Fréttablaðið - 07.03.2012, Page 16
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
„Sögufélag er útgáfufélag sem hefur
í 110 ár haft það markmið að gefa út
bækur og rit um sögu Íslands. Útgáfan
hefur gengið upp og niður í áranna rás
en við erum mjög stolt af því sem eftir
okkur liggur,“ segir Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Sögufélagsins sem í dag
fagnar 110 ára afmæli. Ekki er ætl-
unin að efna til hátíðarhalda í tilefni
afmælisins en félagið ætlar þó að nota
tækifærið og kynna nýjungar í starfi
félagsins.
„Í tilefni afmælisins hefur Sögu-
félagið afráðið að setja öll tölublöð
Sögu til ársins 2006 á vefinn timarit.
is. Það er rúm hálf öld síðan Saga hóf
göngu sína. Nú þegar tímaritið verður
aðgengilegt á netinu verður notagildi
greina sem í því er að finna meira því
hægt verður að leita í þeim eftir leit-
arorðum,“ segir Guðni. Þess má geta
að nýverið flutti Sögufélagið skrif-
stofu sína. Hún hefur um árabil verið
til húsa í Fischersundi í miðbæ Reykja-
víkur en nýverið var ákveðið að leigja
út húsnæði félagsins og hefur það flutt
aðstöðu sína í Skeifuna og verður með
sameiginlega afgreiðslu með Hinu
íslenska bókmenntafélagi. „Þegar
félagið var stofnað var mikið og náið
samráð við félagið þannig að það fer
vel á þessari samvinnu.“
Eins og áður sagði er rauði þráður-
inn í starfsemi Sögufélagsins útgáfa
bóka og Sögu. Nýjasta bók félagsins
er bók Páls Björnssonar, Jón forseti
allur?, sem kom út fyrir jólin. „Hún
hreppti Hin íslensku bókmenntaverð-
laun í flokki fræðibóka, sem er mik-
ill heiður fyrir Pál og vonandi fyrir
félagið. Við reynum ætíð að vanda til
verka en bækurnar sem við gefum út
vekja mismikla athygli. Þær fræði-
legri ná kannski síður til almennings
en eru engu að síður afar mikilvægar,“
segir Guðni. Viðfangsefni rannsókna
sagnfræðinga eru margvísleg og segir
Guðni þau hafa orðið mun fjölbreyti-
legri á síðustu árum en áður tíðkaðist.
„Þegar félagið var stofnað voru
sagan og sjálfstæðisbaráttan samof-
in, tilgangur sögunnar var að efla ætt-
jarðarást með þjóðinni. Nú er horft
víðar yfir sviðið og menn farnir að
beina sjónum að fleiri hópum en áður
tíðkaðist. Efahyggjan er líka meiri,
sagnfræðingar efast meira um mögu-
leikann á því að hægt sé að segja í eitt
skipti fyrir öll frá því sem raunveru-
lega gerðist, menn gera sér grein fyrir
að sjónarhorn sagnfræðingsins skiptir
máli.“
Fjölbreytilegar greinar í tímaritinu
Sögu bera grósku í sagnfræði vitni en
félagar í Sögufélaginu fá ritið auk þess
að fá afslátt af bókum félagsins. „Allt
áhugafólk um liðna tíð er velkomið í
Sögufélag og þar að auki má kannski
segja að það sé siðferðisleg skylda
menntaðra sagnfræðinga að vera í
félaginu,“ segir Guðni að lokum.
sigridur@frettabladid.is
SÖGUFÉLAGIÐ: NÝ HEIMASÍÐA Í TILEFNI 110 ÁRA AFMÆLIS
VIÐ ERUM MJÖG STOLT AF
ÞVÍ SEM EFTIR OKKUR LIGGUR
GUÐNI TH. JÓHANNESSON Forseti Sögufélags segir fagnaðarefni að eldri árgangar Sögu, tímarits félagsins, séu orðnir aðgengilegir á vefnum
timarit.is. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
RACHEL WEISZ leikkona á afmæli í dag.
„Ég tel ekki að sálufélagi manns þurfi að hafa
sömu stjórnmálaskoðanir og maður sjálfur.“
Lagið „We Are the World“ var gefið
út þennan dag árið 1985 eða fyrir
27 árum. Ágóði af laginu rann til
fórnarlamba hungursneyðar í Afríku
en það var söngvarinn Harry Belafonte
sem var lykilmaður í að bandarískir
tónlistarmenn tækju sig saman og
gæfu vinnu sína fyrir gott málefni, líkt
og breskir kollegar þeirra höfðu gert
nokkrum mánuðum fyrr með laginu
Do They Know It‘s Christmas. Höfund-
ar lagsins voru þeir Michael Jackson
og Lionel Richie, upptökum stjórnuðu
Quincy Jones og Michael Omartian
og helstu poppstjörnur Bandaríkjanna
fluttu lagið á þeim tíma.
Smáskífan með laginu seldist í 20
milljónum eintaka en innan við þrjátíu
smáskífur hafa selst í svo stóru upp-
lagi.
ÞETTA GERÐIST: 7. MARS 1985
„We Are the World“ gefið út
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, mágur og barnabarn,
Guðbjörn Karlsson
læknir,
lést miðvikudaginn 29. febrúar í Colorado,
Bandaríkjunum. Hann verður jarðsettur í
Bandaríkjunum laugardaginn 10. mars.
Minningarathöfn fer fram síðar á Íslandi.
Julia Woods Karlsson
Nika Karlsson
Anya Karlsson
Karl Ásmundsson Bergþóra Guðbjörnsdóttir
Karl Rúnar Karlsson Caitlin Dulac
Jóhann Ásmundsson
Guðbjörn Guðjónsson
Ásmundur Bjarnason
Elsku faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Eiríkur Egill Jónsson
stýrimaður,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 26. febrúar, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 9. mars
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Slysavarnaskóla sjómanna.
Guðlaug S. Eiríksdóttir Elo Gartmann
Jón Ágúst Eiríksson Elísabet Magnúsdóttir
Sigurbjörn Eiríksson Elva Kristjánsdóttir
Helga Eiríksdóttir Einar Bjarnason
afabörn og langafabörn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
70 ára afmæli
Lára M. Gísladóttir
Í dag, miðvikudaginn 7. mars, verður
Lára M. Gísladóttir, varaformaður
Thorvaldsensfélagsins, sjötug.
Af því tilefni verður fjölskyldan með
opið hús í Víkingsheimilinu, Traðar-
landi 1, Reykjavík, í dag frá kl. 18.00
til 20.00.
Fjölskyldan væntir þess að fá að sjá
sem flesta af vinum Láru og
fjölskyldunnar.
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
Kristins Gíslasonar
kennara,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn
22. febrúar, fer fram frá Áskirkju mánudaginn
12. mars kl. 13.00.
Jakob Líndal Kristinsson Kristín Gísladóttir
Halldóra Kristinsdóttir Þorkell Traustason
Gísli Kristinsson Bjarney Sigvaldadóttir
Jónína Vala Kristinsdóttir Gylfi Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Robert (Rab) Christie
Grettisgötu 43 A,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 28. febrúar sl.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 8. mars kl. 15.00. Þeim sem vilja
minnast hins látna er bent á MS-félagið.
Fyrir hönd aðstandenda,
Grainne Morris og Anne Hutchinson
Móðir okkar,
Guðrún Ólafsdóttir
frá Efra-Lóni,
Skálagerði 7, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 2. mars.
Sigríður Sigurðardóttir
Þóra G. Sigurðardóttir
Jónína Stefanía Sigurðardóttir
Ólöf Unnur Sigurðardóttir
Anna Björk Sigurðardóttir