Fréttablaðið - 04.04.2012, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 4. apríl 2012 17
FASTEIGNIR Fjöldi íbúða í eigu fjármála-
stofnana er einn helsti óvissuþátturinn
í spá greiningardeildar Íslandsbanka
um þróun íbúðaverðs. Í lok síðasta
árs voru um þrjú þúsund íbúðir í eigu
fjármálastofnana, þar af 1.600 í eigu
Íbúðalánasjóðs.
Í fréttabréfi greiningardeildar
Íslandsbanka kemur fram að þær þrjú
þúsund íbúðir sem eru í eigu fjármála-
stofnana séu um 2,3 prósent af heildar-
fjölda íbúða í landinu. Þó það sé ekki
há tala er bent á að um sex þúsund
íbúðir hafi gengið kaupum og sölum á
landinu öllu í fyrra. Svo mikið framboð
fasteigna gæti því haft áhrif á íbúða-
verð til lækkunar ef það yrði losað inn
á markaðinn á stuttum tíma. Greining-
ardeildin telur hins vegar ólíklegt að
slíkt muni gerast og bendir meðal ann-
ars á að Íbúða lánasjóður hafi farið sér
afar hægt í þessum efnum. Sjóðurinn
hafi selt 154 íbúðir á síðasta ári og árið
2010 hafi þær verið 132.
„Líklegt er að Íbúðalánasjóður
muni þó á næstu árum losa um eignir
hraðar en á síðustu tveimur árum en
með sama áframhaldi tæki það sjóð-
inn tíu ár að selja allar íbúðir sínar,“
segir í Morgunkorni greiningardeildar
Íslandsbanka.
- kh
Íbúðalánasjóður á rúmlega helming allra íbúða sem eru í eigu fjármálastofnana:
Helsti óvissuþáttur í spá um þróun íbúðaverðs
FASTEIGNIR Íbúðalánasjóður á 1.600 fasteignir en 80 prósent þeirra eru
á landsbyggðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMGÖNGUR Icelandair mun bæta
tveimur vélum í flugvélaflota
sinn og verða með sextán vélar í
rekstri næsta sumar, en vélarnar
voru fjórtán síðasta sumar.
Gengið hefur verið frá samn-
ingum um tvær Boeing 757-200
vélar sem munu bætast við flota
Icelandair á næstu mánuðum.
Annars vegar er um að ræða
kaup á vél og hins vegar leigu
á vél til 20 mánaða. Kaupin eru
fjármögnuð úr sjóðum félagsins,
að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Icelandair. Kaupverðið
er trúnaðarmál.
Gert er ráð fyrir að báðar vél-
arnar verði tilbúnar til notkunar
í leiðakerfi félagsins í maí næst-
komandi. - þeb
Icelandair kaupir og leigir:
Bæta við tveim-
ur flugvélum
ICELANDAIR Flugfélagið verður með
sextán flugvélar í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVÍÞJÓÐ Efni sem nagladekk rífa
upp úr malbikinu eru ekki bara
hættuleg heilsu þeirra sem eru
með öndunarfærasjúkdóma, held-
ur geta efnin einnig valdið blóð-
töppum og hjartaáfalli.
Þetta eru niðurstöður nýrrar
rannsóknar vísindamanna við
háskólann í Umeå í Svíþjóð.
Vísindamennirnir hafa rann-
sakað dauðsföll í tengslum við
umhverfismengun í Stokkhólmi.
Á vef Dagens Nyheter segir að
árlega látist í Stokkhólmi 30 til 40
manns af völdum slíkrar meng-
unar sem er mest á vorin.
Efnin sem nagladekkin rífa upp
þyrlast upp þegar vegir og götur
þorna. - ibs
Ný rannsókn í Svíþjóð:
Nagladekk geta
valdið fólki
heilsutjóni
LANDBÚNAÐUR Verð á kjarnfóðri
frá Líflandi hefur verið hækkað
um þrjú til sjö prósent, mismun-
andi eftir tegundum.
„Ástæður verðbreytingarinn-
ar eru umtalsverðar hækkanir á
heimsmarkaðsverði hráefna til
fóðurgerðar og veiking íslensku
krónunnar gagnvart helstu
gjaldmiðlum,“ segir í tilkynn-
ingu Bergþóru Þorkelsdóttur,
framkvæmdastjóra Líflands.
Kjarnfóðurverðshækkunin tók
gildi mánudaginn 2. apríl.
- óká
Kjarnfóðurverð hækkar:
Hækkunin er
3 til 7 prósent
UMHVERFISMÁL Grand Hótel
Reykjavík hlaut nýverið vottun
norræna umhverfismerkisins
Svansions fyrir góðan árangur í
umhverfismálum. Grand hótel er
fyrsta hótelið sem hlýtur Svan-
inn en umfangsmikil úrgangs-
flokkun er á hótelinu. Efnanotk-
un þvottahússins og innkaupum
almennt hefur verið breytt til að
tryggja kröfur Svansins auk þess
sem einvörðungu eru notað LED-
perur.
Alls státa nítján fyrirtæki hér-
lendis af Svaninum. - áp
Svansvottun Grand Hótels:
19 fyrirtæki
með Svaninn
frjalsilif.is – 444 7000
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða
skyldulífeyrissparnað sinn og er opinn öllum sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.
Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, sendu tölvupóst
á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða komdu við í næsta útibúi Arion banka.
Frjálsi
lífeyrissjóðurinn
Ársfundur
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 25. apríl nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum
Arion banka, Borgartúni 19.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
5. Kosning stjórnar
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á frjalsilif.is og verða
aðgengilegar í höfuðstöðvum Arion banka tveimur vikum fyrir ársfund.
Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og einn varamann til eins
árs. Framboð til stjórnar þarf að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund og ber
að tilkynna framboð til stjórnar með sannanlegum hætti.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Efnahagsreikningur 31.12. 2011
Eignir
Verðbréf með breytilegum tekjum
Verðbréf með föstum tekjum
Veðlán
Verðtryggður innlánsreikningur
Húseignir og lóðir
Fjárfestingar alls
Kröfur
Aðrar eignir
Eignir samtals
Skuldir
Hrein eign til greiðslu lífeyris
Yfirlit um breytingar á hreinni eign
til greiðslu lífeyris fyrir árið 2011
Iðgjöld
Lífeyrir
Fjárfestingartekjur
Fjárfestingargjöld
Rekstrarkostnaður
Hækkun á hreinni eign á árinu
Hrein eign frá fyrra ári
Hrein eign til greiðslu lífeyris
Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu
tryggingafræðings 31.12.2011
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum
Eignir umfram heildarskuldbindingar
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum
Kennitölur
Eign í íslenskum krónum
Eign í erlendum myntum
1 Fjöldi virkra sjóðfélaga
Fjöldi sjóðfélaga í árslok
2 Fjöldi lífeyrisþega
Meginniðurstöður ársreiknings (í millj. króna)
6. Kjör endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar
á samþykktum sjóðsins
8. Laun stjórnarmanna
9. Önnur mál
35.617
60.211
1.517
2.228
41
99.615
485
1.824
101.924
(2.209)
99.715
6.872
(3.591)
9.814
(289)
(154)
12.652
87.063
99.715
-833
-3,4%
-221
-0,4%
80,1%
19,9%
10.815
42.724
1.904
1 Meðalfjöldi sjóðfélaga sem greiddi iðgjald á árinu.
2 Meðalfjöldi lífeyrisþega sem fengu greiddan lífeyri á árinu.
Nafnávöxtun 2011
12,5%
13,4%
14,7%
5 ára meðalnafnávöxtun
Frjálsi Áhætta var stofnaður í ársbyrjun 2008
og eru því ekki til 5 ára tölur.
* Skuldabréf eru gerð upp á kaupkröfu.
Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun í framtíð.
Myndin sýnir 5 ára meðalnafnávöxtun áranna 2007–2011
en ávöxtunin er mismunandi á milli ára. Frekari upplýsingar
um ávöxtun hvers árs má nálgast á frjalsilif.is
Fr
já
ls
i 1
Fr
já
ls
i 2
Fr
já
ls
i 3
Fr
já
ls
i Á
hæ
tt
a
Tr
yg
gi
ng
ad
ei
ld
*
9,5% 9,0%
Fr
já
ls
i 1
Fr
já
ls
i 2
Fr
já
ls
i 3
5,8%
9,7%
Tr
yg
gi
ng
ad
ei
ld
*
4,2%
13,8%