Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2012, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 04.04.2012, Qupperneq 18
18 4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is HALLDÓR Framkvæmdastjóri Suðurorku komst á forsíðu Fréttablaðsins fyrir nokkrum dögum vegna áforma fyrirtækisins um Búlandsvirkjun. Hvorki náttúrunni né heimamönnum var þar léð eyra. Nokkrar rangfærslur voru í fréttinni, en um mikil- vægt náttúruverndarsvæði er að ræða. Í fyrsta lagi var því slegið fram að Búlandsvirkjun hafi verið metin einn hag- kvæmasti virkjanakosturinn í 1. áfanga Rammaáætlunar (RÁ). Staðreyndin er sú að þessi virkjunarhugmynd var ekki metin í RÁ 1, heldur önnur útfærsla á virkjun í Skaftá (Skaftárvirkjun) sem gerði m.a. ráð fyrir því að búið væri að losa aur úr ánni með því að veita hluta hennar í Langasjó. Í öðru lagi er haft eftir framkvæmda- stjóra Suðurorku: „Efnislegu rökin fyrir að setja okkur [áhersla er greinarhöf- undar] í bið voru frekar slöpp. Hluti af því voru umræður um stækkun Vatnajökuls- þjóðgarðs …“ Í drögum að þingsályktun- artillögunni sem byggir á RÁ 2 segir að Búlandsvirkjun fari í biðflokk vegna þess að hugmyndin hafi komið seint fram og erfitt hafi verið að meta áhrif hennar, en veruleg óvissa ríkir um umhverfisáhrifin. Í þriðja lagi segir að Suðurorka ehf. hafi gert samninga við stærstan hluta vatns- réttarhafa vegna virkjunarinnar. Þetta er hrakið í grein eftir íbúa í Skaftártungu í Morgunblaðinu 29. mars sl. Þar kemur fram að einungis sé búið að semja við minnihluta þeirra aðila sem málið varðar. Framkvæmdastjóri Suðurorku segir einnig að Skaftárhrepp vanti sárlega búbót. Ég spyr: Er Búlandsvirkjun búbót þegar ljóst er að virkjunin skaðar þá atvinnuvegi sem Skaftárhreppur byggir á í dag, landbúnað og ferðamennsku, að ógleymdum óásættanlegum áhrifum á undirstöðu þessara atvinnugreina, náttúr- una sjálfa? Vatnasvið Skaftár var metið fimmta verðmætasta svæðið af 30 hjá faghópi I í 2. áfanga RÁ og Búlandsvirkjun var í hópi tíu vatnsaflsvirkjana sem myndu hafa hvað neikvæðust umhverfisáhrif. Sam- kvæmt skýrslu verkefnisstjórnar RÁ er svæðið sem Búlandsvirkjun tilheyrir í hópi þeirra svæða sem hæst skora á öllum sviðum náttúru- og menningarminja, en þó sérstaklega fyrir jarðminjar og vatnafar, landslag og víðerni. Virkjunin yrði rétt við Eldgjá og áhrifasvæði hennar víðfeðmt. Það er því mun ríkari ástæða að setja Búlandsvirkjun í verndarflokk en orkunýt- ingarflokk. Suðurorku í bið – Skaftársvæðið í vernd Orkumál Guðmundur Ingi Guðbrandsson framkvæmdastjóri Landverndar Ekkert traust til stjórnar Ríkisstjórn Geirs H. Haarde mældist í þjóðarpúls Gallup með 26,3 prósent stuðning í janúar 2009. Ljóst er að traustið var ekkert. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri græns, sagði traustið ekki endurvakið án samstarfs við þjóðina. Efna þyrfti til kosninga sem fyrst og veita nýrri ríkis- stjórn umboð. Steingrímur situr nú í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Sú mælist með 31,3 prósenta fylgi í þjóðarpúlsi og hefur engin stjórn mælst lægri en fyrrnefnd stjórn Geirs. Nú er komið annað hljóð í strokk Steinrgíms og hann sér enga ástæðu til að boða til kosninga. Fimm prósentustig skipta greinilega miklu. Lélegt PR eða heimsk þjóð? Nú þarf enginn að fara í grafgötur um að fáar ríkisstjórnir hafa þurft að taka fleiri erfiðar ákvarðanir en ríkisstjórn Jóhönnu. Eftir þrjú ár er traustið hins vegar lítið sem ekkert. Ráðherrar stæra sig reglulega af því hvað þeim gangi vel og hve ákvarðanir þeirra séu góðar. Fyrst svo er þá eru aðeins tvær mögulegar skýringar á fylgis- leysinu. Ríkisstjórnin er með verstu PR-menn í heimi í vinnu, eða þjóðin er einfaldlega of heimsk til að skilja hin góðu verk. Verkin eiga að tala Eftir stendur hins vegar að ekki er endilega heppilegt að stýra landinu eftir skoðanakönnunum. Stjórnar- flokkarnir fengu fylgi í kosningum út á stefnuskrá sína og síðan náðu þeir saman um stjórnarsáttmála. Eina marktæka mælingin á árangur er hvernig gengur að uppfylla þau verkefni; svo sem að semja við Evrópusambandið, leysa skuldavanda heimilanna, semja nýja stjórnarskrá og breyta kvótakerfinu. Og það er allt búið, er það ekki? - kóp, sh Dansaðu þig í form með einföldum sporum, skemmtilegri tónlist og góðum félagsskap. Jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna • Zumba - Þri og fim kl. 17:30 • Zumba Toning - Þri og fim kl. 16:30 • Þjálfari: Eva Suto - 4 vikur • Hefst . 12. apríl. Verð kr. 11.900 E fnahagslægð liggur yfir Íslandi. Hún skall á með látum og þrátt fyrir að ýmsir hafi gert sér grein fyrir að efnahags- kerfið rambaði á barmi falls þá kom hrunið aftan að þorra fólks. Dagana og vikurnar á eftir réði svartsýnin ríkjum og margir voru þeirrar skoðunar að hér myndi allt hrynja til grunna, innviðir samfélagsins laskast verulega, ef ekki ónýtast, atvinnuleysi nema jafnvel tugum prósenta og til þess gæti komið að hér syltu stórir hópar fólks heilu hungri. Sem betur fer hefur þessi svartasta mynd ekki gengið eftir. Vissulega eru ekki öll kurl komin til grafar varðandi afleið- ingar niðurskurðar til dæmis í heilbrigðis-, velferðar- og skóla- málum en eins og staðan er nú þá standa þessir innviðir þrátt fyrir að blóðtaka vegna niðurskurðar sé sums staðar allnokkur. Atvinnuleysi er hér vissulega meira en þjóðin hefur átt að venjast undangengna áratugi en síst meira en í fjölmörgum nágrannalöndum. Engu að síður er þjóðin ekki sérlega bjartsýn um þessar mundir. Væntingavísitala hefur lækkað og traust almennings á langflestum stofnunum samfélagsins eru í sögulegu lágmarki. Meðan stjórnmálamenn sem með völdin fara teikna upp mynd af samfélagi sem er að rísa úr rústum talar stjórnarandstaðan og ýmis hagsmunasamtök, sem ekki þykir ríkisstjórnin sér hagfelld, um að hér sé allt í ládeyðu og kalda koli. Raunveruleikinn er trúlega einhvers staðar þarna á milli. Fólksflóttagrýlan hefur verið fylgifiskur þessarar umræðu. Dregin hefur verið upp sú mynd að meira eða minna allir með annað hvort eða hvort tveggja, hæfileika og dugnað, séu farnir af landi brott eða á förum. Þessi fólksflótti muni hafa alvarlegar afleiðingar, jafnt félagslegar sem efnahagslegar. Úr þessari orðræðu mætti ráða að þær fáu hræður sem hér sitja eftir séu bæði illa menntaðar og dáðlausar og alls ekki færar um að halda uppi samfélagi. Í nýrri skýrslu sem Ólöf Garðarsdóttir mannfjöldasérfræðingur hefur unnið fyrir velferðarráðuneytið kemur fram að brottflutn- ingur frá Íslandi síðastliðin ár hafi síst verið meiri en á öðrum sam- dráttarskeiðum Íslandssögunnar. Í aðdraganda hrunsins, sem sagt í góðærinu svokallaða, fjölgaði fólki hér hratt. Árið 2009 fækkaði landsmönnum lítillega, eða um hálft prósentustig. Strax árið eftir var fólki hins vegar farið að fjölga á ný þótt fjölgunin sé vissulega minni en verið hefur undanfarna áratugi. Ef íslenskir ríkisborgarar eru skoðaðir sérstaklega kemur í ljós að brottflutningur þeirra er ekki meiri en áður. Ástæðan er væntanlega sú að ef frá er talinn Noregur þá er atvinnuástandið á Evrópska efnahagssvæðinu síst betra en hér á landi. Flestir Íslendingar sem héðan flytja fara því eðlilega til Noregs. Við lifum á tímum hreyfanleika fólks og fæstir vildu líklega breyta því mikið. Fólk er vinnuafl og það leitar á staði þar sem vantar fólk til vinnu. Ísland var þannig staður fyrir hrun en er það ekki nú um stundir. Íslendingar hafa að auki um aldir sótt menntun til annarra landa. Því munu þeir halda áfram. Sem fyrr munu alltaf einhverjir ílengj- ast og líklega frekar fleiri en færri meðan efnahagsástandið er í lægð. Fátt bendir hins vegar til að það mynstur breytist verulega, að þorri þeirra sem fara utan í nám komi víðsýnni og menntaðri heim og leggi til samfélagsins í samræmi við það. Hreyfanleiki fólks skiptir máli fyrir samfélagið: Fólksflóttagrýlan SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.