Fréttablaðið - 07.03.2012, Blaðsíða 17
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 7. mars 2011 | 5. tölublað | 8. árgangur
➜ Julie Kozack segir Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn
geta dregið lærdóm af
veru sinni á Íslandi.
➜ Mikilvægt að ráðast
ekki í stefnubreytingar
á borð við almennar
afskriftir skulda.
➜ Hraði afnáms hafta
mun ráðast af því
hversu hratt greiðslu-
jöfnuður lagast.
Mikilvægt að Ísland
útfærði áætlunina
Græna
prentsmiðjan!
Brasilía hægir ferðina
Minni hagvöxtur var í Brasilíu á síðasta ári en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Samkvæmt tölum sem
gefnar voru út í gær nam vöxturinn 2,7% sem er ei-
lítið minna en spár höfðu gert ráð fyrir og umtals-
vert minni vöxtur en í fyrra þegar hann nam 7,5%.
Stjórnvöld í Brasilíu kenna efnahagsþrengingum
í Evrópu og Bandaríkjunum um minni vöxt bras-
ilíska hagkerfisins enda hafði það í för með sér
minni eftirspurn eftir helstu útflutningsvörum
landsins. Í ár er spáð 4,5% hagvexti, en Guido
Mantega fjármálaráðherra segir að uppbygging
á innviðum landsins muni vera einn helsti
drifkrafturinn að baki þeim vexti. - ÞJ
Pálmi Haraldsson setti 1,7
milljarða inn í Iceland Express
Félag í eigu Pálma Haraldssonar afskrifaði hlutafé í
Iceland Express upp á rúmlega tvo milljarða króna
í lok síðasta árs og breytti í kjölfarið kröfu upp
á rúmlega 1,7 milljarð króna í nýtt hlutafé. Þetta
kemur fram í tilkynningu sem barst til fyrirtækja-
skráar 31. janúar síðastliðinn. Iceland Express er í
eigu Eignarhaldsfélagsins Fengs.
Samkvæmt heimildum Markaðarins var tap Ice-
land Express vel á annan milljarð króna á árinu
2011 og hlutafjáraukningin er að mestu til að mæta
því tapi. - ÞSJ
Seðlabankinn tekur í taumana
Seðlabanki Íslands seldi í gær 12 milljónir evra,
jafngildi tæpra 2 milljarða króna, á millibanka-
markaði með gjaldeyri. Fyrir vikið hafði gengi
krónunnar styrkst um 0,98 prósent við lokun mark-
aða í gær. Í tilkynningu sem Seðlabankinn sendi
frá sér vegna þessa segir að óvenjumikið útstreymi
hafa verið á gjaldeyri að undanförnu. Bankinn telji
um tímabundið ástand að ræða sem hafi haft tölu-
verð áhrif á gengi krónunnar. Óæskilegt sé að
tímabundnar hreyfingar á gjaldeyrisstreymi hafi
mikil áhrif á gengið og því hafi bankinn beitt sér til
að draga úr gengissveiflum. Bankinn hefur undan-
farið keypt töluvert magn af gjaldeyri af fjármála-
fyrirtækjum. Gengi krónunnar hefur veikst um 5,7
prósent frá því í nóvember. - MÞL