Fréttablaðið - 04.04.2012, Side 8
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR8
1. Hvað þarf Íbúðalánasjóður
mikla meðgjöf úr ríkissjóði til að ná
lágmarks eiginfjárhlutfalli?
2. Hver eru fyrstu verðlaun í ljós-
myndasamkeppni Fréttablaðsins?
3. Hvaða náttúrulegi efniviður er
talinn geta verið undirstaða fram-
leiðslu á lífeldsneyti sem komið gæti
í stað innflutts eldsneytis?
SVÖR
1. Tíu milljarða króna. 2. Heimaljósa-
stúdíó. 3. Stórþörungar, eða þang.
Apótekarinn Melhaga
í dag miðvikudaginn 4. apríl kl. 15-18
Dr. Comfort
Sokkar fyrir þá sem
hafa sykursýki, gigt,
bjúg, taugaskaða
og/eða skerta blóðrás
í fótum. Eru til í X-vídd
fyrir breiða fætur.
Heelen
Stór vörulína
sem býður upp á
fjölbreyttar lausnir
gegn algengum fóta
og húðvandamálum
20% afsláttur
DR. COMFORT OG HEELEN
KYNNING
afslát
tur
www.portfarma.is
MINNI
ÞREYTA
OG
MINNI V
ERKIR
Í FÓTUM
!
KÓLUMBÍA, AP Tíu kólumbískir lög-
reglumenn og hermenn, sem hafa
verið gíslar skæruliðasamtakanna
FARC í tólf til fjórtán ár, fengu
frelsið í gær.
Miklir fagnaðarfundir urðu
þegar ættingjar þeirra tóku á móti
þeim. Þyrla hafði verið send til að
ná í þá á ótilgreindan stað í frum-
skóginum. Ættingjar og ástvinir
tóku síðan á móti þeim í höfuð-
borginni Bogota, þar sem þeir voru
jafnframt sendir í læknisskoðun.
„Ég öskraði. Ég hoppaði upp og
niður,“ sagði Olivia Solarte, móðir
eins gíslanna, 41 árs gamals lög-
reglumanns sem hefur verið í haldi
síðan í júlí árið 1999.
Enn eru að minnsta kosti 400
gíslar í haldi samtakanna, sem
nýlega gáfu loforð um að þau væru
hætt að taka gísla í tekjuöflunar-
skyni. Samtökin fullyrða að menn-
irnir tíu, sem látnir voru lausir í
gær, séu síðustu lögreglu- og her-
mennirnir sem enn voru í haldi
þeirra. Hinir séu allt almennir
borgarar.
Juan Manuel Santos, forseti Kól-
umbíu, fagnaði lausn gíslanna úr
haldi, en sagði hana ekki duga til.
Hún væri „skref í rétta átt, mjög
mikilvægt skref,“ en samt ekki
upphaf friðarviðræðna.
Hann vill fá ótvíræða staðfest-
ingu á því að samtökin, sem hófu
vopnaða baráttu árið 1964, hafi í
reynd hætt öllum gíslatökum.
„Þegar stjórnvöld telja næg
skilyrði og tryggingar vera fyrir
hendi til þess að hafist geti ferli
sem bindur enda á átökin, þá mun
þjóðin vita af því,“ sagði Santos,
sem hefur tekið af mikilli hörku
á skæruliðasamtökunum frá því
hann var varnarmálaráðherra
á árunum 2006 til 2009 og síðan
áfram eftir að hann tók við emb-
ætti forseta árið 2010.
Skæruliðasamtökin FARC voru
upphaflega byltingarsamtök marx-
lenínista sem hugðust ná völdum
í landinu, en hafa á seinni árum
haldið sig að mestu til hlés inni á
stóru landsvæði, sem þau hafa náð
á sitt vald. Gíslatökur hafa þau þó
haldið áfram að stunda, en eink-
um í fjáröflunarskyni því þau hafa
heimtað rausnarlegt lausnargjald
fyrir gísla sína. Helsta tekjulind
þeirra hefur annars verið kókaín-
framleiðsla.
Liðsmenn þeirra eru taldir vera
tíu til fimmtán þúsund, en fylgi
þeirra meðal þjóðarinnar hefur
dvínað jafnt og þétt.
Undanfarna áratugi hafa tvisvar
verið gerðar tilraunir til friðarvið-
ræðna milli FARC og stjórnvalda í
Kólumbíu, en upp úr þeim slitnaði
í bæði skiptin. gudsteinn@frettabladid.is
Létu tíu gísla lausa
eftir tólf ár í haldi
Kólumbísku skæruliðasamtökin FARC létu í gær lausa tíu gísla sem hafa verið í
haldi þeirra í tólf til fjórtán ár. Mjög er nú þrengt að skæruliðunum, sem nýlega
hétu því að hætta gíslatökum. Enn eru þó nokkur hundruð gísla í haldi þeirra.
FRELSINU FEGNIR Tveir gíslanna, sem látnir voru lausir í gær, ásamt hjúkrunarfræðingum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MANNRÉTTINDI Stjórn Samtakanna
´78 skorar á Alþingi að gera laga-
úrbætur til handa transfólki. Sam-
tökin sendu frá sér yfirlýsingu í
gær vegna þess að ungur trans-
maður var beittur ofbeldi á öldur-
húsi í Reykjavík en fyrir þinginu
liggur frumvarp um stöðu trans-
fólks á Íslandi.
„Þetta atvik sýnir okkur hversu
gríðarlega mikilvægt það er að
Alþingi samþykki fyrirliggjandi
frumvarp og bæti inn í stjórnar-
skrá og/eða refsilöggjöfina ákvæði
til verndar transfólki með kynvit-
und sem ekki samræmist þeirra
líffræðilega kyni,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Í tilkynningunni kemur fram
að stjórn samtakanna skrifaði síð-
asta sumar erindi til Stjórnlaga-
ráðs um að bæta orðinu kynvitund
inn í upptalningu á mismununar-
breytum í jafnræðisreglu nýrrar
stjórnarskrár. „Ef þessi tillaga að
nýrri stjórnarskrá verður sam-
þykkt er þar inni bann við mis-
munun vegna kynhneigðar, sem
er ákveðinn sigur, en með því að
bæta kynvitund inn í upptaln-
inguna væri komin inn vernd fyrir
transfólk einnig. Orðið kynhneigð
vísar til þess hverja við elskum
og orðið kynvitund til þess hvoru
kyninu við upplifum okkur sjálf
tilheyra,“ segir þar.
Stjórnlagaráð felldi naumlega
tillöguna um að bæta kynvitund
inn í textann og því ákvað stjórn
Samtakanna að senda inn breyt-
ingartillögu til stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis. - shá
Samtökin ´78 álykta vegna árásar á ungan transmann í Reykjavík:
Vilja ákvæði inn í stjórnarskrá
Heimir & Kolla vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
FRÍSTUNDIR „Það er mjög mikill
snjór í Bláfjöllum, hefur varla
verið meiri í fimmtán ár,“ segir
Magnús Árnason, framkvæmda-
stjóri skíðasvæða Reykjavíkur-
borgar. „Við erum mjög bjart sýnir
fyrir páskana.“
Að venju verður opið um
páskana í Bláfjöllum, svo lengi
sem veður leyfir, og er búist við
þúsundum á skíði yfir hátíðirnar.
„Ef við náum að hafa opið yfir
alla páskana má gera ráð fyrir að
um fimmtán þúsund manns komi
í Bláfjöll,“ segir Magnús. „Það
eru samt ekki allir sem koma
til að renna sér því sumir eru
bara komnir til að spóka sig um,
kíkja á messuna eða fylgjast með
tónlistar viðburðum.“
Opið hefur verið í Bláfjöllum í
vikunni. Um páskana verður opið
frá tíu til fimm.
„Við höfum ekki enn fengið lang-
tímaspá en það er ekki neinn vind-
ur í kortunum svo við sjáum fram
á að það verði opið,“ segir Magnús.
- kh
Opið í Bláfjöllum yfir páskana enda ekki verið meiri snjór þar í yfir fimmtán ár:
Búist við þúsundum í Bláfjöll
Á SKÍÐUM SKEMMTI ÉG MÉR Mikill snjór
er í Bláfjöllum um þessar mundir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Ökumaður sem
ók niður umferðarljós í hörðum
árekstri á mótum Breiðholtsbraut-
ar og Skógarsels laust fyrir klukk-
an hálf sjö í gærmorgun flúði af
vettvangi á hlaupum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu var hann svo gripinn tveimur
tímum síðar þar sem hann reyndi
að komast inn í bíla í Seljahverfi
og kíkti á glugga húsa. Bílnum
hafði verið stolið deginum áður og
maðurinn er grunaður um að vera
undir áhrifum vímugjafa. - óká
Harður árekstur í Breiðholti:
Dópaður ók á
umferðarljós
VEISTU SVARIÐ?
Ég öskraði. Ég hopp-
aði upp og niður.
OLIVIA SOLARTE
MÓÐIR EINS GÍSLANNAS