Fréttablaðið - 08.03.2012, Blaðsíða 10
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR10
Sigríður Víðis Jónsdóttir hlaut viðurkenningu
Hagþenkis fyrir bók sína RÍKISFANG: EKKERT.
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
„Merkileg bók og
vel skrifuð.“
Egill Helgason / Silfur Egils
„Þetta er mögnuð bók!“
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir / DV
2011
NOREGUR Norski hryðjuverka-
maðurinn Anders Behring Brei-
vik hefur verið ákærður fyrir 77
morð, fjölmargar morðtilraunir og
tvö hryðjuverk. Ríkissaksóknari
Noregs telur Breivik ekki sakhæf-
an, en með þeim fyrirvara að eitt-
hvað geti komið fram sem breyti
því mati.
Þetta kemur fram í ákæruskjali
frá saksóknaraembættinu, sem
birt var í gær. Gert er ráð fyrir því
að réttarhöldin hefjist um miðjan
apríl.
Byggt var á áliti geðlækna sem
telja Breivik vera alvarlega geð-
sjúkan. Enn er þó beðið mats ann-
ars hóps geðlækna, sem fenginn
var til að fara yfir fyrra læknamat-
ið. Lögmenn Breiviks segja hann
ósáttan við að mat á geðheilbrigði
hans sé með í ákæruskjalinu.
Inga Bejer Engh ríkissaksókn-
ari segir hugsanlegt að réttar-
höldin muni snúast um að verjend-
ur Breiviks reyni að færa rök að
sakhæfi gegn rökum saksóknara
um ósakhæfi. Hún segir málið for-
dæmalaust í norskri réttarsögu.
Breivik hefur viðurkennt
að hafa myrt 77 manns með
sprengjuárás í miðborg Óslóar og
skotárás á ungmennasamkomu á
Úteyju 22. júlí síðasta sumar.
Samkvæmt ákæruskjalinu voru
564 á Úteyju þegar Breivik kom
þangað, en í háhýsinu í Ósló og á
götunum fyrir utan voru samtals
325 manns í lífshættu.
- gb
Ríkissaksóknari Noregs hefur birt ákæruskjalið gegn Breivik:
Ákærður fyrir tvö hryðjuverk
FUNDUR RÍKISSAKSÓKNARA Þau Inga
Bajer Engh og Svein Holden kynntu
ákæruskjalið á blaðamannafundi í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Áliðnaðurinn stóð
á árunum 2008 til 2010 beint eða
óbeint að baki 6 til 6,8% af lands-
framleiðslu Íslands. Þetta er niður-
staða Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands sem hefur rannsakað fram-
lag áliðnaðarins til þjóðarbúsins
fyrir Samál, samtök álframleið-
enda. Til samanburðar hefur beint
og óbeint framlag sjávarútvegs til
landsframleiðslunnar verið áætlað
um 17,5%.
Þrjú stór álver eru starfrækt á
Íslandi: Í Straumsvík, á Grundar-
tanga og í Reyðarfirði. Samanlagt
framleiða þau rúm 800 þúsund tonn
af áli á ári sem jafngildir um tveim-
ur prósentum af heimsframleiðslu
áls. Í tengslum við starfsemi álver-
anna starfa um 2.000 manns.
Í skýrslunni kemur fram að
áliðnaðurinn verslar við hundr-
uð íslenskra fyrirtækja sem mörg
hver eiga allt sitt undir greininni.
Áætlar stofnunin því að um 2.800
manns starfi í tengdum greinum
við að þjónusta álverin. Það óbeina
framlag til landsframleiðslunnar
sem þannig skapast er talið vera á
bilinu 40 til 51 milljarður króna af
þeim 85 til 96 milljörðum sem áliðn-
aðurinn er talinn skila.
Greining Hagfræðistofnunar
byggir á þeirri niðurstöðu að áliðn-
aðurinn myndi ásamt orkufram-
leiðsluiðnaðinum á Íslandi svo-
kallaðan grunnatvinnuveg. Það
er atvinnuveg sem staðið getur án
stuðnings annarra atvinnuvega en
slíkir atvinnuvegir skapast oft í
kringum vinnslu náttúruauðlinda.
Segir í skýrslu stofnunarinnar að
atvinnuvegir í hagkerfi myndi vef
viðskipta og tengist með fjölmörg-
um hætti. Flestir atvinnuvegir séu
öðrum háðir og geti ekki staðið einir
og óstuddir. Því geti reynst erfitt
að afmarka framlag hvers og eins.
Það sama gildi hins vegar ekki um
grunnatvinnuvegi sem skapist oft í
kringum tilveru náttúruauðlinda.
Áliðnaðurinn mikil-
vægur hagkerfinu
Hagfræðistofnun metur framlag áliðnaðarins á Íslandi 6 til 6,8 prósent af lands-
framleiðslu. Í greininni starfa um 2.000 manns en að auki áætlar stofnunin að
um 2.800 manns starfi í tengdum greinum sem þjónusta áliðnaðinn.
HÚSI ATVINNULÍFSINS Í GÆR Anna Guðrún Ragnarsdóttir, hagfræðingur, vann
einkum að gerð skýrslunnar en þeir Ragnar Árnason, prófessor, og Sveinn Agn-
arsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar lögðu einnig sitt af mörkum. Skýrslan
var unnin fyrir Samál, samtök álframleiðenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í skýrslu Hagfræðistofnunar er í einum kafla vikið að áhrifum áliðnaðarins
á umhverfi og náttúru Íslands. Kemur þar fram að erfitt sé að meta þau
verðmæti sem í náttúrunni felist. Því sé það vandasamt verk að meta
kostnaðinn sem sennilega hafi fylgt uppbyggingu áliðnaðarins með
neikvæðum áhrifum á náttúru landsins. Er það niðurstaða stofnunarinnar
að vandaðar rannsóknir á þessari hlið málsins skorti til að meta megi með
viðunandi nákvæmni þennan kostnað.
Rannsóknir á umhverfisáhrifum skortir
SÝRLAND, AP Bandarískir ráðamenn
sjá ekki ástæðu til að hefja árásir
á Sýrland, þrátt fyrir að aðgerðir
sýrlenska hersins gegn mótmæl-
endum og uppreisnarmönnum hafi
kostað meira en átta þúsund manns
lífið.
„Þetta er miklu flóknara ástand,“
sagði Barack Obama Bandaríkja-
forseti um ástandið í Sýrlandi núna
í samanburði við ástandið í Líbíu,
þegar aðildarríki Atlantshafs-
bandalagsins ákváðu að hefja loft-
árásir til varnar almenningi þar á
síðasta ári.
Valerie Amos, yfirmaður mann-
úðarstarfs Sameinuðu þjóðanna,
kom í gær til borgarinnar Homs
og fór meðal annars inn í hverfið
Baba Amr, sem sýrlenski herinn
hafði gert harðar árásir á vikum
saman.
Hún sagði markmið heimsókn-
ar sinnar til Baba Amr vera það
að hvetja alla aðila til þess að
veita hjálparstarfsfólki óhindrað-
an aðgang svo hægt verði að koma
særðu fólki burt og koma nauðsyn-
legum hjálpargögnum á staðinn.
Átökin í Sýrlandi hafa harðnað
jafnt og þétt síðustu vikur og engin
lausn í sjónmáli. Assad forseti virð-
ist staðráðinn í að berja niður upp-
reisnina, sem í staðinn magnast
upp með hverri vikunni. - gb
Bandaríkjastjórn sér enga ástæðu til að hefja árásir á Sýrland:
Obama segir ástandið of flókið
STUÐNINGSFUNDUR Í SÝRLANDI Stuðn-
ingsmenn Bashar al-Assads Sýrlands-
forseta komu saman í Damaskus í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Emmessís hefur gert
samning við finnska ísfram-
leiðslufyrirtækið Ingman Ice
Cream um sölu á eitt hundrað
tonnum af jógúrtísblöndunni
Joger.
Ísinn verður seldur í ísbúð-
um víðs vegar um Finnland og í
Eystrasaltslöndunum. Finnska
fyrirtækið er í eigu Unilever,
stærsta ísframleiðanda í heimi,
og vakti Joger-ísinn athygli fyrir
hollustu og bragðgæði. Varan
verður kynnt á árlegri sýningu í
Helsinki í þessum mánuði. - obþ
Emmessís í útrás:
Selja 100 tonn
af jógúrtís
Loks kemur fram í skýrslunni
að útflutningur á áli hafi á undan-
förnum árum numið að meðaltali
tæpum 40 prósentum af vöruút-
flutningi, er það svipað hlutfall og
sjávarútvegurinn státar af. Hefur
vöruskiptajöfnuður greinarinnar
verið tugir milljarða króna síð-
ustu ár, lægst verið 35,5 milljarð-
ar árið 2004 en hæst verið tæp-
lega 130 milljarðar.
magnusl@frettabladid.is
Ætlar þú að fylgast með
Reykjavíkurskákmótinu með
einum eða öðrum hætti?
JÁ 11,6%
NEI 88,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú ánægð(ur) með þá tón-
listarviðburði sem hafa verið í
boði í Hörpu til þessa?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN