Fréttablaðið - 07.03.2012, Blaðsíða 41
MIÐVIKUDAGUR 7. mars 2012 25
Madonna íhugar nú bónorð frá
kærasta sínum Brahim Zaibat
en þrjár vikur eru síðan hann
bað tónlistarkonunnar. Frá þessu
greinir slúðurmiðillinn Show-
bizSpy en heimildir greina frá
því að Zaibat, sem er 29 árum
yngri en Madonna, hafi skellt sér
á skeljarnar er þau voru í fríi á
Kabbalah-miðstöð. Madonna ku
vera yfir sig ástfangin af dansar-
anum en miðillinn greinir frá því
að söngkonan sé ekki viss hvort
hún vilji ganga í hjónaband í
þriðja sinn á ævinni. Þetta er því
erfið ákvörðun fyrir Madonnu
sem áður hefur lýst því yfir að
hún eigi erfitt með að vera ein og
að Zaibat geri hana hamingju-
sama.
Madonna
fékk bónorð
HUGSAR MÁLIÐ Madonna fékk bónorð
frá kærasta sínum, Brahim Zaibat, fyrir
þremur vikum og er enn að íhuga málið.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Mila Kunis kveðst
ekki stunda skemmtistaði heldur
kjósi frekar að eyða kvöldum
sínum heima í ró og næði. Kunis
er forsíðustúlka bandaríska
Harper’s Bazaar og viðurkennir
þetta í viðtali við blaðið.
„Ég fer sjaldan út á lífið. Ég
kýs heldur að fá mér lítinn drykk
yfir sjónvarpinu heima. Ég hef
líka gaman af því að elda, ég get
eldað hvað sem er úr afgöngum
og mig dreymir um að vera dóm-
ari í sjónvarpsþáttunum Top
Chef,“ segir leikkonan, sem bætir
við að eina ástæðan fyrir því að
hún stundi líkamsrækt sé sú að
þá geti hún borðað meira. „Ég
æfi bara því þá má ég borða og
drekka eins og ég vil. Ég og vín-
glasið mitt erum bestu vinir.“
Kunis fer
lítið út á lífið
RÓLEG Leikkonan Mila Kunis vill heldur
eyða helgunum sínum heima en á
skemmtistöðum. NORDICPHOTOS/GETTY
525 8000
www.bilaland.is
KLETTHÁLSI 11 og EIRHÖFÐA (Bílakjarninn)
VIÐ ERUM Á TVEIMUR STÖÐUM:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
10
0
4
OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Í BAKKALÁRNÁM TIL 23. MARS
Umsóknarfrestur um nám
á meistarastigi verður auglýstur síðar.
MYNDLIST
TÓNLIST
HÖNNUN &
ARKITEKTÚR
LEIKLIST & DANS
RAFRÆNAR UMSÓKNIR OG NÁNARI UPPLÝSINGAR UM
INNTÖKUFERLI FYRIR HVERJA DEILD ERU Á WWW.LHI.IS
Hönnunar- og
arkitektúrdeild
Arkitektúr
Fatahönnun
Grafísk hönnun
Vöruhönnun
Leiklistar- og dansdeild
Fræði og framkvæmd
Samtímadans
Myndlistardeild
Tónlistardeild
Hljóðfæraleikur/söngur
Kirkjutónlist
Mennt og miðlun
Tónsmíðar
Diplómanám í hljóðfæraleik