Fréttablaðið - 08.03.2012, Side 26
FÓLK|TÍSKA
GRIPIR MEÐ RÆTUR
SKARTGRIPALEIGA
Í tilefni HönnunarMars,
22. til 25. mars, verður
skartgripaleigu komið
á fót . Þar getur fólk
leigt gripi eftir flesta
hönnuði sýningarinnar
og skartað þeim dagpart
eða við sérstök tilefni.
Leiguverði verður stillt
í hóf en allur ágóði af
leigunni rennur til Ljóss-
ins, endurhæfingar- og
stuðningssamtaka fyrir
fólk sem fengið hefur
krabbamein.
MIKIL GRÓSKA
Guðbjörg Ingvarsdóttir segir
sýninguna endurspegla
mikla fjölbreytni
í íslenskri
skartgripa-
hönnun.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt
hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is s 512 5432
SKARTGRIPASÝNING Á þriðja tug gullsmiða og hönnuða sýna skartgripi á sýn-
ingu sem opnar í Hafnarborg á laugardag og ber yfirskriftina Rætur. Þar verður
meðal annars boðið upp á skartgripaleigu sem er nýbreytni hér á landi.
SKÍRAGULL, JÁRN
OG TIMBUR Efnis-
notkun höfunda er
fjölbreytt og má sjá
gripi úr eðalmálmum
jafnt sem timbri.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Full búð af sparilegum klæðnaði fyrir allar veislur sumarsins.
Útsölulok, fullt af góðum tilboðum. Hlökkum til að sjá þig.
verslunin er 5 ára í dag
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
FULL BÚÐ
af flottum fötum
fyrir flottar konur
Stærðir 40–60
Laugavegi 63 • S: 551 4422
NÝTT – VATTJAKKAR
FLOTTIR BÁÐUM MEGIN
Einlitir/köflóttir
kr. 27.900,-
Sjá yfirhafnir á laxdal.is
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Heimir & Kolla vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
Sýning á íslenskri samtímaskart-gripahönnun opnar í Hafnar-borg á laugardag. Yfirskrift sýn-
ingarinnar er Rætur og er henni ætlað
að gefa innsýn í heim íslenskrar skart-
gripahönnunar og þær ólíku rætur sem
gullsmiðir og skartgripahönnuðir leita
í við sköpunina. Eins verða ræturnar
skoðaðar í gegnum gamla gripi sem
fengnir verða að láni hjá Þjóðminja-
safni Íslands. Þar á meðal eru stokka-
belti, koffur, hálsmen og ermahnappar
og eru elstu gripirnir frá 17. öld.
„Við í Félagi íslenskra gullsmiða
höfum alltaf verið með viðburð í
tengslum við HönnunarMars. Í ár
hafði Ólöf K. Sigurðardóttir, for-
stöðumaður Hafnarborgar, samband
við okkur og óskaði eftir samstarfi.
Okkur þótti það sérstaklega viðeig-
andi þar sem yfirskrift Hönnunar-
Mars í ár er samvinna,“ segir Guð-
björg Kristín Ingvarsdóttir, gullsmið-
ur og eigandi verslunarinnar Aurum,
sem situr í sýningarnefnd. Hún segir
að ákveðið hafi verið að taka sam-
vinnuhugtakið skrefinu lengra og
bjóða vöruhönnuðum að taka þátt í
sýningunni ásamt fjölda gullsmiða
en þátttakendur eiga það sameig-
inlegt að hafa verið að gera áhuga-
verða skartgripi að undanförnu.
Flestir gripanna eru að sögn Guð-
bjargar sérstaklega unnir fyrir sýn-
inguna og endurspegla mikla grósku.
„Efnisnotkun höfunda er fjölbreytt
og má sjá gripi úr eðalmálmum,
timbri, gúmmíi, postulíni og mosa
svo dæmi séu nefnd. Þeir leita fanga
víða og sækja innblástur í náttúruna,
menninguna og persónulegar rætur.
Markmið sýningarinnar er að sýna
fram á þessa miklu fjölbreytni.“
Guðbjörg er sjálf með nýja línu.
Hún vinnur með fjaðrir fálka og
svans og hefur gert stórar axlarnæl-
ur sem eru hugsaðar fyrir bæði kyn.
„Þetta er fyrsta línan í Aurum sem er
ætluð báðum kynjum en þar koma
til með að fást sams konar gripir í
minni útfærslum,“ segir Guð-
björg.
Sýningin í Hafnarborg
stendur til 15. apríl. ■ ve