Fréttablaðið - 07.03.2012, Side 43
MIÐVIKUDAGUR 7. mars 2012 27
Meistaradeildin 16 liða úrslit
Arsenal - AC Milan 3-0
1-0 Laurent Koscielny (7.), 2-0 Tomás Rosicky
(26.), 3-0 Robin van Persie, víti (43.). AC Milan
vann samanlagt 4-3.
Benfica - Zenit St. Petersborg 2-0
1-0 Maxi Pereira (45+1), 2-0 Nélson Oliveira
(90.+3). Benfica vann samanlagt 4-3.
Enski bikarinn 16 liða úrslit
Birmingham - Chelsea 0-2
0-1 Juan Manuel Mata (54.), 0-2 Raúl Meireles
(60.). Chelsea fær heimaleik á móti Leicester City
í átta liða úrslitunum.
Iceland Express kvenna
KR - Valur 78-71 (65-65, 35-36)
Stig KR: Erica Prosser 28 (6 stoðs.), Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir 19, Hafrún Hálfdánardóttir 14,
Margrét Kara Sturludóttir 12 (9 frák.), Anna María
Ævarsdóttir 5.
Stig Vals: Lacey Katrice Simpson 19 (10 frák./5
stolnir/6 varin), Þórunn Bjarnadóttir 15, María
Ben Erlingsdóttir 11 (10 frák.), Guðbjörg
Sverrisdóttir 8, Signý Hermannsdóttir 6, Kristrún
Sigurjónsdóttir 6, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 4,
Hallveig Jónsdóttir 2.
STAÐAN Í DEILDINNI
Keflavík 25 20 5 1923-1735 40
Njarðvík 25 18 7 2064-1859 36
Snæfell 25 14 10 1814-1843 28
KR 26 13 13 1904-1808 26
Haukar 25 12 13 1824-1795 24
Valur 26 11 15 1908-1928 22
Fjölnir 25 7 18 1779-2054 14
Hamar 25 6 19 1736-1930 12
ÚRSLIT Í GÆR
ÁTT ÞÚ STEFNUMÓT
VIÐ ÞÁ BESTU?
TAKTU ÞÁTT Í HEINEKEN LEIKNUM Á FACEBOOK OG ÞÚ ÁTT
MÖGULEIKA Á VIP FERÐ FYRIR 2 Á LEIK CHELSEA OG NAPOLI
Í UEFA MEISTARADEILDINNI Í LONDON 14. MARS N.K.
HVERJUM ÆTLAR ÞÚ AÐ BJÓÐA MEÐ ÞÉR?
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandslið-
ið spilar við Dani í dag í leik um
fimmta sætið í Algarvebikarnum
en liðið verður án markadrottn-
ingarinnar Margrétar Láru Við-
arsdóttur sem glímir við meiðsli.
Fréttablaðið kannaði stöðuna á
markahæsta leikmanni A-lands-
liða Íslands frá upphafi.
„Ég get því miður ekki gefið kost
á mér í leikinn á morgun. Ég er
búin að vera mjög slæm í ferðinni
og er búin að gera lítið sem ekki
neitt á milli leikja,“ sagði Margrét
Lára eftir síðustu æfinguna fyrir
leikinn.
„Við reyndum í fyrsta leiknum
en ég var bara slæm og er búin
að vera slæm síðan. Við vildum
prófa í gær á móti Kína þar sem
við vorum að prófa nýtt leik-
kerfi,“ sagði Margrét Lára en hún
var með Hólmfríði Magnúsdóttur
með sér í framlínunni í sigrinum á
Kína. „Mér lýst mjög vel á það að
spila 4-4-2 og ég fagna alltaf því
þegar það koma fleiri fram,“ sagði
Margrét Lára.
Meiðslin komu ekki í veg fyrir
að Margrét Lára og systir hennar
Elísa byrjuðu saman í fyrsta sinn
í A-landsleik. „Það var æðislegt
og rosalega gaman. Ég er hrika-
lega stolt af henni því hún er búin
að standa sig frábærlega. Hún
er að koma vel inn í þetta og nú
er draumur að rætast hjá okkur.
Vonandi næ ég að jafna mig sem
fyrst svo að þetta geti aðeins
verið byrjunin á einhverju stærra
í framtíðinni,“ segir Margrét Lára.
„Mér fannst hún og Katrín ná að
spila rosalega vel saman. Þær eru
ólíkar og það hentar oft vel. Allur
varnarleikur liðsins var mjög
góður á móti Kína. Ég viðurkenni
samt alveg að það koma nokkur
aukaslög þegar hún fær boltann og
maður verður svolítið stressaður
en hún er búin að sýna það að hún
ætlar að standa sig vel og maður
getur því aðeins farið að slaka á,“
sagði Margrét Lára í léttum tón.
Elísa er fimm árum yngri en
Margrét Lára en sló í gegn með
nýliðum ÍBV í fyrrasumar. „Hún
var nánast búin að velja handbolt-
ann fyrir tveimur til þremur árum
þannig að þetta er búið að gerast
rosalega hratt hjá henni. Hún er
búin að taka miklum framförum,“
segir Margrét Lára.
„Þetta sýnir það bara að það eru
ekki alltaf barnastjörnurnar sem
verða bestar. Sumir leikmenn
springa bara út seinna og hún er
kannski gott dæmi um það en líka
um hvað það skilar sér að leggja
hart að sér og hafa trú og metnað,“
segir Margrét Lára. En hvað með
meiðslin og framhaldið hjá henni
sjálfri.
„Auðvitað hef ég áhyggjur af
þessum meiðslum. Það var rosa-
legt sjokk fyrir mig að lenda í
þessu núna því við erum að fara
í mikið prógramm með Potsdam.
Það er Meistaradeildin í næstu
viku og mikið af leikjum fram
undan. Ég var komin í hörkuform
og þetta var mjög svekkjandi.
Ég hef gríðarlegar áhyggjur af
þessu því ég hélt að ég væri lok-
ins að komast á gott skrið,“ sagði
Margrét Lára.
ooj@frettabladid.is
Stolt af litlu systur sinni
Margrét Lára Viðarsdóttir spilar ekki með íslenska kvennalandsliðinu í dag á
móti Dönum í leiknum um 5. sætið í Algarve-bikarnum en gat byrjað inn á
með litlu systur í sigrinum á Kína. Margrét Lára hefur áhyggjur af meiðslunum.
MUNAR FIMM ÁRUM Á SYSTRUNUM ÚR EYJUM Elísa Viðarsdóttir (til vinstri) er fædd
1991 en Margrét Lára Viðarsdóttir (til hægri) er fædd árið 1986. MYND/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son kvennalandsliðsþjálfari hefur
tilkynnt byrjunarliðið er mætir
Dönum í dag í leik um 5. sætið á
Algarve Cup en leikurinn hefst
klukkan 11.00 að íslenskum tíma.
- óój
Leikur við Dana um 5. sætið:
Þær byrja í dag
18 STIG Á SÍÐUSTU 15 MÍN. Erica Prosser
var frábær í lokin þegar KR vann Val í
æsispennandi leik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Arsenal er úr leik í Meist-
aradeildinni þrátt fyrir frábæran
3-0 sigur á ítalska liðinu AC Milan
á Emirates-leikvanginum í gær-
kvöldi. AC Milan vann fyrri leik-
inn 4-0 og þar með 4-3 samanlagt.
Arsenal skoraði þrjú mörk í frá-
bærum fyrri hálfleik en tókst ekki
að bæta við mörkum í seinni. - óój
Meistaradeildin í gærkvöldi:
AC Milan slapp
með skrekkinn
VAN PERSIE Munaði svo litlu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Byrjunarliðið gegn Dönum
Markvörður: Þóra Björg Helgadóttir
Hægri bakvörður: Guðný Björk Óðins-
dóttir
Miðverðir: Elísa Viðarsdóttir og Katrín
Jónsdóttir
Vinstri bakv.: Hallbera Guðný Gísladóttir,
Tengiliðir: Dóra María Lárusdóttir og
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Vinstri kantur: Greta Mjöll Samúelsdóttir
Hægri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir.
Sóknartengiliður: Harpa Þorsteins-
dóttir
Framherji: Fanndís Friðriksdóttir