Fréttablaðið - 04.04.2012, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 4. apríl 2012 19
SETTU HREINNI
KRAFT Í ELDA-
MENNSKUNA
EKKERT MSG!
ENGIN TRANSFITA!
Eftir efnahagsáföllin miklu árið 2008 hefur reynt á hefð-
bundnar gjaldeyrisskapandi
greinar landsins, raunhagkerfið
íslenska, sem stóð eftir þegar
bólan sprakk. Sem betur fer
hafa þær greinar staðið undir
nafni. Það staðfesta tölur um
ferðamannafjölda, verðmæti
sjávarafurða og nýlegar hag-
vaxtartölur. Sérstaklega hefur
verið ánægjulegt að fylgjast
með mikilli aukningu umsvifa
í ferðaþjónustutengdum grein-
um úti um allt land. Á fyrsta
ársfjórðungi ársins 2012 nam
aukningin í komu erlendra
ferðamanna 22% frá fyrra
ári. Aukningin í mars einum
mældist 26%.
Til marks um umskiptin voru
ferðamenn í nýliðnum mars
tæplega helmingi fleiri en í
sama mánuði árið 2002. Þessi
aukni straumur til landsins nú
yfir vetrartímann skilar sér í
vaxandi mæli til alls landsins.
Umsvif í vetrarferðamennsku
hafa t.a.m. aukist talsvert á
Norðurlandi í vetur. Í ár gæti
fjöldi erlendra ferðamanna orðið
nálega 620 þúsund. Mitt mat er
reyndar að hann gæti orðið allt
að 650 þúsund þegar upp verður
staðið.
„Ísland allt árið“
og skemmtiferðaskip
Kynning á Íslandi sem ferða-
mannalandi á erlendum
mörkuðum hefur gengið vel.
Þar hefur farið saman gott sam-
starf fyrirtækja í greininni og
stjórnvalda. Þar ber einna hæst
markaðsátakið „Inspired by
Iceland“. Ferðaþjónustuaðilar
eru einnig sammála um mikinn
árangur nú þegar af sameigin-
legu átaki stjórnvalda og grein-
arinnar í vetrarferðamennsku-
átakinu „Ísland allt árið“. Á
komandi sumri verður metfjöldi
innlendra og erlendra flugfélaga
með áætlunarflug til landsins.
Nýjasta fréttin í því sambandi
er tilkynning EasyJet um heils-
ársflug frá London til Íslands.
Ákvörðun EasyJet að veðja á
Ísland sem nýjan áfangastað er
sérlega áhugaverð fyrir íslenska
ferðaþjónustu þar sem félagið
er 10. stærsta flugfélag í heimi
og það 5. stærsta í Evrópu með
þétt net um allt meginlandið og
raunar víðar.
Íslensku flugfélögin eru
einnig á mikilli siglingu eins
og sést hefur á nýlegum frétt-
um af stækkuðum flugflota og
auknu framboði Icelandair til
Bandaríkjanna, aukinni stund-
vísi og breyttu skipulagi Ice-
land Express og tilkomu WoW
air inn á markaðinn. Þá stefnir
í metfjölda skemmtiferðaskipa
til landsins á komandi sumri.
Samkvæmt upplýsingum Faxa-
flóahafna hafa nú þegar 77
erlend skemmtiferðaskip til-
kynnt um komu sína komandi
sumar. Áætlun Faxaflóahafna
miðar við 100 þúsund erlenda
gesti með skemmtiferðaskipum
í sumar samanborið við 63 þús-
und í fyrra. Það er 59% aukn-
ing! Helsta skýring er aukning
í komu stærri skemmtiferða-
skipa. Þessi aukning mun ekki
mælast í opinberum tölum um
fjölda erlendra ferðamanna þar
sem farþegarnir gista um borð
í skipunum en ekki á hótelum
og gistiheimilum. Það jákvæða
við þessa þróun er sú að skipin
stoppa nú mörg lengur en áður,
sum í 1-2 sólarhringa.
Fjárfesting
í innviðum
Mikil fjárfesting hefur átt sér
stað innan ferðaþjónustu á síð-
ustu árum. Hótelum og gisti-
heimilum hefur fjölgað mikið
víða um land og mun fjölga enn
frekar. Þá hefur fjölbreyttum
þjónustufyrirtækjum fjölgað.
Nú geta erlendir ferðamenn
valið um margar tegundir
afþreyingar þegar þeir heim-
sækja landið, t.d. fjallaleiðsögn,
hvalaskoðun og svo framvegis.
Tilkoma Hörpunnar og væntan-
legs hótels við hlið hennar mun
skapa ný tækifæri innan grein-
arinnar, sérstaklega til að halda
stórar ráðstefnur.
Eftir hraðan vöxt ferðaþjón-
ustunnar á síðustu árum er ein
helsta ógnunin mikill ágangur
á vinsæla staði. Til að ferða-
þjónustan geti áfram vaxið
og dafnað þarf að fjölga þeim
stöðum sem ferðamenn heim-
sækja, dreifa álaginu og einnig
og ekki síður bæta innviðina.
Það verður sameiginlegt verk-
efni fyrirtækjanna í greininni
og stjórnvalda.
Á heildina litið er útlitið bjart
fyrir ferðaþjónustuna. Vaxandi
umsvif munu skapa auknar
gjaldeyristekjur og bæta lífs-
kjör í landinu – ekki veitir af
upplífgandi tíðindum og vonandi
að sem flestir finni sig í að taka
þeim vel.
Ferðaþjónustan á fljúgandi siglingu 700.000
600.000
500.000
400.000
300.000
200.000
100.000
0
199
9
200
5
200
4
200
3
200
2
200
1
200
0
200
9
200
6
200
8
200
7
201
0
201
2s2011
262.605
620.000
565.611
Heimild: Ferðamálastofa, EVR
Fjöldi erlendra ferðamanna til Íslands
Ferðaþjónusta
Steingrímur J.
Sigfússon
viðskipta- og
efnahagsráðherra
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
199
9
200
5
200
4
200
3
200
2
200
1
200
0
200
9
200
6
200
8
200
7
201
0
201
2s2011
Fjöldi erlendra ferðamanna með skemmti-
ferðaskipum hjá Faxaflóahöfnum
27.574
62.673
Heimild: Faxaflóahafnir