Fréttablaðið - 04.04.2012, Qupperneq 40
4. APRÍL 2012 MIÐVIKUDAGUR10 ● fréttablaðið ● mastersmótið 2012
HLYNUR BÆRINGSSON
TIGER WOODS
Körfuknattleiksmaðurinn Hlynur Bæringsson, sem
leikur með sænska liðinu Sundsvall, hefur aðeins
verið að fikra sig áfram í golfíþróttinni en hann
hefur trú á því að Tiger Woods standi uppi sem
sigurvegari á Mastersmótinu í ár. „Ég hef trú á því
að Tigerinn fari aftur í gang. Hann hefur eins og
allir vita ekki náð fyrri getu eftir alla skandalana
og verið í miklu basli. Ég hef mikla samúð með mönnum sem eru í
basli á golfvellinum, enda þekki ég eingöngu þá hliðina á sportinu,
að ströggla. En eins og ég trúi á að einn daginn muni mínir sönnu
golfhæfileikar skína í gegn, þá trúi ég því að Tiger nái loksins að
að nálgast fyrri styrk og það mun skila honum sigri í mótinu,“ segir
Hlynur Bæringsson.
SIGURÐUR HLÖÐVERSSON
RORY MCILROY
Sigurður Hlöðversson eða „Siggi Hlö“ er gríðar-
lega áhugasamur kylfingur og hann ætlar að
fylgjast vel með Mastersmótinu. Útvarpsmað-
urinn efast um að Tiger Woods nái að landa sigri
í fimmta sinn á ferlinum. „Ég veit að allra augu
beinast að Tiger vegna þess að hann náði loksins
að vinna mót. Ég sá hann reyndar vinna þetta
sama mót árið 2009 þegar ég fór og elti hann á Bay Hill. Held að það
hafi verið síðasta mótið sem hann vann. Ég held að hann vinni ekki
Masters í ár, hann á við smá meiðsli að stríða og er ekki enn kominn í
sitt besta form. Ég held með Rory McIlroy, finnst hann vera sá sem er
að taka við keflinu af Tiger næstu 10 árin. Hann hefur þroskast mikið
sem leikmaður og nú held ég að græni jakkinn verði hans. Margir tala
um að Phil Michelson muni gera harða hríð að jakkanum en ég spái
að hann annaðhvort komist ekki í gegnum niðurskurðinn eða rétt
merji það að komast áfram,“ segir Siggi Hlö.
RÍKHARÐUR DAÐASON
RORY MCILROY
Norður-Írinn Rory McIlroy er efstur á listanum hjá
Ríkharði Daðasyni, fyrrum landsliðsframherja í
knattspyrnu. Ríkharður hefur eins og margir aðrir
afreksíþróttamenn fengið mikla golfdellu eftir að
ferlinum lauk. „Rory McIlroy sýndi í fyrra að hann
getur spilað á Augusta, þó hann hafi skort reynslu
til að klára mótið. Hann kom gríðarlega öflugur
til baka aðeins nokkrum vikum síðar og rúllaði yfir samkeppnina á
US Open þegar hann vann með 8 höggum. Jafnframt hefur hann
verið að spila vel undanfarið og fór í fyrsta sinn í efsta sæti heims-
listans þegar hann vann Honda Classic um daginn og lenti í þriðja
sæti vikuna á eftir á Cadillac Championship. Rory McIlroy fær græna
jakkann í fyrsta sinn á sunnudaginn,“ segir Ríkharður Daðason.
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON
TIGER WOODS
Tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson er ekki í
vafa um hver sigrar á Mastersmótinu í ár og hann
hefur trú á reynslumiklum bandarískum kylf-
ingum. „Þetta er mjög einfalt. Tiger Woods sigrar.
Hann er nú á ný kominn með gamla blóðbragðið
í munninn, Phil Mickelson kemur þar næst í
kjölfarið,“ segir Eyjólfur Kristjánsson en hann hefur
stundað golfíþróttina af krafti og er án efa einn sá allra besti úr röðum
tónlistarmanna á Íslandi. Eða svo segir sagan.
Það hefur sjaldan ríkt eins mikil eftirvænting fyrir
fyrsta risamót ársins í golfi enda margir líklegir til
þess að gera atlögu að titlinum. Veðbankar eru flest-
ir með Tiger Woods sem líklegan sigurvegara en
ungstirnið Rory McIlroy frá Norður-Írlandi er einn-
ig ofarlega á þeim lista. Ekki má gleyma Englend-
ingunum Luke Donald og Lee Westwood en þeir eru
í hópi þeirra sem hafa aldrei náð að sigra á risamóti
á ferlinum. Donald er í efsta sæti heimslistans en
Westwood er í því þriðja. Skiptar skoðanir eru um
hver muni standa uppi sem sigurvegari en viðmæl-
endur Fréttablaðsins hafa aðeins trú á því að tveir
kylfingar komi til greina sem sigurvegar. Og það
kemur víst fáum á óvart að þeir eru Tiger Woods og
Rory McIlroy. Fréttablaðið fékk nokkra áhugasama
kylfinga til þess að spá fyrir um sigur vegarann í ár,
en spámennirnir eru allir þekktir fyrir aðra hluti
en golf.
Hnífjöfn barátta milli Tigers
Woods og Rory McIlroy
Bestu kylfingar heims sem enn
hafa ekki náð að landa sigri á einu
af stórmótunum fjórum vilja alls
ekki bera þann titil að vera „sá
besti“ sem hefur ekki náð risa-
titli. Phil Mickelson var ótrúlega
lengi með þennan titil þar til hann
náði loksins að vinna Mastersmót-
ið árið 2004. Jason Day frá Ástral-
íu og landi hans Adam Scott voru
líklegir til afreka á Mastersmótinu
í fyrra ásamt Norður-Íranum Rory
McIlroy – en sá síðastnefndi var
með fjögurra högga forskot fyrir
lokadaginn. Allir vita hvernig það
endaði en McIlroy svaraði fyrir
sig átta vikum síðar þegar hann
vann Opna bandaríska meistara-
mótið með yfirburðum.
Golfsérfræðingurinn Justin
Ray, sem skrifar fyrir bandaríska
fréttavefinn ESPN, hefur reiknað
út hvaða 10 kylfingar skipa listann
sem enginn vill vera á. „Næstum
því sigurvegari á stórmóti-list-
inn“.
Eins og gefur að skilja bein-
ist athyglin að Englendingunum
Luke Donald og Lee Westwood
sem skipa 1. og 3. sæti heims-
listans. Þeir hafa enn ekki náð
að brjóta ísinn en sá sem skipar
efsta sæti á þessum lista er Spán-
verjinn Sergio Garcia. Á ferlinum
hefur Garcia náð þeim árangri að
enda 17 sinnum á meðal 10 efstu
á stórmóti. Frá árinu 2000 hefur
Garcia verið í þriðja sæti eða ofar
fyrir lokadaginn á sex stórmót-
um. Garcia hefur ekki gert nein-
ar rósir á Mastersmótinu á und-
anförnum árum – reyndar hefur
hann ekki endað ofar en 35. sæti
frá árinu 2004.
Hver er efstur á „næstum því“ listanum?
● NÆSTUM ÞVÍLISTINN ER ÞANNIG SKIPAÐUR
STIGAÚTREIKNINGURINN ER BYGGÐUR Á
ÚTREIKNINGUM TÖLFRÆÐITEYMIS ESPN
1. Sergio Garcia ...........................Spánn ....................... 34,2 stig
2. Lee Westwood .........................England ................. 31,8 stig
3. Steve Stricker ..........................Bandaríkin ............24,9 stig
4. Dustin Johnson ......................Bandaríkin ....................21 stig
5. Luke Donald .............................England .................... 20,3 stig
6. Adam Scott ................................Ástralía ...................... 20,2 stig
7. Jason Day ...................................Ástralía ...................... 18,7 stig
8. K.J. Choi .......................................Suður-Kórea ........... 18,3 stig
9. Miquel Angel Jimenez .......Spánn ........................ 16,1 stig
10. Nick Watney ..............................Bandaríkin ............... 14,9 stig
Rory McIlroy og Tiger Woods
verða án efa í baráttunni um
græna jakkann.
Sergio Garcia