerir bankinn ráð fyrir að verðbólgan verði
komin undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans eða 2,33% á fyrsta
ársfjórðungi árið 2015.
Verðbólguspá
Ecomomist Intelligence Units er dótturfélag The Ecomomist Group sem gefur
út tímaritið The Ecomomist. EIU heldur utan um og gefur út spár um hagtölur
landa flestra þjóða og fyrir Ísland einnig. Myndin sýnir árlega verðbólgu á
Íslandi og spá EIU næstu árin eða til 2016 sem er 4,5%.
Verðbólguspá Ecomomist Intelligence Units (EIU)
20
15
10
5
0
Núna
1995 2000 2005 2010 2015