Fréttablaðið - 07.03.2012, Qupperneq 36
7. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR20
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
Háholt 14, Mosfellsbær
Sími: 588 5530 • berg@berg.is
www.berg.is
Fax: 588 5540
Pétur Pétursson lögg. fasteignasali
Petur@berg.is
OPIÐ HÚS
Opið hús
Engjavegi 12 í Mosfellbæ
miðvikudaginn 7. mars. Kl. 17.30 til 18.00
Afar vel staðsett 233,3 fm.
einbýli á tveimur hæðum. Þar
af er bílskúr 43 fm.
Flott útsýni og stór eignarlóð.
Gott viðhald.
Komið er inn í anddyri með
flísum á gólfi. Rúmgott hol með
eikarparketi. Baðherbergi með
flísum á gólfi. Herbergi með eikarparketi og skápum. Stórt herbergi með
góðum skápum. Rúmgóð og björt stofa með eikarparketi á gólfi. Útgengt úr
stofu út á lóð. Sólpallur með heitum potti. Nýtt gróðurhús. Þriðja herbergið
er með parketi á gólfi. Rúmgott eldhús með korkflísum á gólfi. Borðkrókur.
Neðri hæð. Mjög rúmgott þvottahús. Stórt herbergi með plastparketi á gólfi.
Rúmgóður 2-3 bíla bílskúr. Mikið geymslupláss. Yfir húsinu er kalt geymsluloft
vel einangrað. Þetta er mikil eign með frábæra staðsetningu í grónu umhverfi.
Sölumaður Berg ehf tekur á móti gestum.
Auglýsing um
deiliskipulag
hesthúsabyggðar í
Grindavíkurbæ
Breytingar á deiliskipulagsáætlun fyrir Hesthúsabyggð.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Grinda-
víkur 2010-2030 sem auglýst var skv. 18. gr. skipulags og
byggingarlaga nr. 73/1997 á tímabilinu frá 9. apríl til 23.
maí 2011 og samþykkt af bæjarstjórn 26. október 2011.
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir
Grindavíkurbær hér með kynningu á tillögu að breyttu
deiliskipulagi hesthúsahverfis.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð.
Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti með
greinargerð. Þar er kveðið á um öll atriði deiliskipulags
í samræmi við skipulagslög og skipulagsreglugerð, s.s.
byggingarreiti, nýtingarhlutfall, hæð húsa, útfærslu opinna
svæða o.s.frv.
Við gerð tillögunnar hefur verið leitast við að viðhalda þeim
ákvæðum sem voru hluti af upphaflegu skipulagi frá 2006
en auk þess er nú komið fyrir aðstöðu fyrir hestaleigu,
stækkun lóðar fyrir félagsheimili / reiðhöll. Deiliskipul-
agsskilmálar eru gerðir ýtarlegri til að samræma og bæta
umgengni um skipulagssvæðið. Stækkun svæðis er 7.175
m².
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar,
Víkurbraut 62, frá 7. mars 2012 til og með 18. apríl 2012.
Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu Grindavíkurbæjar,
www.grindavik.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna
að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum skal skila skriflega á bæjarskrifstofurnar
til skipulags- og umhverfissviðs eða á netfangið ingvar@
grindavik.is, eigi síðar en 18. apríl 2012. Þeir sem eigi gera
athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja
tillöguna.
Ingvar Þór Gunnlaugsson
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. spjall, 6. ógrynni, 8. hyggja, 9.
umrót, 11. ekki, 12. svölun, 14.
gáleysi, 16. átt, 17. einkar, 18. jafnvel,
20. tvíhljóði, 21. pappírsblað.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. ólæti, 4. aflaga, 5.
nágranni, 7. flúðir, 10. sólunda, 13.
kvk nafn, 15. spírun, 16. er, 19. til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. rabb, 6. of, 8. trú, 9. los,
11. ei, 12. fróun, 14. vangá, 16. sa, 17.
all, 18. eða, 20. au, 21. miði.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. at, 4. brengla, 5.
búi, 7. forvaði, 10. sóa, 13. una, 15.
álun, 16. sem, 19. að.
Frábær leikur í dag
strákar! Þið svitnuðuð
blóði á vellinum!
Og þar hafið þið það,
maður uppsker eins og
maður sáir, drengir. Þannig
ganga hlutirnir fyrir sig!
Fyndið! Í mínu liði
er framherji sem
var að láta skipta
um mjaðmakúlu og
hreyfir sig því ekki
fyrr en hann fær
boltann í fæturnar!
Og í sama
liði er
markmaður
sem getur
varla gripið
utan um
hurðarhún!
Gætum við
þá farið á
leiki með
ykkur og
séð hvernig
á ekki
að spila
fótbolta?
Jaaa... þið
gætuð kannski
lært eitt og
annað um
tæklingar!
Beina
fótunum
í hnéhæð
andstæð-
ingsins!
Við kunnum
hana einmitt!
Frábært pabbi!
Hversu
frábær
er þessi
bústaður?
M-A-M-M-A! Palli! reyndu
nú að vera
jákvæður!
Hann er alveg
eins og ég man
eftir honum!
Vertu jákvæður í
þetta eina skipti!
jákvæður!
Kamarinn er
nákvæmlega eins
og í gamla daga!
ERTU
STURLAÐUR?!
Hvernig hljómar þetta:
Khonfnor, hermaður plánetunnar
Mmorpg, leitar að gyðju frá
fimmtu leið X til eyða ævinni
með honum í hliðarheimi fjögur.
Enga furðufugla.
Reikningur... Reikningur... Ruslpóstur... Ru...
Hvað er að?
Hver dó?
Verra. Þarf Hannes að mæta til tannlæknis.?
Haltu
mér!
Það er í tísku að endurnýta og endur-vinna. Gera upp hús á sniðugan og hag-
kvæman hátt, jafnvel lífrænan. Það er í
tísku að leggja bílnum og ganga eða hjóla.
Sumir ganga svo langt að selja bílinn og
tala um frelsun frá oki bensínreiknings-
ins. Þetta sé ekkert mál, maður þurfi bara
að skipuleggja sig, leggja tímanlega af
stað. Þeir sem frelsast hvað harðast breiða
út boðskapinn og verður mikið í mun að
frelsa fleiri. Bíllaus dagur, tökum strætó,
hjólum í vinnuna og brennum kaloríum
í leiðinni.
HÆTTUM líka allri heimtufrekju
og temjum okkur nægjusemi
áður en við drekkjum jörðinni í
drasli sem við hættum að nota,
bara af því okkur langar í nýtt.
Hvað á það að þýða að henda strá-
heilum eldhúsinnréttingum
eins og snarbilað fólk?
Kaupa sjónvörp á stærð
við auglýsingaskilti
verslunarmiðstöðvar
þegar gamla 14 tommu
túban skilar myndinni
alveg eins inn í augun á
okkur?
ÉG GET sjálf hrif-
ist af þessum boðskap.
Finnst frábært að endur-
nýta hluti, jahérna! Að
hugsa sér alla fjársjóðina sem leynast í
geymslum, hlutir „með sál“. Alveg hreint
fáránlegt að sóa peningum í nýtt og
nýtt þegar gamalt dugir allt eins vel. Þá
skammast ég mín fyrir allan óþarfann sem
ég á og bæli niður löngunina í nýja eldhús-
ið sem ólmast innan í mér. Segi engum frá
skónum sem ég keypti í haust sem enn eru
með verðmiðanum á.
ÉG SÉ líka í hyllingum hvernig kaloríurnar
fjúka „þegar“ ég sel bílinn og fer allra
minna ferða gangandi, hvernig þrekið
eykst og heilbrigðið skín af mér. Frábært
að vera laus við bensínreikninginn, hvað
þá tryggingarnar, dæsi ég á göngunni. Það
hlýtur hver einasti maður að sjá að þetta er
eina vitið! Snýst bara um skipulag, leggja
tímanlega af stað. Nú, ef ég verð sein fyrir
fæ ég bara far hjá einhverjum – sem á bíl!
ÞEGAR kemur að því að setja upp eldhús-
innréttingu á vegg án þess að fara út í
búð verð ég líka að treysta því að einhver
hendi, einmitt þá, stráheilli innréttingu á
haugana. Ég hef himin höndum tekið, ekki
gæti ég notað hana ef eigandinn væri að
henda innréttingunni vegna þess að hún
er ónýt!
ÉG ER ekki viss um að ég gæti nokkurn
tímann haldið úti endurnýtanlega og bíl-
lausa lífsstílnum, nema einmitt fyrir þá
sem gera það ekki.
Nýtt og endurnýtt