Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.03.2012, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 08.03.2012, Qupperneq 42
8. mars 2012 FIMMTUDAGUR34 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Tónleikaárið 2012 virðist ætla að einkennast af tónleikum með eld- gömlum hljómsveitum sem ýmist eru enn að, eða hafa verið endur- lífgaðar í einhverri mynd. Það er margt í boði í þeim geiranum, sumt spennandi og annað minna. Eitt af því sem tilheyrir hiklaust fyrri flokknum er endurkoma íslensku hipparokksveitarinnar Svanfríðar í Austurbæ 14. apríl. Á tón- leikunum koma fram þeir Birgir Hrafnsson, Gunnar Hermannsson, Sigurður Karlsson og Sigurður Rúnar Jónsson sem allir spiluðu inn á plötu sveitarinnar What‘s Hidden There sem kom út árið 1972. Auk þeirra koma Þórður Árnason og Pétur Hjaltested fram, auk söngvaranna Eiríks Hauks- sonar, Elvars Arnar Friðrikssonar og Péturs Arnar Guðmundssonar. Tilefni þessarar endurkomu er tví- þætt. Annars vegar að halda upp á fjörutíu ára afmæli plötunnar og hins vegar að heiðra minningu Péturs Krist- jánssonar, söngvara Svanfríðar, sem hefði orðið sextugur á árinu. What‘s Hidden There hefur lengi verið ein af eftirsóttustu íslensku plötunum hjá plötusöfnurum út um allan heim. Þó að hún hafi verið endurútgefin bæði á cd og vínil af þýska gæðamerk- inu Shadoks þá hefur ásóknin í upprunalegu útgáfuna ekkert minnkað. Síðasta haust seldust að minnsta kosti tvö eintök af henni á yfir hundr- að þúsund krónur á ebay. Tónlistin á What‘s Hidden There, sem var tekin upp í London, er proggað hipparokk, ekkert mjög þungt, en fullt af fínu grúvi og flott- um sólóum sem gaman verður að heyra spiluð á tónleikunum. Auk laga af plötunni mun Svanfríður taka smáskífulögin Jibbý Jei og Kalli bóndi og nokkur þeirra erlendu tökulaga sem voru vinsæl á böllum með hljómsveitinni. Svanfríður rifjar upp snilldina EFTIRSÓTT Enn má fá vænar fúlgur fyrir gott eintak af What‘s Hidden There. > Í SPILARANUM Myrra Rós - Kveldúlfur Blondes - Blondes Andrew Bird - Break it Yourself MYRRA RÓS ANDREW BIRD John Frusciante, fyrrum gítarleikari Red Hot Chili Peppers, verður ekki viðstaddur þegar hljómsveitin verður vígð inn í Frægð- arhöll rokksins í apríl. Aðrar hljómsveitir sem fá inngöngu í höll- ina verða Faces/Small Faces, Guns N´Roses og Beastie Boys. Að sögn trommuleikarans Chads Smith ætlar Frusciante ekki að mæta þrátt fyrir að flestir fyrrum meðlimir Red Hot muni láta sjá sig. Frusciante yfirgaf hljómsveitina og ákvað að einbeita sér að sólóferli sínum áður en upptökur á nýj- ustu plötunni I´m With You hófust. Í skarð hans hljóp Josh Klinghoffer. „Honum fannst eitthvað skrítið að mæta og við virðum alveg þá skoðun hans,“ sagði Smith við Billboard. „Hann er þannig náungi að þegar hann hefur lokið einhverju snýr hann sér alfarið að næsta verkefni. Hann er eiginlega ekkert að spá í Red Hot Chili Peppers núna.“ Frusciante spilaði inn á fimm hljóðvers- plötur með hljómsveitinni á árunum 1989 til 2006. Frusciante fjarverandi Bandaríska hljómsveit- in The Shins gefur út sína fjórðu plötu á næstunni. Sem fyrr er melódískt og stundum skrítið poppið í fyrirrúmi. Fjórða plata bandarísku indís- veitarinnar The Shins kemur út 16. mars. Hún heitir Port of Morrow og er sú fyrsta sem sveitin gefur út hjá nýju útgáfu- fyrirtæki forsprakkans James Mercer, Aural Apothecary. The Shins var stofnuð árið 1996 í borginni Albuquerque í Nýju-Mexíkó en er núna með bækistöðvar í Portland í Oregon. Fyrst átti The Shins að vera hlið- arverkefni Mercers enda hafði hann áður stofnað Flake Music. Þegar sú hljómsveit lagði upp laupana ákvað hann að einbeita sér að The Shins og réð tromm- arann Jesse Sandoval í bandið. Síðar meir áttu hljómborðsleik- arinn Marty Crandall og bassa- leikarinn Dave Hernandez eftir að bætast í hópinn en bæði þeir og Sandoval eru núna hættir í sveitinni. Mercer hafði kennt sjálfum sér á gítar sem unglingur með því að hlusta á sveitir á borð við My Bloody Valentine og Echo & The Bunnymen. Með tímanum fékk hann aukinn áhuga á popptónlist sjöunda áratugarins og vönduð- um lagasmíðum. Fyrsta platan, Oh! Inverted World, kom út 2001. Þar vakti The Shins vakti töluverða athygli fyrir ferska, melódíska og stund- um skrítna popp-rokktónlist sína. Næsta plata, Chutes Too Narrow, leit dagsins ljós tveim- ur árum síðar og þar var meira kjöt á beinunum en á frumburð- inum. Árið eftir var lagið New Slang notað í kvikmyndinni Gar- den State með Natalie Portman í aðalhlutverki og jók það vinsæld- ir The Shins til muna. Þriðja platan, Wincing the Night Away, kom út 2007. Hún var sú síðasta til að koma út á vegum Sub Pop og fékk mjög góðar við- tökur, þar á meðal tilnefningu til Grammy-verðlaunanna, auk þess sem hún fór beint í annað sæti Billboard-listans. Port of Morrow var tekin upp í Los Angeles og Portland á síðasta ári. Sem fyrr sá Mercer um laga- smíðarnar, sönginn og meirihlut- ann af hljóðfæraleiknum. The Shins ætlar að fylgja plöt- unni eftir með spilamennsku í Evrópu og í Bandaríkjunum fram á haust. Fyrst spilar sveitin í þættinum Saturday Night Live á laugardaginn. freyr@frettabladid.is Melódískt og skrítið popp Á GRAMMY-HÁTÍÐ The Shins á Grammy-hátíðinni árið 2008. Hún var tilnefnd til fyrir bestu alternative-plötuna. NORDICPHOTOS/GETTY > PLATA VIKUNNAR ★★★★★ Halftime - Introbeats „Mjúk og þægileg tónlist sem ætti að höfða til margra.“ -TJ Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is. Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 1. - 7. mars 2012 LAGALISTINN Vikuna 1. - 7. mars 2012 Sæti Flytjandi Lag 1 Valdimar Guðmunds. / Helgi Júl. .....Stöndum sama 2 Magni ..................................................................... Hugarró 3 Retro Stefson ..........................................................Qween 4 Greta Salóme / Jónsi..........................Mundu eftir mér 5 Of Monsters and Men ...................................Lakehouse 6 Fun / Janelle Monae .............................. We are Young 7 Blár ópal ............................................................Stattu upp 8 The Black Keys ............................................... Lonely Boy 9 Amy Winehouse ....Will You Still Love Me Tomorrow 10 Train ........................................................................Drive By Sæti Flytjandi Plata 1 Ýmsir ...................... Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012 2 Mugison ....................................................................Haglél 3 Of Monsters and Men ............ My Head is an Animal 4 Valgeir Guðjónsson .....................Spilaðu lag fyrir mig 5 Adele .................................................................................. 21 6 Leonard Cohen .................................................Old Ideas 7 Sólstafir....................................................... Svartir sandar 8 Ýmsir .............. Einu sinni var / Út um græna grundu 9 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorl. ......... Ásamt Sinfó 10 Hjálmar ..........................................................................Órar AÐVÖRUN! Tiger seldi snjókúlur með álfum í febrúar 2011 og aftur með jólafígúrum í nóvember 2011. Við innköllum nú snjókúlurnar þar sem komið hefur í ljós að glerið er tiltölulega auðvelt að brjóta ef kúlurnar detta í gólfið eða þeim slenkt upp við e-ð hart. Ef kúlurnar brotna þegar börn eru að leik, er hætta á að þau skeri sig á glerbrotunum. Við biðjum þá sem keypt hafa kúlur af þessu tagi að skila þeim í næstu Tigerbúð og fá að fullu endurgreitt. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi málið hafðu endilega samband í s. 660 8211 eða á netfangið sandra@tiger.is Villidýr á verði · tiger.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.