Fréttablaðið - 07.03.2012, Page 22
„Námskeiðið var á vegum Fræðslumiðstöðvar
Vestfjarða og Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar og
hluti af alþýðlegri námskeiðaröð þar sem tónlist er
kynnt frá ýmsum hliðum,“ upplýsir Helga en með
þeim Jóni Þorsteini var Ásgeir S. Sigurðsson harm-
óníkusafnari á Ísafirði. Hann tók með sér sýnis-
horn úr safni sínu, bandóneon og aldagamla díatón-
íska harmóníku. „Svo tók hann eina harmóníku í
sundur til að leyfa fólki að sjá hvernig hún lítur út
að innan,” lýsir Helga glaðlega
Helga segir fólk almennt vanmeta möguleika
harmóníkunnar. „Við byrjuðum námskeiðið á því að
spila týpískt harmóníkulag við söng Sveins Enoks
Jóhanssonar en það lýsti vel þeirri ímynd sem flest-
ir hafa af harmóníkunni,“ segir Helga en í fram-
haldinu töluðu þau um harmóníkuna, sögu hennar
og uppruna, hvernig hún er samsett og hvernig hún
virkar. Einnig fjölluðu þau um hlutverk harmón-
íkunnar fyrr og nú og hvernig tónlist var leikin á
hana á mismunandi tímum. „Inn á milli spiluðum
við svo tóndæmi en á harmóníku er hægt að leika
alls konar tónlist, allt frá gömlu dönsunum og klass-
ískri tónlist til þjóðlaga- og balkantónlistar,“ segir
Helga og játar að jafnvel popptónlist megi spila á
harmóníku þó þau hafi ekki haft um það tóndæmi á
námskeiðinu.
Helga Kristbjörg er fædd og uppalin á Ísafirði og
því var henni ljúft og skylt að kynna harmóníkuna
fyrir bæjarbúum. Hún segir áhuga þeirra Jóns
Þorsteins hafa vaknað þarna á því að kynna harm-
óníkuna enn frekar fyrir fólki og tekur fram að þau
séu mjög opin fyrir því að halda fleiri slík námskeið
ef áhugi er á. solveig@frettabladid.is
Helga og Jón Þorsteinn vilja gjarnan kynna heillandi heim
harmóníkunnar fyrir landanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Framhald af forsíðu
www.baendaferdir.is s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Á bökkum Dónár
12. - 21. júní
Travel Agency
Rým ingar sala
Allra síðasti dagur.
Allar vörur á 1000 kr.
Lokum kl. 18:00
Alla virka daga kl. 18.00
Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ
„Við ákváðum að ganga í þenn-
an fjallgönguhóp hjá Ferðafélagi
Íslands þótt við hefðum litla
reynslu á þessu sviði. Fjallaferð-
irnar eru nokkurn veginn um
hverja helgi og er gengið á eitt
fjall í nágrenni höfuðborgarinnar
í hvert sinn. Veðrið hefur engin
áhrif á þennan hóp,“ segir Þórir.
Hann telur þó betra að eiga rétta
búnaðinn því oft er mjög kalt í
veðri. „Við fórum á Kerhólakamb
fyrir rúmum tveimur vikum í
kulda og stórhríð, efst uppi. Ætli
það hafi ekki verið erfiðasta
ferðin til þessa,“ segir Þórir.
Um síðustu helgi var farið á
Stóra-Meitil en næst er það Geita-
fell. „Við byrjuðum á lágum fjöll-
um en svo hafa þau farið hækk-
andi. Maður þarf að taka þetta
alvarlega og gott er að stunda lík-
amsrækt á milli ferða. Við vorum
ekki í góðu formi í upphafi en
höfum tekið okkar tak og stundum
nú bæði líkamsrækt. Að taka þátt
í þessu verkefni er liður í því að
hvetja sjálfan sig. Vinafólk okkar
hnippti í okkur með þetta og svo
eru nokkrir í þessum hópi sem
við þekktum svo þetta er góður
félagsskapur. Um 140 manns
skráðu sig til þátttöku í upphafi,“
segir Þórir.
Betri líðan
„Mér fannst vera kominn tími
til að hreyfa mig,“ segir Þórir og
bætir því við að hann finni mik-
inn mun á sér frá áramótum. „Ég
er líkamlega hraustari og er að
ná upp þreki auk þess að vera
úthaldsmeiri. Ég hef spilað fót-
bolta einu sinni í viku í nokkur ár
og finn að þessi aukna hreyfing
hjálpar mér í boltanum. Maður er
fyrst og fremst að styrkja sig lík-
amlega og það hefur síðan áhrif á
sálartetrið og líðan á alla kanta.
Þetta er líka rosalega skemmti-
legt. Páll Ásgeir Ásgeirsson fer
fyrir hópi fararstjóra í þessum
ferðum og hefur haldið úti fés-
bókarsíðu þar sem menn skiptast
á upplýsingum og myndum. Í maí
verður síðan farið upp á Hvanna-
dalshnúk sem verður töluverð
hækkun,“ segir Þórir.
Andlega krefjandi starf
Þórir er í andlega krefjandi starfi
hjá Rauða krossinum og þar hafa
menn áhyggjur af hungursneyð-
inni í Afríku. „Við erum með
aðstoð í Sómalíu þar sem er hrika-
legt ástand. Síðan er í uppsiglingu
hungursneyð í vestanverðri Afr-
íku, sunnan við Sahara-eyðimörk-
ina. Þar hafa orðið uppskerubrest-
ir og vopnuð átök eiga sér stað.
Þess utan höfum við sent föt til
Hvíta-Rússlands þar sem gífurleg
frost hafa verið. Við höfum þegar
sent tvo fjörutíu feta gáma með
fatnaði. Einnig höfum við verið að
þjálfa fólk fyrir náttúruhamfarir
hér á landi. Það þarf til dæmis
að skipuleggja hjálparaðstoð við
Ísland utanlands frá ef til mik-
illa hamfara kæmi. Við þurfum
sem sagt að búast við því versta
en vonast svo til þess að ekkert
gerist,“ segir Þórir Guðmundsson.
elin@frettabladid.is
Upp á fjöll um hverja helgi
Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri hjálparstarfssviðs Rauða krossins, og eiginkona hans, Steinunn Arn-
þrúður Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Biskupsstofu, ákváðu um áramótin að ganga á 52 fjöll á árinu.
Þórir og eiginkona hans, Adda Steina, á Stóra-Meitli ásamt fleirum úr fjallgönguhópnum.
Framleiðsla á Chevrolet Volt verður stöðvuð í fimm vikur. Ástæðan er
sú að óseldir nýir Volt-bílar hafa hrannast upp. Þó jókst salan um 60
prósent í febrúar en hún hafði áður nánast stöðvast vegna atviks sem
kom upp í kjölfar árekstrarprófunar bílsins þar sem kviknaði í rafgeymi.