Fréttablaðið - 07.03.2012, Side 26
KYNNING − AUGLÝSINGDælubúnaður MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 20124
Strax á fyrsta degi gossins komu til eyja prófessorarn-ir Þorbjörn Sigurgeirsson og
Trausti Einarsson og Leó Krist-
jánsson jarðeðlisfræðingur. Erindi
þeirra var meðal annars að kanna
aðstæður til að kæla hraunið niður,
með því að dæla á það köldum sjó
ef rennsli þess tæki þá stefnu sem
ógnaði byggðinni.
Fyrsta tilraun til að hefta fram-
rás hraunsins með vatnsdælingu
var gerð tveimur vikum eftir að
gosið hófst, en þá var hraunið komið
ískyggilega nálægt hafnarmynninu.
Slökkviliðið í Eyjum hóf að sprauta
sjó á hraunjaðarinn og virtist
mönnum sem vatnið hefði áhrif á
hraunstrauminn en það vantaði
öflugri dælur. Dæluskipið Sandey
kom 1. mars. Því var einkum ætlað
að styrkja hraunkantinn og hefta
framrás Flakkarans. Áætlað er að
Sandeyin hafi dælt um 400 lítrum af
sjó á sekúndu upp á hrauntunguna
í 30 metra hæð.
Áhrifin voru augljós, hrauntung-
an sem var kæld haggaðist ekki upp
frá þessu þrátt fyrir að mikill þrýst-
ingur myndaðist síðar á hana frá
Flakkaranum. En menn sáu að
margfalt afkastameiri dælubúnað
þyrfti sem gæti dælt vatninu í allt að
tvisvar til þrisvar sinnum meiri hæð
en sá sem fyrir var. Þann 26. mars
kom fyrsta sending dælubúnaðar
flugleiðis frá Bandaríkjunum. Vel
gekk að setja dælurnar saman og
fyrsta einingin var tekin í notkun
30. mars.
Er talið að samtals hafi verið
dælt 6,2 milljónum tonna af vatni.
Þegar flest var unnu um 75 manns
við kælinguna. www.safnahus.vest-
mannaeyjar.is
Dældu 6,2 milljónum
tonna af sjó á hraunið
Í eldgosinu í Heimaey 1973 var öflugur dælubúnaður notaður til að dæla köldum sjó á
hraunið til að hefta framrás þess. Á heimasíðu safnahússins í Vestmannaeyjum er
þróuninni lýst.
Hraunstraumurinn ógnaði byggð í Heimaey og dæling sjávar hefti framrás hraunsins. MYND/GVA
FULLKOMNASTI DÆLUBÚNAÐURINN
Hjartað í brjósti okkar er
sjálfvirk dæla sem dælir
um 5 lítrum af blóði um
líkamann á hverri einustu
mínútu. Hjartavöðvinn
er úr sérhæfðum vöðva-
frumum sem geta starfað
óháð heildinni en hjartað
hefur eigið æðakerfi,
kransæðakerfi, sem flytur
súrefni og næringarefni
um vöðvann sjálfan svo
hjartað er sem minnst háð
annarri starfsemi líkamans.
Kransæðarnar flytja um 250
ml af blóði á hverri mínútu.
Hjarta í fullorðnum ein-
staklingi slær að meðaltali
70-90 sinnum á mínútu.
Hjartað er það líffæri sem
fer fyrst í gang þegar líf
kviknar í móðurkviði.
VATNI DÆLT UPP ÚR KOLANÁMUM
Upphaf iðnbyltingar um aldamótin 1800 er gjarnan
sagt markast af gufuvél skoska uppfinn-
ingamannsins James Watt. Watt fann
þó ekki upp gufuvélina sjálfa heldur
endurbætti gufuvél Englendingsins
Thomas Newcomen á þann veg
að láta kælingu gufunnar, sem olli
þeim undirþrýstingi sem knúði
vélina, eiga sér stað í sér hólfi,
sem ekki þyrfti að hita aftur áður
en það var aftur fyllt gufu. Gufu-
vél Watts var notuð til að dæla
vatni upp úr kolanámum. Elstu
minjar um gufuvél eru hins vegar
frá 1. öld í Egyptalandi. Heron frá
Alexandríu bjó til eimsnældu sem
sneri öxli snúningshjóls.
Heimild: wikipedia.org
Við f lytjum inn og seljum dælur frá þekktum erlend-um dæluframleiðendum
sem við erum umboðs- og dreif-
ingaraðili fyrir. Við sérhæfum
okkur í að finna réttu dæluna og
verkefnin eru margvísleg,“ segir
Hjalti en fyrirtækið Dælur og þjón-
usta er meðal annars umboðsaðili
fyrir Johnson-dælur. „Þær eru
þekktar á Íslandi og hafa þjónað
sjómönnum og bátaeigendum í
áravís. Þar eru þekktastar gúmmí-
hjóla-, lensi- og hringrásardælurn-
ar,“ segir Hjalti og bætir við að Jo-
hnson-dælur séu einnig mikið
notaðar í matvælageiranum þar
sem öllu er dælt, allt frá súkkulaði
til majóness. „Við erum svo með
góðan lager af varahlutum eins
og gúmmíhjól og almenna vara-
hluti í dælurnar.“
Dælur og þjónusta er einnig
umboðsaðili fyrir Jung-dælur frá
Þýskalandi og sérhæfir sig í skolp-
og dren-dælulausnum. „Við útveg-
um sérhannaðar lausnir hvort sem
er verið að dæla frá einni kjallara-
íbúð eða einbýlishúsi allt upp í
heilar dælustöðvar fyrir bæjar-
félög,“ segir Hjalti.
Hjalti segir mjög mikilvægt að
ganga úr skugga um að dælurn-
ar sem fólk er að nota séu í góðu
lagi. „Það er ekki gott til þess að
vita að það hefur f lætt grunn-
vatn inn í kjallara og hús hjá fólki
og engin dæla hefur verið til stað-
ar eða gamla dælan biluð. Það er
hægt að fyrirbyggja bæði lítið og
mikið tjón með með því að hafa
réttu dæluna tilbúna þegar á þarf
að halda,“ minnir hann á.
Fyrirspurnirnar sem starfs-
menn fyrirtækisins fá eru af
ýmsum toga, allt frá því að útvega
ryðfríar dælur fyrir sjó, loftdrifn-
ar membrudælur fyrir sýrur og
ætandi efni, borholudælur fyrir
neysluvatn, öflugar verktakadæl-
ur til að dæla úr húsagrunnum
eða virkjunum og svo framveg-
is. Hjalti segir lítið mál að sinna
öllum þessum fyrirspurnum. „Þá
veitum við einnig ráðgjöf um við-
hald og endurnýjun á dælum og
dælubúnaði.“
Helstu umboð Dælu og þjón-
ustu eru: Johnson, Grindex,
Gorman Rupp, Jung, Yamada,
Saer, Bryne og f l. Nánari upp-
lýsingar má nálgast á heimasíðu
fyrirtækisins www.daelur.is eða í
síma 5 400 600.
Að finna
réttu dæluna
Fyrirtækið Dælur og þjónusta ehf. er til húsa að Smiðju-
vegi 3 (grá gata) í Kópavogi og þar hittum við fyrir Hjalta
Þorsteinsson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Hér má sjá ólíkar gerðir af dælum. Jung skolpdælu (til vinstri), Jung brunndælu og
Yamada membrudælu
Hér er dæmi um öflugar dælur í hvaða
verkefni sem er.
Hjalti stillir sér upp við hliðina á dælum frá
Johnson Pump. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Verkefnin hjá Dælum og þjónustu eru margvísleg en dælur eru meðal annars mikið
notaðar í matvælageiranum.