Fréttablaðið - 07.03.2012, Blaðsíða 24
KYNNING − AUGLÝSINGDælubúnaður MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 20122
Nýlega urðu skipulagsbreytingar hjá ITT og var fyrirtækinu þá skipt upp í þrjár einingar. Um leið fengu vörur
sem tengjast vökvavinnslu, -rannsóknum
og –flutningi nýtt nafn, Xylem. Í hinu nýja
fyrirtæki safnast saman yfir eitt hundrað
ára reynsla í meðhöndlun vatns. Með þess-
ari breytingu eiga starfsmenn um allan
heim auðveldara með að vinna saman við
að finna tæknilegar lausnir sem uppfylla
þarfir viðskiptavinanna.
Sigurður Geirsson, framkvæmdastjóri
Danfoss, segir að fyrirtækið hafi selt dælur
í áratugi frá ITT og þótt fyrirtækið hafi
breytt nafninu verði engar breytingar á vör-
unum. „Xylem er 12.000 manna hópur sem
hefur það að sameiginlegu markmiði að
finna nýjar lausnir á vandamálum er varð-
ar vatnsþörf jarðarinnar. Kjarninn í vinnu
þessa hóps er að finna nýjar tæknilausnir
sem auðvelda jarðarbúum að flytja, geyma
og nýta vatn.“
Tók við af Héðni
Þó að fyrirtækið heiti Danfoss f lytur það
inn fleiri vöruheiti en þar á meðal eru dæl-
urnar. Danfoss-merkið er líklega best þekkt
fyrir hitastilla á ofna. Að sögn Sigurðar var
það fyrirtækið Héðinn sem flutti inn Dan-
foss vörur um árabil ásamt öðrum merkj-
um. Árið 1994 var Héðni skipt upp í þrjár
einingar, ein þeirra var Héðinn verslun
sem hélt áfram að f lytja inn Danfoss og
fleiri þekkt merki. „Árið 1999 keypti Dan-
foss fyrir tækið í Danmörku Héðin verslun.
Þá var skipt um nafn á fyrirtækinu en starf-
semin er óbreytt með sömu starfsmönnun-
um. Hér er því mikil reynsla og þekking.
Dælurnar hafa fylgt fyrirtækinu þótt þær
séu ekki framleiddar hjá Danfoss,“ útskýrir
Sigurður.
„Dælurnar eru notaðar í fiskiðnaði, fiski-
skipum, skolpdælustöðvum, hita- og vatns-
veitukerfum, matvælaiðnaði og á öðrum
sviðum þar sem dælur eru notaðar. Þær eru
auk þess af öllum stærðum og gerðum, allt
frá litlum dælum fyrir sumarhús eða hita-
kerfi húsa og upp í stórar dælustöðvar eins
og menn þekkja á strandlengjunni,“ segir
Haraldur Sigurðsson, sölustjóri í dæludeild-
inni. „Við erum með varahlutaþjónustu
fyrir viðskiptamenn okkar og ráðleggjum
við val á dælum. Tvö verkstæði, Raftíðni og
Rafeining, sjá um viðgerðarþjónustu fyrir
okkur. Þeir hafa þá þekkingu og reynslu
sem þarf til að gera við dælurnar.“
Á þekktum stöðum
Sem dæmi um lausnir þar sem Xylem-
dælurnar eru notaðar má nefna:
1) Xylem-dælur eru notaðar til að flytja vatn
upp á efstu hæðir hæstu byggingar í heimi,
svo sem Burj Khalifa í Dubai. Byggingin er
yfir 820 m á hæð og Xylem-dælurnar flytja
vatn í skrifstofur, íbúðir, veitingastaði og
jafnvel sundlaugar í byggingunni.
2) Á Indlandi eru Xylem-dælur notaðar í
risavöxnum áveitu- og vökvunarkerfum til
að breyta örfoka eyðimörkum í ræktunar-
lönd. Í einu stærsta vökvunarkerfi heims
flytja Xylem-dælur vatn yfir 25 km vega-
lengd til Kutch-héraðsins í Gujurat.
3) Í Ástralíu, þar sem geta komið áralöng
þurrkatímabil, er vatnsmeðhöndlunar-
búnaður frá Xylem notaður til dæmis á flug-
vellinum í Sydney til að nýta regnvatn til
notkunar utan neysluvatnskerfa til dæmis
loftkæliturna, bílaþvott og vökvunarkerfi.
Þetta sparar f lugvallaryfirvöldum 350
milljón lítra af ferskvatni á ári.
4) Í New York, þar sem verið er að endur-
byggja World Trade Center, eru dælur frá
Xylem notaðar í hundraðavís í nærri allan
flutning á skolpi í turnum 1, 2, 3 og 4. Xylem-
dælur sjá einnig fyrir vatnsflæðinu í hinu
fagra 9/11 minnismerki sem var vígt nýlega.
Góðar lausnir
Nafnið Xylem vísar til þess vefjar í plöntum
sem f lytur vatn. Xylem-fyrirtækin ein-
beita sér nú að því að finna lausnir á sviði
vatnsflutnings, vatnshreinsunar og próf-
unar. Xylem hefur á undanförnum áratug-
um aflað gríðarlegrar reynslu, og mun sú
reynsla, ásamt miklu vöruúrvali og sterkum
tengslum við viðskiptavini, gera Xylem enn
frekar kleift að reiða fram lausnir fyrir
viðskiptavinina.
Xylem fyrirtækin hafa í áraraðir verið
framarlega í þróun á dælubúnaði. Má þar
nefna brunn- og borholudælur sem stað-
settar eru undir yfirborði vökvans sem þær
dæla. Xylem er stærsti framleiðandi slíkra
dæla í heiminum. Árið 1999 var N-dæl-
an frá Flygt sett á markað. Með henni náð-
ist að minnsta kosti 25% sparnaður í orku-
notkun miðað við aðrar dælutegundir. Á
undanförnum árum hefur Xylem boðið
dælubrunna, tilbúna til niðursetningar með
dælum og öllu tilheyrandi, undir nafninu
TOP stöðvar. TOP stendur fyrir The Otimal
Pumping station.
Ný kynslóð af dælum
Árið 2009 kom fram ný kynslóð af N-dæl-
um sem kölluð var The Adaptive N-pump.
Hún er þeim einstöku eiginleikum gædd að
nánast ómögulegt er að hún stíflist vegna
aðskotahluta í vökvanum. Hún er því ein-
staklega hagkvæmur kostur varðandi orku-
notkun og viðhald við mjög erfið dæluskil-
yrði eins og til dæmis í skolpdælustöðvum.
Á síðasta ári kom einnig fram ný kynslóð af
lóðréttum þrepadælum sem eru mun hag-
kvæmari með tilliti til orkunotkunar og við-
halds í fjölmörgum kerfum þar sem þörf er
á þrýstiaukadælum. Þessa áherslu Xylem
á nýjar tæknilausnir má finna hvarvetna
innan samsteypunnar, og er stöðugt verið
að leita leiða til að bæta vörur og finna nýjar
sem mæta þörfum markaðarins.
Þekkt nöfn
Fjölmargir Íslendingar þekkja dælunöfn-
in, Lowara, Flygt og Vogel. Þessar vörur eru
hryggjarstykkið í dæluframleiðslu Xylem,
og munu að sjálfsögðu halda áfram að vera
þekktar fyrir gæði, áreiðanleika og getu.
Xylem er með framleiðslu í 15 löndum og
sölustarfsemi í 125 löndum. Þeir sem vilja
kynna sér dælurnar geta komið í Danfoss,
Skútuvogi 6 og fengið ráðleggingar. Einnig
má fá upplýsingar á heimasíðunni xylem-
inc.com.
Nýjar og fullkomnar tækni-
lausnir í Xylem-dælubúnaði
Fyrirtækið Danfoss hefur verið leiðandi hér á landi í framboði á dælum sem notaðar eru jafnt á landi sem til sjávar. Fyrirtækið hefur flutt inn og þjónustað
dælur frá ITT-iðnaðarrisanum.
Haraldur Sigurðsson, sölustjóri í dæludeildinni hjá Danfoss í Skútuvogi 6. FRETTABLADID/ANTON
Haraldur Sigurðsson í skolpdælustöð í Hafnarfirði þar sem Xylem- dælur hafa verið notaðar.Dælustöð við sjávarsíðuna þar sem er dæla frá Xylem.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is s. 512 5432.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.