Fréttablaðið - 07.03.2012, Qupperneq 4
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR4
GENGIÐ 06.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
227,6375
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,73 126,33
198,3 199,26
165,2 166,12
22,219 22,349
22,173 22,303
18,594 18,702
1,5523 1,5613
193,57 194,73
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Ætlar þú að
breyta um lífsstíl?
Heilsulausnir henta einstaklingum
sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma
og/eða sykursýki. Hefst 12. mars
Kynningarfundur í kvöld
7. mars kl. 20:00
Allir velkomnir
Á BJÖRGUNARÆFINGU Öryggismál sjó-
manna hafa verið mikið í deiglunni að
undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÖRYGGISMÁL Landssambandi smá-
bátaeigenda (LS) hefur verið
greint frá þeirri skoðun innanrík-
isráðherra að skylt verði að hafa
björgunarbúninga um borð í smá-
bátum. Nú er aðeins skylt að hafa
vinnuflotgalla um borð í bátun-
um, en mikill munur er á þessum
björgunartækjum.
Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri LS, greindi frá þessu á
félagsfundi í Kletti – félagi smá-
bátaeigenda fyrir stuttu, eins og
kemur fram á heimasíðu LS.
Erni var greint frá skoðun
ráðherra á fundi í ráðuneytinu.
Örn fékk þær upplýsingar á
fundinum að fyrirhuguð breyt-
ing á reglum yrði unnin í nánu
samráði við LS og sérfræðinga
Siglingastofnunar. - shá
Ráðherra vill aukið öryggi:
Björgunarbún-
inga í alla báta
VIÐSKIPTI Neytendastofa hefur
sektað Eymundsson, Krónuna,
Nettó, Office 1 og Hagkaup um
hálfa milljón króna hvern rekstr-
araðila vegna tilboða á bókum.
Neytendastofa fór fram á að
fyrirtækin sönnuðu að tilboðs-
bækur sem seldar voru fyrir jól
hafi verið seldar á því verði sem
auglýst var sem fyrra verð.
Nettó, Office 1 og Krónan gátu
ekki sýnt fram á að bækurnar
hefðu verið seldar á fyrra verði.
Og þótt Hagkaup og Eymundsson
hafi getað það taldi Neytendastofa
tilboð þeirra ekki fela í sér raun-
verulega verðlækkun og að fyrir-
tækin hafi blekkt neytendur með
villandi upplýsingum um verð-
lækkunina. - óká
Fimm borga 500 þúsund:
Sektað vegna
jólabókatilboða
JÓLABÆKUR Neytendastofa segir fólk hafa
verið blekkt fyrir jól með villandi upp-
lýsingum um verð bóka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Skipað í stöðu prófessors
Guðmundur Hálfdanarson sagn-
fræðingur hefur verið skipaður í
prófessorsstöðu við Háskóla Íslands
sem tengd er nafni Jóns Sigurðssonar.
Alþingi samþykkti á hátíðarþingfundi
15. júní 2011 tillögu um að stofna
stöðuna, en í fyrra voru 200 ár frá
fæðingu Jóns Sigurðssonar. Guð-
mundur tekur við starfinu 1. apríl.
MENNTAMÁL
Ný lögreglustöð opnuð
Lögreglan á Suðurnesjum hefur
opnað nýja hverfislögreglustöð á
Ásbrú. Viðvera verður þar eftir hádegi.
Stöðin var opnuð formlega á laugar-
daginn og var íbúum í hverfinu boðið
að kynna sér starfsemi lögreglunnar.
LÖGREGLUMÁL
Meiri umferð en í fyrra
Umferð á höfuðborgarsvæðinu var
2,5 prósentum meiri nú en í fyrra
samkvæmt tölum Vegagerðarinnar.
Mest jókst umferðin um Hafnar-
fjarðarveg, en þar jókst hún um 4,3
prósent milli ára.
SAMGÖNGUMÁL
DÓMSMÁL Orkuvinnslufyrirtæki
gætu þurft að greiða háar fjárhæð-
ir í fasteignagjöld af vatnsréttind-
um í kjölfar nýs úrskurðar innan-
ríkisráðuneytisins.
Í desember 2009 ákvað Þjóðskrá
Íslands að meta ætti til fasteigna-
mats vat ns -
réttindi sem
aðskilin voru
frá jörðum við
Jökulsá á Dal og
framseld Lands-
virkjun vegna
gerðar Kára-
hnjúkavirkj-
unar. Lands-
virkjun kærði
þá ákvörðun til
innanríkisráðu-
neytisins. Fyrirtækið sagði meðal
annars að slíkir efnislegir ann-
markar væru á úrskurði Þjóðskrár
að ógilda ætti hann.
„Fráleit er sú túlkun sem Þjóð-
skrá virðist leggja til grundvallar
að miða beri við framsal eða sölu
réttindanna. Slík réttindi geti svo
áratugum skipti verið ónýtt og án
nokkurs arðs fyrir rétthafa eftir
að til sölu eða framsals vatnsrétt-
inda hefur komið,“ segir um rök
Landsvirkjunar í úrskurði inn-
anríkisráðuneytisins sem fellst
hvorki á þessa túlkun fyrirtækis-
ins né kröfur þess. „Er eðlilegt í
þessu sambandi að miða við það
tímamark er nýting réttindanna
hefst og þau geta þar með gefið af
sér tekjur,“ segir ráðuneytið.
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, segir ekki ein-
falt að meta hverju fasteignamatið
muni skila Fljótsdalshéraði í fast-
eignagjöldum.
„Við viljum að fulltrúar Þjóð-
skrár komi til fundar við okkur
svo menn geti glöggvað sig betur
á þessu,“ segir Björn og bendir
á að samkvæmt ákvörðun Þjóð-
skrár sjálfrar eigi fasteignamat-
ið að liggja fyrir innan tveggja
mánaða. Jafnvel þótt Landsvirkj-
un fari með málið fyrir dómstóla
fresti það ekki álagningunni.
Þá segir Björn úrskurð ráðu-
neytisins hljóta að taka til
annarra vatnsréttinda innan
sveitarfélagsins sem og annars
staðar á landinu. „Þetta er í raun
úrskurður um að það sé eðlilegt að
meta vatnsréttindi til fasteigna-
mats þegar viðkomandi eign hefur
verið nýtt. Í Lagarfossvirkjun og
Grímsárvirkjun eru líka vatnsrétt-
indi sem þá er eðlilegt að meta til
fasteignamats,“ segir bæjarstjór-
inn.
Óljóst er í hvaða gjaldflokk
vatnsréttindin verða sett. Björn
telur þau hljóta að verða annað
hvort í flokki með hlunnindum
þar sem álagningarhlutfallið er
0,5 prósent af fasteignamati eða
þá í flokki með atvinnuhúsnæði
þar sem hlutfallið er 1,65 prósent.
Ekki náðist í Hörð Arnarson,
forstjóra Landsvirkjunar í gær.
gar@frettabladid.is
Gjöld á vatnsréttindi
styggja Landsvirkjun
Innanríkisráðuneytið staðfestir að vatnsréttindi Jökulsár á Dal eigi að taka til
fasteignamats. Fljótsdalshérað vill að matinu sé hraðað svo hægt verði að leggja
fasteignagjöld á vatnsréttindin. Úrskurðurinn hefur fordæmisgildi um allt land.
GERÐ KÁRAHNJÚKAVIRKJUNAR Ágreiningur um verðmat vatnsréttinda við Jökulsá á
Dal er nú til úrlausnar hjá Hæstarétti. Fljótsdalshérað vill hins vegar leggja fasteigna-
gjöld á réttindin strax og miða þá við frummat frá árinu 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BJÖRN
INGIMARSSON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
11°
8°
3°
10°
9°
3°
3°
20°
11°
14°
14°
26°
1°
9°
17°
0°Á MORGUN
8-20 m/s
Hægast austan til.
FÖSTUDAGUR
Víða strekkingur, sums
staðar allhvasst með
ströndum.
3 1
-1
-10
1 -1
1
00
1
-1
1
2
0
-1
-1-1
-1
0
-6
11
18
12
20
13
11
11
11 12
11
11
10
VINDASAMT
verður á landinu í
dag og má búast
við hvassviðri með
suðurströndinni.
Á morgun dregur
úr vindi en áfram
verður éljagangur
sunnan- og vestan-
lands. Á föstudag
bætir svo aftur í
vind og lítur út fyrir
rigningu allra syðst
en éljum vestan til.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
ÍRAN Sex áhrifamikil ríki, sem
árum saman hafa átt í viðræð-
um við Írani um kjarnorkuáform
þeirra og alþjóðlegt kjarnorku-
eftirlit, féllust í gær á frekari við-
ræður í von um lausn á deilunni,
sem magnast hefur jafnt og þétt
undanfarnar vikur og mánuði.
Það var Catherine Ashton,
utanríkismálafulltrúi Evrópu-
sambandsins, sem svaraði beiðni
Írana um viðræðum fyrir hönd
Bretlands, Frakklands, Þýska-
lands, Bandaríkjanna, Rússlands
og Kína.
Síðustu viðræður við Írana, sem
haldnar voru í ársbyrjun 2011, skil-
uðu þó afar litlum árangri.
Beinar og óbeinar hótanir, eink-
um frá Ísrael og Bandaríkjunum,
um árásir á Íran hafa smám saman
orðið æ háværari.
Á fundi þeirra Baracks Obama
Bandaríkjaforseta og Benjamíns
Netanjahús, forsætisráðherra Ísra-
els, í Washington um helgina sagði
Netanajahú að nú væru síðustu for-
vöð að hefja árásir á Íran, áður en
þeim tækist að koma sér upp kjarn-
orkuvopnum.
Obama hefur viljað fara hægar í
sakirnar, en segir berum orðum að
hernaður gegn Íran sé ekki útilok-
aður og lofar því að standa við bakið
á Ísrael.
Sjálfir hafa Íranar jafnan neit-
að því að þeir séu að koma sér upp
kjarnorkuvopnum, heldur sé stefna
þeirra í kjarnorkumálum eingöngu
sú að tryggja landsmönnum raforku.
Óvíst er enn hvaða áhrif úrslit
þingkosninganna í Íran í lok síðustu
viku munu hafa á þessar deilur.
Mahmoud Ahmadinejad forseti,
sem enn á meira en ár eftir af sínu
kjörtímabili, verður í minnihluta
þegar nýkjörið þing kemur saman í
maí. - gb
Ísraelar segja síðustu forvöð að fara að hefja árásir á Íran og Bandaríkjamenn útiloka ekki aðgerðir:
Hafa fallist á nýjar viðræður við Írana
Á FUNDI Í WASHINGTON Hernaður
gegn Íran var til umræðu á fundi þeirra
Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra
Ísraels, og Baracks Obama Bandaríkja-
forseta. NORDICPHOTOS/AFP