Fréttablaðið - 08.03.2012, Blaðsíða 2
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR2
LÖGREGLUMÁL Guðgeir Guðmunds-
son stakk Skúla Eggert Sigurz,
framkvæmdastjóra lögmanns-
stofunnar Lagastoðar, eftir að
þeir höfðu rætt saman í dágóða
stund og voru að kveðjast. Menn-
irnir höfðu þá komist að samkomu-
lagi um lækkun skuldar Guðgeirs.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar
2 í gærkvöld.
Guðgeir mætti á Lagastoð
snemma á mánudagsmorgun vegna
skuldar sem hljóðaði upp á rúmar
80 þúsund krónur. Skúli bauð
honum inn á skrifstofu sína til að
ræða við sig og var skuld Guðgeirs
lækkuð um 30 þúsund krónur, eða
niður í rúmar 50 þúsund krónur.
Stöð 2 greindi frá því að fram-
kvæmdastjórinn hefði þá prentað
út skjal með hinu nýja samkomu-
lagi. Réðst Guðgeir á hann þegar
þeir voru að kveðjast. Samkvæmt
heimildum fréttastofunnar tók hann
í hönd Skúla, kippti honum að sér og
stakk hann ítrekað.
Skúli gekkst undir flókna og
langa skurðaðgerð á mánudag eftir
árásina og er honum enn haldið sof-
andi. Ástand hans var enn tvísýnt
þegar Fréttablaðið fór í prentun í
gærkvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu þykir liggja ljóst fyrir að
árásin verði flokkuð sem tilraun til
manndráps. Guðgeir var á þriðjudag
úrskurðaður í gæsluvarðhald fram
til morguns, en allar líkur eru á því
að farið verði fram á framlengingu.
Hann skal sæta geðrannsókn. - sv
Árásarmaðurinn á lögmannsstofunni í Lágmúla hafði komist að samkomulagi um lækkun greiðslu:
Stakk lögmanninn þegar hann var að kveðja
SPURNING DAGSINS
Markmið:
Ný
tt
Sk
yr
.is
Ert þú með markmið?
Segðu frá því á www.skyr.is. Þú gætir unnið flug
og gistingu fyrir tvo innanlands eða gjafabréf. PRÓTEINRÍKT OG FITULAUST
AÐ KEPPA Á ÓLYMPÍU-
LEIKUNUM Í LONDON
Í SUMAR
Jakob Jóhann Sveinsson
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
2
-0
3
5
3
Vilhjálmur, eruð þið kven-
mannslausir í kulda og trekki?
Nei, þvert á móti erum við á fleygi-
ferð að passa að svo verði ekki.
Samtök atvinnulífsins hafa nú fjölgað
konum í stjórnum lífeyrissjóða og tilnefnt
14 stjórnarmenn, þar af 10 konur, til setu
í stjórnum átta lífeyrissjóða til næstu
tveggja ára. Vilhjálmur Egilsson er fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
HEILBRIGÐISMÁL Læknafélag
Íslands (LÍ) segir útilokað að fall-
ast á að eftirlit landlæknisembætt-
isins með PIP-málinu svokallaða
eigi að felast í því að fylgjast með
hvort konurnar sem hafa fengið
púðana í sig mæti í ómskoðun hjá
Krabbameinsfélaginu.
Landlæknir hefur meðal annars
fært þau rök fram til að fá afhent-
an lista frá Jens Kjartanssyni
lýtalækni yfir nöfn og kennitölur
kvenna sem hafa fengið umræddar
fyllingar í brjóst sín.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í ítarlegri umsögn LÍ til Pers-
ónuverndar vegna kröfu landlækn-
is um að fá afhent nöfn kvennanna.
LÍ gagnrýnir þau lagalegu rök
landlæknisembættisins að listinn
sé nauðsynlegur fyrir embættið
til að sinna eftirlitshlutverki sínu.
Þá hefur landlæknir einnig kraf-
ist þess að fá lista yfir allar þær
konur sem fengið hafa sílikonfyll-
ingar í brjóst sín hér á landi síðan
árið 2006.
Persónuvernd á annars vegar að
úrskurða hvort lýtalæknum beri
skylda til að afhenda þann lista.
Hins vegar snýr málið að Jens
Kjartanssyni lýtalækni og lista
hans yfir þær konur sem fengið
hafa PIP-púða frá honum síðan
árið 2000 og fengið hafa boð um
brottnám púðanna á Landspítalan-
um. Málin verða lögð fyrir stjórn
Persónuverndar í næstu viku.
Alls fengu 393 konur með PIP-
púða boð um að koma í ómskoðun
hjá Krabbameinsfélaginu. Af þeim
hefur 221 komið í ómskoðun og
greindist leki hjá 126 eða 57 pró-
sentum þeirra.
sunna@frettabladid.is
LÍ segir útilokað að
lagarökin standist
Læknafélag Íslands segir rök landlæknis er varða afhendingu á lista yfir kon-
ur með sílikonbrjóst ónæg. Persónuvernd úrskurðar í næstu viku. Lyfjaeftirlit
Bandaríkjanna hefur ákveðið að slíkur gagnagrunnur verði gerður þar í landi.
Lýtalækninganefnd Matvæla- og lyfjaeftirlitsstofnunar Bandaríkjanna (FDA)
ákvað í gær að búinn verði til almennur gagnagrunnur yfir allar konur sem
hafa fengið sílikon-fyllingar í brjóst sín þar í landi. Upplýsingarnar eiga að ná
að minnsta kosti áratug aftur í tímann.
Tvö bandarísk fyrirtæki framleiða sílikon-púða, Allergan og Mentor, og
eiga þau að fylgja konunum eftir, láta þær fylla út spurningalista og fram-
kvæma á þeim ýmsar rannsóknir undir leiðsögn FDA, þar sem slíku hefur
verið ábótavant að mati eftirlitsins. Með þessu á að reyna að útiloka tengsl
á milli ígræðslu púðanna og hinna ýmsu sjúkdóma tengdra bandvef og
eitlakrabbameini. Þá mælist FDA einnig til þess að allar konur láti ómskoða
brjóst sín þremur árum eftir að þær hafi fengið ígræðslu til að kanna hvort
púðarnir leki. Frá þessu var greint á fréttavef MedPage Today í gær.
Talið er að á bilinu fimm til tíu milljónir kvenna um heim allan séu með
fyllingar í brjóstum sínum, og samkvæmt FDA er mikill meirihluti þeirra
ánægður með þær. Um 297.000 bandarískar konur létu stækka á sér
brjóstin árið 2010 og aðrar 90.000 fengu uppbyggingu á brjóstum sínum
eftir veikindi. Um það bil helmingur fyllinganna var sílikon.
Gagnagrunnur búinn til vestanhafs
SKURÐAÐGERÐ Landlæknir vill fá lista yfir allar konur sem fengið hafa sílikonp-
úða í brjóst sín hér á landi síðan árið 2006. NORDICPHOTOS/AFP
NÁTTÚRA Lóan er ekki komin til
landsins, að sögn Jóhanns Óla
Hilmarssonar fuglafræðings og
formanns Fuglaverndarfélags
Íslands.
Fréttir bárust af því um síð-
ustu helgi að fyrsta lóan væri
komin til landsins og héldi til á
Eyrarbakka. Jóhann Óli segir
í samtali við dfs.is að þetta sé
ekki rétt. Of snemmt sé til þess
að lóan geti verið komin. Þarna
hafi því verið á ferðinni starri að
herma eftir lóu, enda hafi konan
sem tilkynnti um lóuna aðeins
heyrt í henni en ekki séð hana.
- þeb
Of snemmt fyrir lóuna:
Lóa var í raun
starri að herma
STARRI Fuglafræðingur telur að starrinn
hafi verið að herma eftir lóunni, sem sé
ekki komin til landsins.
„Ég sá þegar árásin átti sér stað, þannig að ég hljóp inn á skrifstofuna og sá
þá blóð. Þá þá reyndi ég að ná hnífnum af manninum,“ segir Guðni Bergs-
son lögfræðingur sem yfirbugaði Guðgeir eftir að hann veittist að Skúla,
samstarfsfélaga hans.
Guðni var stunginn tvisvar í lærið í árásinni, en segir í viðtali við fréttavef í
bænum Bolton á Englandi, þar sem hann lék knattspyrnu, að hann hafi ekki
áttað sig á því að hann hafi verið stunginn. Hann slasaðist ekki alvarlega.
Guðni áttaði sig ekki strax á stungunum
DÓMSMÁL Enginn sakborningur
mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur
þegar þar var þingfest svokallað
Al Thani-mál. Ákæran í málinu
beinist gegn fyrrverandi stjórn-
endum Kaupþings, Hreiðari Má
Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og
Magnúsi Guðmundssyni og Ólafi
Ólafssyni. Þeir eru meðal annars
ákærðir fyrir markaðsmisnotkun
og umboðssvik.
Pétur Guðgeirsson héraðsdóm-
ari hafði fyrir dómi í gær orðað
þann möguleika að láta handtaka
sakborningana og færa fyrir dóm.
„Ég tel eðlilegt að gæta meðalhófs
í því,“ sagði þá Björn Þorvaldsson
saksóknari, en málarekstrinum
var frestað til 29. mars.
Þá gerði dómari athugasemd við
að ákæruvaldið hefði ekki látið
verjendum sakborninga í té hljóð-
og myndupptökur af yfirheyrslum
sem liggja til grundvallar í málinu.
Saksóknari benti á að sakborn-
ingum og verjendum þeirra hefði
verið boðið að skoða upptökurnar
í húsnæði sérstaks saksóknara,
en þær hefðu ekki verið afhentar
af ótta við að þær myndu leka út.
Saksóknari kærði því tilmæli um
að láta beri af hendi upptökurn-
ar, en úrskurðað verður um það í
marslok þegar málið verður tekið
fyrir á ný. Þann dag munu sak-
borningar málsins líka þurfa að
mæta fyrir dóminn.
- óká, jhh
Sakborningar í Al Thani-málinu mættu ekki við þingfestingu þess í héraðsdómi:
Handtaka mætti Kaupþingsmenn
Í DÓMI Hörður Felix Harðarson, lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, og Ragnar H.
Hall lögmaður Ólafs Ólafssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Grunur leikur
á að salmonellusmit hafi komið
upp í sláturhópi hjá kjúklinga-
framleiðandanum Ísfugli. Sýkla-
deild Landspítalans vinnur nú að
greiningu á sýnum til að stað-
festa gruninn, en Ísfugl ákvað að
innkalla þær vörur sem fóru út
úr húsi.
Helga Lára Hólm, fram-
kvæmdastjóri Ísfugls, segir að
um það bil tonn af kjöti hafi farið
í verslanir. Um er að ræða kjúk-
ling með rekjanleikanúmerinu
110-12-04-1-03, dagsettu 1. og 2.
mars. - sv
Salmonellusmit hjá Ísfugli:
Tonn af kjöti
fór í verslanir
LÖGREGLUMÁL Tveir rúmenskir
karlmenn hafa verið úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald eftir að
upp komst um afritun þeirra á
kortaupplýsingum úr hraðbönk-
um á höfuðborgarsvæðinu. Þeir
voru handteknir á laugardaginn
en komu til landsins í febrúar.
Í tilkynningu frá Valitor segir
að upphæðin sem þeim tókst að
svíkja út sé lág.
Mennirnir komu fyrir full-
komnum afritunarbúnaði til
að lesa segulrendur kortanna
og settu þeir upp vélar til að
mynda innslátt Pin-númera.
Í tilkynningu frá Landsbank-
anum segir að verið sé að láta
þá viðskiptavini vita sem taldir
eru hafa orðið fyrir kortasvindl-
inu.
- shá
Tveir Rúmenar handteknir:
Kortasvikarar í
gæsluvarðhaldi
DANMÖRK Fjöldi austur-evrópskra
fanga í dönskum fangelsum hefur
meir en tvöfaldast á undanförn-
um fimm árum. Í fyrra voru
austur-evrópsku fangarnir 244 en
105 fyrir fimm árum. Þess vegna
hefur stjórnarandstaðan lagt til
að Danir byggi fangelsi í Austur-
Evrópu til þess að glæpamenn-
irnir geti afplánað dóma sína
þar. Stjórnmálamaðurinn Tom
Behnke bendir á að fangelsisvist
í Danmörku sé eins og hóteldvöl
miðað við fangelsisvist í Austur-
Evrópu.
Flestir austur-evrópsku
afbrotamannanna fá stutta dóma
sem þeir afplána að mestu í
gæsluvarðhaldi, að því er for-
maður samtaka fangelsisstarfs-
manna í Danmörku bendir á.
- ibs
Dönsk fangelsi eins og hótel:
Vill byggja
danskt fangelsi
í Austur-Evrópu