Fréttablaðið - 04.04.2012, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2012
Tiger Woods er sá yngsti sem hefur sigrað á Mastersmótinu og Jack Nicklaus er sá
elsti. Nicklaus var 46 ára þegar hann sigraði árið 1986. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
● SÁ ELSTI OG SÁ YNGSTI Elsti maðurinn sem farið hefur með
sigur á mótinu var Jack Nicklaus, en hann var 46 ára og 82 daga gam-
all þegar hann fór með sigur af hólmi árið 1986. Yngsti sigurvegarinn frá
upphafi er Tiger Woods, sem var 21 árs og 104 daga gamall þegar hann
vann mótið í fyrsta sinn árið 1997.
Yngsti þátttakandinn í Meistaramótinu frá upphafi er Matteo Manass-
ero, sem var 16 ára og 356 daga gamall á mótinu árið 2010.
Þá hefur Gary Player tekið oftast þátt í mótinu, eða alls 52 sinnum.
Þá varð Kanadamaðurinn Mike Weir fyrsti örvhenti maðurinn til að
bera sigur úr býtum á Meistaramótinu, árið 2003. Phil Mickelson er
einnig örvhentur, en hann hefur þrívegis unnið keppnina, árin 2004,
2006 og 2010.
Öðru hverju hefur um-
ræðan um skort á kven-
fólki í Augusta National-
klúbbnum skotið upp
kollinum. Fyrir níu
árum gerði Martha
Burke, formaður Al-
þjóðasamtaka kvenna
(NOW), alvarlegar at-
hugasemdir við þá stað-
reynd að kona hefði
aldrei verið tekin inn í
klúbbinn. Hún boðaði til mótmæla
og náði að vekja máls á umræðunni,
án teljanlegs árangurs þó.
Í ár gæti þó farið að hitna undir
kolunum í þessum efnum fyrir al-
vöru. Ástæðan er að nýr forstjóri
hjá IBM, Virginia M. Rometty,
er kona. Í áranna rás hefur for-
stjóra IBM-fyrirtæk-
isins sjálfkrafa verið
boðin aðild að Augusta-
klúbbnum, en þeir hafa
til þessa allir verið karl-
kyns. Það er líka ólík-
legt að þessi regla verði
felld niður, þar sem
IBM er einn af þremur
stærstu styrktaraðilum
Meistaramótsins.
Sitjandi stjórnarfor-
maður klúbbsins, Billy Payne,
hefur enn ekki gefið frá sér yfir-
lýsingu um hver ákvörðun stjórn-
arinnar verður í þessu máli, en
hefur lofað niður stöðu að Meist-
aramótinu loknu. Payne sagðist
ekki vilja skyggja á mótið sjálft
með umræðunni.
Fær kona loksins
inngöngu í klúbbinn?
Virginia „Ginni” Rometty
Martin Kaymer vonast til þess að
ná loksins tökum á Augusta-vellin-
um en Þjóðverjinn hefur enn ekki
náð að komast í gegnum niður-
skurðinn á þessu móti. Kaymer er
í sjötta sæti heimslistans og hefur
sigrað á einu risamóti á ferlinum,
PGA-meistaramótinu. Á æfinga-
hring fyrir mótið í ár sló Kaymer
„sýningarhögg“ á 16. braut þar
sem hann lét boltann fleyta kell-
ingar á leið sinni að flötinni. Högg-
ið reyndist fullkomið og fór bolt-
inn ofan í holuna – golf er jú ein-
föld íþrótt. Það varð allt vitlaust
á meðal áhorfenda við 16. flötina
sem eru ávallt fjölmargir á æfinga-
dögunum.
Þetta högg skiptir hins vegar
engu máli fyrir Kaymer sem var
um tíma í efsta sæti heimslistans.
Kaymer á ekki góðar minningar
frá Augusta-vellinum enda aldrei
komist í gegnum niðurskurðinn í
þau fjögur skipti sem hann hefur
tekið þátt. Hinn 27 ára gamli Kay-
mer segir að hann sé bjartsýnn
fyrir mótið í ár. „Mér líður betur
og það er meira sjálfstraust til
staðar. Ég þarf að finna leiðir til
þess að koma boltanum í leik,“
sagði Kaymer í gær en boltaflug
hans í teighöggunum hefur ekki átt
vel við Augusta-völlinn. Hann lék
tvo æfingahringi með landa sínum
Bernhard Langer sem tvívegis
hefur sigrað á Mastersmótinu.
Kaymer í erfiðleikum
með Augusta-völlinn
Martin Kaymer hefur enn ekki komist í
gegnum niðurskurðinn á Masters.
Heilsulindir í Reykjavík
PÁSKASUND
www.itr.is ı sími 411 5000
Afgreiðslutími um páska
Annar í Páskum
9. apríl
Páskadagur
8. apríl
Laugardagur
7. apríl
Föstud. langi
6. apríl
Skírdagur
5. apríl
ÁRBÆJARLAUG
BREIÐHOLTSLAUG
GRAFARVOGSLAUG
KLÉBERGSLAUG
LAUGARDALSLAUG
SUNDHÖLLIN
VESTURBÆJARLAUG
kl. 11-19 kl. 10-18 kl. 9-17 kl. 10-18 kl. 11-19
kl. 10-18 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 10-18
kl. 10-18 Lokað kl. 10-18 Lokað kl. 10-18
kl. 11-15 Lokað kl. 11-15 Lokað kl. 11-15
kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22
kl. 10-18 Lokað kl. 8-16 Lokað kl. 10-18
kl. 11-19 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 11-19