Fréttablaðið - 07.03.2012, Blaðsíða 30
7. MARS 2012 MIÐVIKUDAGUR6
MARKAÐSMÁL
Þorgils Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Þrenn verðlaun, svokallaðir Lúðr-
ar, féllu Símanum og auglýsinga-
stofunni ENNEMM í skaut þegar
hin árlegu íslensku auglýsinga-
verðlaun voru afhent í Hörpunni
fyrir skemmstu. Verðlaunin voru
fyrir herferðina „Meira Ísland“.
Tilgangurinn var að vekja athygli
á 3G neti Símans og voru flestallir
mögulegir miðlar nýttir til þess,
á nýstárlegan hátt.
Herferðin fékk verðlaun fyrir
bestu vefauglýsinguna og bestu
notkun samfélagsmiðla auk aðal-
verðlaunanna, fyrir bestu auglýs-
ingaherferðina.
Halldór Harðarson, forstöðu-
maður markaðsdeildar Símans,
segir í samtali við Markaðinn að
útgangspunkturinn hafi verið að
sýna fram á gagnsemi 3G netsins
um allt land.
„Við hugsuðum með okkur að
besta leiðin til þess væri að sýna
þessa fjölbreyttu möguleika í
framkvæmd á hverjum stað. Það
gerðum við á rúmlega 60 stöðum
um allt land og sýndum fram á
hvernig tæknin og upplýsingarn-
ar, sem hún gerir fólki kleift að
nálgast, geti gert upplifunina af
hverjum stað sterkari.“
Halldór bætir því við að annað
markmið hafi verið að styrkja
vörumerki Símans um allt land,
ekki síst meðal fólks á lands-
byggðinni og þeirra sem eru á
ferð um landið.
„Útfærslan varð sú að við
bjuggum til efni sem var fyrst og
fremst hugsað fyrir netmiðlana,
áhugaverðar stiklur sem hægt
væri að skoða á ferð um landið,
með þeim tækjum sem fólk er
með, snjallsíma, spjaldtölvu eða
fartölvu. Svo nýttum við okkur
nýja hluti, til dæmis QR-kóðana,
sem gaf fólki tækifæri til að prófa
sig áfram með tæknina.“
Halldór segir það einmitt vera
eitt af lykilatriðunum, að fólk
noti tækin og tæknina og átti sig
á möguleikunum sem í boði eru.
„Við nýtum okkur okkar eigin
kjarnaþjónustu við markaðssetn-
inguna til að leyfa fólki að kynna
sér möguleikana og sýnum fram á
að öflugt fjarskiptanet sem styður
tæknina sé mikilvægt.“
Herferðin hlaut einnig verð-
laun fyrir notkun samfélagsmiðla.
Halldór segir aðspurður að ný-
miðlarnir skipti sífellt meira máli.
„Það sem skiptir hvað mestu er
einstaklingurinn. Neytandinn og
viðskiptavinurinn ráða nú sífellt
meiru um þróun vörumerkja. Aug-
lýsandi þarf nú að höfða til fólks
á þeirra eigin forsendum. Mark-
aðssetningu þarf að hugsa á nýjan
máta, sem nokkuð sem einstak-
lingar taka upp af sjálfsdáðum
og deila með öðrum. Það hefur
mun meiri áhrif en auglýsingar
í hinum hefðbundnu miðlum og í
því felst hið stóra tækifæri.“
Síminn er þar engin undantekn-
ing, segir Halldór að lokum.
„Síminn hefur mikla sögu og
þekkingu á mörgum sviðum og
margar vörur, sem gefa enn frek-
ari tækifæri til að sníða auglýs-
ingar eftir ólíkum markhópum
sem skilgreina sig sjálfir með því
markaðsefni sem þeir taka upp og
deila áfram.“
Nýmiðlar sífellt
mikilvægari
Meira Ísland fékk þrenn verðlaun á íslensku markaðs-
verðlaununum. Forstöðumaður markaðsdeildar segir
nýja tækni og miðla áhrifaríkari en hefðbundnar leiðir.
Stefnir Íslenski athafnasjóðurinn 1 afhenti á mánu-
dag hlutdeildarskírteinishöfum sínum alla hluti
sína í Högum. Um er að ræða um 7,6% hlut. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Stefni, sjóðastýringar-
fyrirtækis að fullu í eigu Arion banka, er um tveir
þriðju hluti skírteinishafanna lífeyrissjóðir. Aðrir
eigendur eru einstaklingar og fagfjárfestar sem
eru í viðskiptum hjá Stefni.
Eftir afhendingu eiga sjóðir í rekstri Stefnis
samtals 9,95% af útgefnum hlutum í Högum og
eignarhald þeirra þar með undir 10% flöggunar-
skyldu, þó að litlu muni.
Nokkrir mismunandi sjóðir í rekstri hjá Stefni,
með mismunandi sjóðstjóra, eiga hlut í Högum. Þar
sem hver og einn sjóður er ekki sjálfstæður lög-
aðili heldur kemur Stefnir fram sem slíkur fyrir þá
alla. Því eru eignarhlutir þeirra lagðir saman þegar
atkvæðaréttur sem fylgir þeim er reiknaður út. - þsj
Sjóðir í stýringu Stefnis fara undir flöggunarmörk:
Afhentu skírteinishöfum Hagahluti NÝ NÁLGUN Á MARKAÐSSETNINGU
Halldór Harðarson,
forstöðumaður
markaðsdeildar
Símans, segir
lykilatriði að höfða
til neytenda á þeirra
eigin forsendum.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N