Fréttablaðið - 04.04.2012, Side 26
26 4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR
Drómi hf. er hlutafélag sem inn-heimtir lán sem voru í eigu
SPRON og Frjálsa Fjárfestinga-
bankans og er að fullu í eigu slit-
astjórnar SPRON/Frjálsa fjárfest-
ingabankans. Það sem gerir Dróma
hf. frábrugðinn öðrum fjármála-
stofnunum er sá að Drómi hf. er
í raun innheimtufyrirtæki sem
hefur engan hag af því
að vinna með eða þjón-
usta sína viðskiptavini
þó forsvarsmenn Dróma
hf. hafi reynt af veik-
um mætti að halda öðru
fram.
Fyrirkomulagið sem
Drómi hf. starfar eftir er
frábrugðið öllu öðru sem
ríkið og Fjármálaeftirlit-
ið komu að og settu upp
eftir efnahagshrunið
2008. Engar skýringar
hafa fengist hvers vegna
þessi leið var kosin og
hvers vegna þeir sem
voru í viðskiptum við
Frjálsa fjárfestinga-
bankann og SPRON voru settir í
aðra aðstöðu en aðrir viðskiptavin-
ir íslenska bankakerfisins.
Það sem er hins vegar athyglis-
vert við þetta mál er sú staðreynd
að Drómi hf. er rekinn með ríkis-
ábyrgð. Ástæðan er sú að ríkið
gaf ríkisábyrgð fyrir innlánum
hjá SPRON sem flutt voru til
Arion Banka. Það er síðan verk-
efni Dróma hf. að innheimta lán
hjá viðskiptavinum og tryggja að
heimtur verði slíkar að ekki komi
til þess að ríkið verði fyrir tapi sbr.
áðurnefnda ríkisábyrgð vegna inn-
lána. Forsvarsmenn slitastjórnar
SPRON/Frjálsa fjárfestingabank-
ans hafa sagt stjórnvöldum að verð-
mæti útlánasafns þeirra sé um 10%
hærra en innlánatrygging ríkisins.
Þessi 10% gera það að verkum að
Drómi hf. fær að starfa áfram og
koma fram á slíkan hátt að þúsund-
ir manna sitja ekki við sama borð
og þeir sem skulduðu öðrum við-
skiptabönkum á Íslandi fyrir hrun.
Kj a r n i m á l s i n s
er hins vegar sá að
Drómi hf. er orðinn
eitt af óhreinu börnun-
um hennar Evu. Efna-
hags- og viðskiptaráð-
herra viðurkenndi í
símtali við mig að það
væri ótækt að Drómi
hf. yrði rekinn áfram á
sama hátt. Leysa þyrfti
málið og það sem fyrst.
Hann sagði enn frem-
ur að Fjármálaeftir-
litið bæri alla ábyrgð á
því að Drómi hf. hefði
verið stofnaður og ætti
sem eftirlitsaðili að
skoða málið ofan í kjöl-
inn. Dróma-kjölurinn hefur ekki
enn verið skoðaður því að er erfitt
að rannsaka það sem maður skap-
ar sjálfur. Það er einnig erfitt að
hirta þá sem maður skipar í stöð-
ur og braut brauð með í mötuneyti
FME til fjölda ára.
Helgi Hjörvar, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar, hefur
lofað að halda fund með undir-
rituðum, FME, efnahags- og við-
skiptaráðherra og umboðsmanni
skuldara til að ræða málefni skuld-
ara hjá Dróma hf. en erfitt virðist
vera að boða þann fund. Það sem
undirritaður leggur til að stjórn-
völd beiti sér fyrir er eftirfarandi
þar sem ríkið hefur jú ábyrgst
rekstur Dróma hf. með ríkis-
ábyrgð:
• Að úttekt verði gerð á rekstri
Dróma hf. og kostnaði við rekst-
ur félagsins.
• Að óháð endurskoðunarfyrirtæki
geri úttekt á lánasafni Dróma hf.
með tilliti til þess hver munur-
inn sé á milli innlánatrygging-
ar og útlána. Vert er að benda á
að auðvelt er að sjá hvað Drómi
hf. metur lánasafnið á með því
að skoða hvað þær eignir sem
Drómi hefur leyst til sín á nauð-
ungarsölum hafa selst á fast-
eignamarkaði. Fróðir menn telja
að útlán muni ekki duga fyrir
innlánatrygginu ríkisins.
• Að lausafjárstaða Dróma hf.
verði skoðuð.
Seðlabanki Íslands er einn af
stærstu kröfuhöfum Dróma hf. í
gegnum eignasafn sitt. Það ættu
því að vera hæg heimatökin að
taka á málefnum Dróma hf. í eitt
skipti fyrir öll. Það er ótækt að
stjórnvöld og opinber eftirlitsaðili
með stjórnvaldsákvörðun mis-
muni fólki eins og gert er í málefn-
um viðskiptavina Dróma og ann-
arra fjármálastofnana á Íslandi.
Það er kominn tími á að stjórnvöld
leiðrétti málefni skuldara Dróma
og biðji þennan hóp afsökunar á
framkomunni sem þeir hafa mátt
þola.
Drómi hf. – innheimtu-
fyrirtæki með ríkisábyrgð
Árið 2010 voru lögskilnaðir 563 og sama ár urðu sambúðarslit
594. Lögskilnaðirnir snertu 641
barn en í sambúðarslitum var 371
barn.
Skilnaður hefur í för með sér
breytingar á daglegu lífi fjöl-
skyldunnar, ekki síst fyrir börn-
in, sem óska þess sjaldnast að fjöl-
skyldan splundrist. Margt breytist
hjá barni í kjölfar skilnaðar, fyrir
utan að missa annað foreldri af
heimilinu, verða oft breytingar á
nánasta umhverfi, svo sem flutn-
ingar og skólaskipti. Samvist-
arslitum fylgja tilfinningaleg-
ir, fjárhagslegir og félagslegir
erfiðleikar, mismiklir en aldrei
auðveldir.
Opinber stuðningur til foreldra
eftir skilnað fylgir alltaf lögheim-
ili barns, sem getur einungis verið
hjá öðru foreldrinu, eins og barna-
lögin kveða á um. Má þar nefna
barnabætur. Þær rata eingöngu til
þess foreldris sem er með lögheim-
ili barns þrátt fyrir sameiginlega
forsjá og þrátt fyrir að barn hafi
jafna búsetu hjá báðum foreldrum.
Meðlagið fylgir yfirleitt lög-
heimili barns. Það gildir einu
hvort barnið hefur jafna búsetu
hjá foreldrum sínum, eða hvort
þeir skipta kostnaði vegna
barnsins.
Það sama má segja um húsa-
leigubætur, þær fylgja lögheim-
ili barns við útreikning, þar sem
hallar verulega á það foreldri,
sem barnið hefur EKKI lögheim-
ili hjá. Þessi ójöfnuður bitnar á
börnunum.
Það foreldri, sem fær lítinn opin-
beran stuðning og hefur mikil
útgjöld (svo sem háan húsnæðis-
kostnað) þarf að afla töluverðra
tekna, til að geta boðið barni sínu
sómasamlegt heimili og sinnt
grunnþörfum þess.
Eftir lögfestinguna um sam-
eiginlega forsjá árið 2006, átti
sér stað mikil og jákvæð breyt-
ing, með aukinni þátttöku fráskil-
inna feðra við umönnun og uppeldi
barna sinna. Þróunin hefur verið
hröð sl. ár. Lög um húsaleigu-
bætur og barnabætur hafa ekki
fylgt í kjölfarið, en eins og sjá má,
er þarna á ferðinni mismunun á
greiðslum til foreldra barna eftir
samvistarslit. Þetta þarf að leið-
rétta þar sem það brýtur í bága
við barnalögin sem kveða skýrt á
um að alltaf skuli hafa hagsmuni
barna að leiðarljósi við skilnað
foreldra.
Opinber stuðningur
til fráskilinna foreldra
Fjármál
Björn Steinbekk
Kristjánsson
verkefnastjóri
Það er kominn
tími á að
stjórnvöld
leiðrétti mál-
efni skuldara
Dróma og biðji
þennan hóp
afsökunar …
Samfélagsmál
Oktavía
Guðmundsdóttir
félagsráðgjafi hjá Félagi
einstæðra foreldra
Opinber stuðningur til foreldra eftir
skilnað fylgir alltaf lögheimili barns, sem
getur aðeins verið hjá öðru foreldrinu …
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
14
5
8
si
m
in
n.
is
/v
ef
ve
rs
lu
n
Ertu á leiðinni
í ferðalag?
*Í bo›i fyrir 3GB-30GB pakka. Gildir me›an birg›ir endast.
Í dag bjóðum við netlykil á 0 kr. með öllum
nýjum Netlyklaáskriftum gegn 6 mánaða bindingu.
4GB minnislykill fylgir með. Gríptu tækifærið
og græjaðu þig upp fyrir ferðalagið.*
Netlykill á 0 kr. í dag og
4GB minnislykill í kaupbæti
með Símanum