Fréttablaðið - 04.04.2012, Qupperneq 2
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR2
FERÐALÖG Um 26.500 Íslendingar
fóru af landi brott til lengri eða
skemmri tíma í nýliðnum marsmán-
uði. Það eru um 855 á dag að meðal-
tali, sem er um sautján prósenta
aukning frá sama mánuði í fyrra.
Enn vantar talsvert upp á að ná
þeim fjölda utanlandsferða sem
landsmenn fóru í árin fyrir hrun.
Í mars 2008 fóru um 38.600 Íslend-
ingar úr landi, eða um 1.250 á hverj-
um degi að meðaltali.
Utanlandsferðum Íslendinga
fækkaði um næstum helming í kjöl-
far hrunsins haustið 2008, eins og
lesa má úr tölum Ferðamálastofu.
Síðan hefur fjöldi utanlandsferða
aukist hægt og bítandi. Í mars
síðast liðnum voru farnar umtals-
vert fleiri ferðir en í mars 2004, en
ekki jafn margar og í sama mánuði
á árunum 2005 til 2008.
Alls fóru 71.100 Íslendingar af
landi brott á fyrsta ársfjórðungi
ársins, sem er um níu prósenta
aukning frá sama tímabili í fyrra.
Eins og bent er á í morgunkorni frá
Greiningu Íslandsbanka hefur gengi
krónunnar veikst um sex prósent á
árinu.
Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar Úrval-Útsýn,
segir að hrunið hafi bitnað mun
meira á fólki á aldrinum 30 til 50 ára
en á þeim sem eldri eru. Algert hrun
hafi orðið í ferðum ungs fjölskyldu-
fólks, en fólk yfir fimmtugu hafi
áfram ferðast þrátt fyrir hrunið.
Nú virðist unga fjölskyldufólkið
aftur vera farið að ferðast, og segir
Þorsteinn að um 50 prósenta aukn-
ing hafi verið í sölu til þessa aldurs-
hóps í fyrra.
Ferðirnar eru þó öðruvísi sam-
settar en fyrir hrun. Fjölskyldu-
fólkið fer almennt í styttri ferðir
Unga fjölskyldufólkið
aftur í utanlandsferðir
Um 26.500 Íslendingar flugu af landi brott í mars. Það er um 17% aukning frá
sama mánuði í fyrra. Unga fjölskyldufólkið virðist farið að ferðast aftur þó
ferðamynstrið sé breytt segir forstjóri ferðaskrifstofu. Ferðirnar eru styttri.
STRANDLÍF Sólarlandaferðirnar eru yfirleitt styttri nú en fyrir hrun, auk þess sem
líklegra er að fólk ferðist til nærliggjandi lands frekar en að fara á framandi slóðir
segir forstjóri Úrvals-Útsýnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
40
30
20
10
0
19,6 22,2 33,0 29,5 35,4 38,6 17,6 22,4 22,6 26,5
Fjöldi utanlandsferða Íslendinga
í marsmánuði 2003 til 2012
Heimild: Ferðamálastofa *Allar tölur eru í þúsundum
en áður, meðaltalið er um tíu dagar
en var tólf áður, segir Þorsteinn. Þá
fer fólk oft styttri vegalengdir en á
árunum fyrir hrun.
„Á árunum 2006 og 2007 vildu
margir komast á framandi slóðir.
Nú veit ég ekki hvort ævintýraþrá-
in hafi minnkað eða fólk þurfi að
hugsa meira um kjörin, en fólk fer
frekar á hefðbundnari slóðir í dag,“
segir Þorsteinn.
Hann segir fólk einnig velja í mun
meiri mæli en áður að fara í ferð-
ir þar sem allt sé innifalið á gisti-
staðnum. Það hafi verið nær óþekkt
fyrir hrun, en nú vilji fólk það
gjarnan til að halda útgjöldunum í
lágmarki. brjann@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Ráðist var á konu á
heimili hennar í Vesturbæ Reykja-
víkur aðfaranótt þriðjudags og
hún rænd farsíma sínum.
Lögregla greinir frá því að
klukkan þrjú um nóttina hafi
erlend kona komið á lögreglustöð-
ina við Hverfisgötu og tilkynnti að
á hana hefði verið ráðist. „Konan,
sem var nokkuð blóðug, sagðist
hafa kynnst manni á Facebook og
hann komið heim til hennar. Eftir
stuttar samræður hafi maðurinn
ráðist á hana og gengið í skrokk á
henni,“ segir í tilkynningu. - óká
Kynntist manni á Facebook:
Kona lamin og
rænd farsíma
ÞÝSKALAND Ríkissaksóknari í Sviss
hefur gefið út handtökuskipun á
hendur þremur starfsmönnum
skattaeftirlitsins í Þýskalandi. Þeir
eru sakaðir um að hafa stundað
njósnir um viðskiptavini svissneska
bankans Credit Suisse.
Þýsku skatteftirlitsmennirnir
hafa skýrt frá því opinberlega að
árið 2010 keyptu þeir geisladisk með
stolnum upplýsingum frá svissneska
bankanum Credit Suisse. Svissnesk
yfirvöld grunar hins vegar að þeir
hafi sjálfir fengið starfsmann bank-
ans til þess að stela upplýsingunum,
og séu því sekir um brot á lögum
gegn iðnaðarnjósnum. Þær upplýs-
ingar leiddu á sínum tíma til þess
að upp komst um þúsundir þýskra
skattsvikara, sem höfðu komið fé
sínu undan til svissneskra banka til
að sleppa við að greiða skatt í Þýska-
landi. Þýska ríkið fékk í framhald-
inu meira en þrjú hundruð milljarða
í ríkiskassann. Þar á ofan fóru Þjóð-
verjar í mál við starfsmenn Credit
Suisse fyrir aðstoð, sem þeir höfðu
veitt þýskum skattsvikurum. Bank-
inn greiddi Þjóðverjum 150 milljón-
ir evra til að losna við þau málaferli.
Geisladiskinn fengu þýsku emb-
ættismennirnir hjá millilið, sem
sagður er hafa fengið diskinn frá
starfsmanni Credit Suisse.
Milliliðurinn fékk 2,5 milljónir
evra fyrir sinn hlut, en hann er nú
dáinn og getur því ekki upplýst með
hvaða hætti hann fékk diskinn frá
starfsmanni bankans. - gb
Svissnesk yfirvöld vilja fá þrjá þýska embættismenn handtekna og framselda:
Sakaðir um njósnir og þjófnað
CREDIT SUISSE Handtökuskipunin hefur
valdið miklu uppnámi í þýska stjórnkerf-
inu. NORDICPHOTOS/AFP
SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftirlitið hefur ákveð-
ið að leggja 440 milljóna króna sekt á Símann fyrir
brot á samkeppnislögum. 390 milljónir eru vegna
misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og brot gegn
ákvæðum EES-samningsins og fimmtíu milljónir
vegna rangrar og misvísandi upplýsingagjafar til
yfirvalda við meðferð málsins. Sektin er sú hæsta
sem lögð hefur verið á fyrirtæki á Íslandi vegna
misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.
Málið hófst með kæru frá símafyrirtækinu Nova
en vatt upp á sig og við rannsókn málsins kom í ljós
að Síminn hafði brotið lögin frá árinu 2001 allt til
ársins 2007.
Niðurstaðan er sú að Síminn beitti keppinauta
sína verðþrýstingi til að gera þeim erfiðara fyrir
að ná fótfestu á farsímamarkaði. Í þessu tilfelli er
Síminn talinn hafa tekið óeðlilega hátt gjald fyrir
að hleypa öðrum símfyrirtækjum inn á kerfi sitt, og
mun hærra en gjaldið á símtöl innan kerfis Símans.
Þetta leiddi til þess að til að vera samkeppnishæft
þurfti Nova að bjóða viðskiptavinum sínum ókeyp-
is símtöl innan eigin kerfis, sem leiddi til þess að
félagið var rekið með miklu tapi fyrstu árin, að því
er segir í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Ljóst
sé að á brotatímabilinu hafi fyrirtæki hætt við að
hefja hér starfsemi vegna þessa og önnur hrökklast
af markaði.
Síminn lýsti því yfir í gær að fyrirtækið hygðist
áfrýja niðurstöðunni. Hún kæmi á óvart og að Sam-
keppniseftirlitið væri með henni að fordæma eðlilega
háttsemi en ekki vernda samkeppni. - sh
Síminn ósáttur við 440 milljóna sekt fyrir að misnota ráðandi stöðu á markaði:
Hæsta sekt sinnar tegundar
LANDBÚNAÐUR Hlutfall mjólkur
sem kemur frá búum með mjalta-
þjóna er hæst í heimi hér á landi,
eða 28,2 prósent. Frá þessu er
greint á vef Landssambands kúa-
bænda og vitnað í tölur NMSM,
samtaka norrænna afurðastöva í
mjólkuriðnaði.
„Fyrra metið var sett árið 2010
þegar dönsk kúabú með mjalta-
þjóna skiluðu 26,9 prósentum
heildarmagns mjólkur þar í
landi,“ segir á vefnum.
Um síðustu áramót var 101
kúabú með mjaltaþjóna hér á
landi og sum með fleiri en einn
mjaltaþjón. Heildarfjöldi mjalta-
þjóna á landinu öllu var sagður
120 um áramótin. - óká
Mjaltaþjónahlufallið hæst hér:
Íslensk kúabú
bæta heimsmet
Í FJÓSINU Kúabú með mjaltaþjóna
skiluðu afurðastöðvum 35,2 milljónum
lítra af mjólk í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁFRÝJAR Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, vitnaði í
fréttum Stöðvar 2 í álit ráðgjafarfyrirtækisins Copenhagen
Economics, sem hafði ekki gert athugasemdir við fyrirkomu-
lagið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SÝRLAND, AP Uppreisnarmenn
í Sýrlandi segja að Bashar al-
Assad forseti geri sér vonir um
að geta endanlega brotið upp-
reisnina í landinu á bak aftur
fyrir 10. apríl, en þá hefur hann
lofað að draga her sinn frá fjöl-
mennum íbúðasvæðum.
„Þetta mun ekki gerast, því um
leið og hann dregur skriðdreka
sína frá borgunum þá mun fólkið
stíga fram og reyna að steypa
stjórninni,“ segir Adel al-Omari,
einn uppreisnarmannanna. - gb
Uppreisnarmenn í Sýrlandi:
Segja fólkið
bíða eftir færi
SVÍÞJÓÐ Fangar sem fundnir eru
ósakhæfir eiga að hljóta sams
konar refsingu og aðrir fangar.
Það á ekki að dæma þá til vist-
unar á réttargeðdeild. Þetta eru
tillögur sænskrar nefndar sem
farið hefur yfir lögin um nauð-
ungarinnlögn geðveikra og lögin
um vistun ósakhæfra fanga sem
kynntar voru félagsmálaráð-
herra Svíþjóðar, Göran Hägg-
lund, í gær. Greint var frá þessu
á fréttavef Dagens Nyheter.
Á vef Aftonbladet er haft eftir
afbrotafræðingnum Mikael
Rying að mikilvægt sé fyrir sam-
félagið að vita hvernig hægt sé að
koma í veg fyrir að viðkomandi
fremji aftur brot. Refsingin sjálf
skipti minna máli. - ibs
Tillögur sænskrar nefndar:
Vill afnema
réttargeðdeildir
SJÁVARÚTVEGUR Dótturfyrirtæki
Samherja, Deutsche Fishfang
Union í Þýskalandi (DFFU), hefur
ákveðið að hætta tímabundið
öllum viðskiptum við Ísland. RÚV
greindi frá þessu í gærkvöldi.
Í fréttinni kemur fram að
félagið ætlar ekki að selja afurð-
ir sínar í gegnum íslensk sölu-
fyrirtæki, sækja þjónustu hér
eða landa úr skipum félagsins
á Íslandi. Þetta er gert á meðan
ekki fæst upplýst hvað fyrirtækið
er grunað um að gera rangt í við-
skiptum á Íslandi.
Seðlabankinn lagði nýlega hald
á bókhaldsgögn DFFU sem vistuð
eru hér á landi í tengslum við
rannsókn sína á meintum brotum
Samherja á gjaldeyrislögum.
Gangi áform DFFU eftir mun
það hafa mikil áhrif á landvinnslu
Samherja á Norðurlandi þar sem
allar áætlanir gera ráð fyrir hrá-
efni frá DFFU, en veiðiheimildir
Samherja duga ekki til þess að
halda uppi vinnslu árið um kring.
- shá
Rannsókn SÍ á Samherja:
Ætlar að snið-
ganga Ísland
Ásbjörn, á bara‘ð fara‘ð nota
þara?
„Já, svo eldsneytisinnkaupin megi
spara.“
Ásbjörn Torfason fer fyrir verkefni þar
sem athugað er hvort nota megi þara til
framleiðslu á lífeldsneyti.
SPURNING DAGSINS