Fréttablaðið - 04.04.2012, Síða 64
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR48
sport@frettabladid.is
HEIÐAR HELGUSON spilaði með varaliði QPR í 2-1 tapi fyrir varaliði West Ham
í gær. Hann hefur verið lengi frá vegna meiðsla í nára en síðast spilaði hann með
aðalliðinu í lok janúar. DJ Campbell og Djibril Cisse spiluðu einnig með QPR í gær.
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið sækir Belgíu heim í dag í
afar mikilvægum leik í undan-
keppni EM.
Íslenska liðið á toppnum með
13 stig eftir fimm leiki en Belgía
í öðru sæti með 11 stig eftir sex
leiki. Noregur kemur svo þar á
eftir með 9 stig eftir fimm leiki.
Sigur í dag myndi fara langt
með að fleyta íslenska liðinu inn
á EM en það verður ekki auð-
velt eins og íslenska liðið fékk
að reyna í fyrri leik liðanna sem
lyktaði með markalausu jafntefli.
„Þetta er mjög mikilvægur
leikur. Allar stelpurnar eru heilar
og við náum vonandi að skora
gegn þeim núna,“ sagði Sigurður
Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálf-
ari en hvað lærði liðið af fyrri
leiknum?
„Við höfum skoðað þann leik
vel og hann var ekki illa spilaður
og við fengum færi. Það vantaði
að klára þau sem og einbeitingu.
Við spilum okkar bolta áfram og
eigum að vera sterkari en þær.“
Sigurður segir að það yrði ekki
áfall ef liðinu mistækist að vinna
leikinn en veit vel að sigur setur
íslenska liðið í góða stöðu.
„Við eigum eftir að spila við
Norðmenn úti í lokaleiknum og
markmiðið er að vera búnar að
vinna riðilinn fyrir þann leik. Þá
þurfum við helst að vinna þennan
leik.“ - hbg
Stelpurnar í eldlínunni í dag:
Afar mikilvæg-
ur leikur
FAGNAÐ Stelpurnar okkar fagna vonandi
mörkum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Lokaúrslitin um
Íslandsmeistaratitil kvenna hefjast
í kvöld í Ljónagryfjunni þegar
bikarmeistarar Njarðvíkur taka
á móti Íslandsmeistarabönunum
í Haukum. Liðin enduðu í öðru
og fjórða sæti deildarinnar og
slógu Snæfell og Keflavík út úr
undanúrslitunum.
Liðin hafa átt mismundi gengi
að fagna í úrslitaeinvíginu um
Íslandsmeistaratitilinn. Haukalið-
ið hefur þrisvar sinnum áður kom-
ist alla leið í úrslitin og í öll þrjú
skiptin unnið titilinn. Njarðvíkur-
liðið komst í úrslitin í fyrsta sinn í
fyrra en tapaði þá 3-0 á móti Kefla-
vík. Á sama tíma og Haukakonur
hafa unnið 9 af 12 leikjum sínum í
lokaúrslitum en Njarðvíkurkon-
ur bíða enn eftir sínum fyrsta
sigri.
Haukaliðið hefur verið í
miklum ham og eru ósigrað-
ar síðan að liðið fékk banda-
ríska miðherjann Tierny Jenk-
ins. Haukar urðu aftur á móti
fyrir miklu áfalli í öðrum leikn-
um á móti Keflavík þegar tveir
byrjunarliðsleikmenn liðsins slitu
krossband, stigahæsti íslenski
leikmaðurinn Íris Sverrisdóttir og
fyrirliðinn Guðrún Ósk Ámunda-
dóttir. Liðið rassskellti Keflavík
reyndar án þeirra í þriðja leikn-
um en fékk þá aðeins
3 stig af bekknum og fá lið mega
við því að missa tvo lykilmenn á
þessum tímapunkti.
Njarðvíkurkonur eru því
kannski sigurstranglegri enda
reynslunni ríkari frá því í fyrra.
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari
Njarðvík-
ur, er að
fara með
kvenna-
lið í fjórða
s i n n í
úrslit en
lið hans
(Keflavík
2004-
2006)
og Njarðvík síðustu tvö tímabil
hafa alltaf farið alla leið í úrslita-
einvígið. Sverrir Þór gerði Kefla-
vík að meisturum 2005 en hefur
fengið silfur í tvö síðustu skipti,
2006 með Keflavík og 2011 með
Njarðvík.
Liðin hafa ekki mæst síðan að
Tierny Jenkins kom til Hauka en
það er eflaust enn í fersku minni
hjá leikmönnum liðanna þegar
liðin mættust í undanúrslitum
bikarsins um miðjan febrúar.
Njarðvík vann þá tveggja stiga
sigur, 75-73, í framlengdum leik
þar sem lokakarfa Hauka var
dæmd ógild af því að tíminn var
runninn út.
Óvissan í kringum brott-
hvarf Írisar og Guðrúnar
þýðir að það erfitt er að
spá í hvernig liðin passa
nú upp á móti hverju öðru
og hvaða þýðingu fjór-
ir sigrar Njarðvíkur í inn-
byrðisleikjum liðanna hafi.
Það bíða því allir spenntir eftir
fyrsta leiknum sem hefst klukkan
19.15 í Njarðvík í kvöld. - óój
Lokaúrslit Iceland Express-deildar kvenna í körfubolta hefjast í kvöld í Ljónagryfjunni í Njarðvík:
Haukar aldrei tapað – Njarðvík aldrei unnið
TVÆR GÓÐAR Shanae
Baker-Brice úr
Njarðvík og Jence
Ann Rhoads úr
Haukum.
Landsleikur í handbolta
Ísland - Noregur 34-34 (18-15)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson
8/1 (11/1), Snorri St. Guðjónsson 6 (8/1), Ásgeir
Örn Hallgrímsson 4 (5), Aron Pálmarsson 4 (10),
Vignir Svavarsson 3 (4), Róbert Gunnarsson 3
(5), Ólafur Stefánsson 3 (6), Rúnar Kárason 2
(2), Arnór Atlason 1 (2), Þórir Ólafsson (2).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 12 (39,
31%), Aron Rafn Eðvarðsson 2 (9, 22%).
Hraðaupphlaup: 7 (Guðjón Valur 3, Snorri Steinn
1, Ásgeir Örn 1, Vignir 1, Rúnar 1)
Fiskuð víti: 2 (Guðjón Valur 1, Vignir 1)
Utan vallar: 12 mínútur.
Markahæstir hjá Noregi: Bjørnsen 5, Myrhol 5,
Tønnesen 5, Klev 5, Hippe 4, Lie Hansen 4.
Varin skot: Medhus 9, Dahl 3.
Hraðaupphlaup: 7. Fiskuð víti: 1
Utan vallar: 6 mínútur.
Meistaradeild Evrópu
FJÓRÐUNGSÚRSLIT
Barcelona - AC Milan 3-1
1-0 Lionel Messi, víti (11.), 1-1 Antonio Nocerino
(32.), 2-1 Messi, víti (41.), 3-1 Andres Iniesta (53.)
Barcelona vann samanlagt, 3-1.
Bayern München - Marseille 2-0
1-0 Ivica Olic (13.), 2-0 Ivica Olic (37.).
Bayern München vann samanlagt, 4-0.
ÚRSLIT
Byrjunarlið Íslands:
Þóra B. Helgadóttir markvörður
Rakel Hönnudóttir hægri bakvörður
Katrín Jónsdóttir miðvörður
Sif Atladóttir miðvörður
Hallbera G. Gísladóttir vinstri bakvörður
Edda Garðarsdóttir miðjumaður
Sara Björk Gunnarsdóttir miðjumaður
Dagný Brynjarsdóttir miðjumaður
Fanndís Friðriksdóttir hægri kantur
Hólmfríður Magnúsdóttir vinstri kantur
Margrét Lára Viðarsdóttir sóknarmaður
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson tilkynnti í gær byrjunar-
lið Íslands í leiknum gegn Belgíu
í kvöld. Edda Garðarsdóttir er
í byrjunarliðinu en hefur ekki
spilað með liðinu síðan í maí á
síðasta ári vegna meiðsla. Edda
leikur í kvöld sinn 90. A-landsleik
frá upphafi en aðeins fyrirliðinn
Katrín Jónsdóttir á fleiri leiki að
baki. Hún er á sínum stað í vörn
Íslands í kvöld og leikur þá sinn
116. landsleik.
Þær Sif Atladóttir og Dagný
Brynjarsdóttir koma aftur inn í
liðið eftir meiðsli en þær misstu
af æfingamótinu á Algarve í
Portúgal í síðasta mánuði, rétt
eins og Edda. - esá
Byrjunarlið Íslands í kvöld:
Edda leikur 90.
landsleikinn
REYND Edda Garðarsdóttir í leik með
íslenska landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Lionel Messi bætti enn
í markasarpinn sinn þegar að
Barcelona tryggði sér sæti í und-
anúrslitum Meistaradeildarinnar
með 3-1 sigri á AC Milan. Messi
skoraði tvívegis, í bæði skiptin úr
vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
Messi hefur nú skorað fjór-
tán mörk í Meistaradeildinni á
tímabilinu sem er met. Alls hefur
hann skorað 51 mark í keppninni
og er orðinn þriðji markahæsti
leikmaðurinn í sögu keppninnar.
Hann varð jafnframt sá yngsti til
að komast yfir 50 mörk.
Bayern München lenti ekki í
vandræðum gegn Marseille og
tryggði sæti sitt í undanúrslitun-
um með samanlögðum 4-0 sigri.
- esá
Meistaradeild Evrópu í gær:
Barcelona og
Bayern áfram
ÞRÍR VINIR Xavi, Iniesta og Messi fagna
marki í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI „Vörnin var alls ekki
nógu góð hjá okkur. Svo geng-
ur okkur illa að glíma við það er
þeir keyra á okkur hraða miðju en
þeir skora 15 slík mörk í leiknum.
Tæknifeilarnir líka allt of marg-
ir og við oft að kasta frá okkur
boltanum á fáránlegan hátt. Þetta
tvennt var alls ekki nógu gott,“
sagði Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari eftir leikinn.
Það verður ekki sagt að Norð-
menn hafi mætt til leiks með sterkt
lið til leiks enda vantaði nánast
heilt byrjunarlið af lykilmönnum
hjá Noregi og mörg óþekkt andlit
mætt til leiks. Íslenska liðið aftur
á móti gríðarsterkt enda búið að
endurheimta þá Ólaf Stefánsson
og Snorra Stein Guðjónsson.
Stemningar- og andleysi
Íslenska liðið virtist ekki hafa mik-
inn áhuga á því að spila við B-lið
Noregs framan af því stemningar-
og andleysi einkenndi leik liðsins.
Ungu Norðmennirnir voru aftur
á móti til í að sýna sig fyrir þjálf-
aranum og nýttu sér slakan leik
íslenska liðsins. Þeir héngu í okkar
mönnum nær allan hálfleikinn og
munaði aðeins þrem mörkum í
hálfleik, 18-15. Ef Magnus Dahl
hefði varið eitthvað í norska mark-
inu hefði staðan líklega verið jöfn.
Ekki tók við mikið betra í síðari
hálfleik. Sama andleysið var yfir
liðinu og þá sérstaklega í varnar-
leiknum. Norðmenn gengu á lagið
og náðu mest þriggja marka for-
skoti er stundarfjórðungur lifði
leiks. Þá ákváðu íslensku strákanir
að rífa sig upp. Þeir komu til baka,
komust yfir en misstu svo aftur
niður forskotið. Þeir fengu tæki-
færi til að klára leikinn í lokin en
allt kom fyrir ekki. Frekar pínlegt
jafntefli niðurstaðan.
Sóknarleikur íslenska liðsins
var líkt og oftast í fínu lagi og það
er fínt að skora 34 mörk. Varnar-
leikurinn var aftur á móti hrein-
asta hörmung nær allan leikinn
og strákarnir verða að vera miklu
einbeittari ef þeir ætla ekki að
lenda illa í því í Króatíu.
Fengu gula spjaldið
Til þess að komast á Ólympíuleik-
ana þarf Ísland að leggja tvö lið að
velli sem eru fyrir fram mun slak-
ari en íslenska liðið. Rétt eins og
þetta B-lið Noregs. Ef menn gæta
ekki að sér og mæta almennilega
stemmdir til leiks í leikina gegn
Síle og Japan í Króatíu þá gæti
farið illa. Það má því segja að við-
vörunarbjöllurnar klingi eftir
þennan leik og strákarnir fara út
með gula spjaldið. Þeir vita nú vel
hvað getur gerst ef þeir mæta ekki
tilbúnir.
„Þessi leikur er viðvörun fyrir
okkur. Það er ekkert gefið í þess-
um bransa. Það er ekki hægt að
fara í verkefnin af hálfum hraða.
Ég held að menn verði tilbúnari
þegar út í alvöruna kemur og við
getum lagað það sem aflaga fór í
þessum leik,“ sagði Guðmundur
sem var samt sáttur við sóknar-
leikinn. henry@frettabladid.is
Viðvörunarbjöllur klingja
Strákarnir okkar gerðu pínlegt jafntefli, 34-34, gegn B-liði Noregs í gær. Leikur-
inn alls ekki nógu góður og þá sérstaklega varnarleikurinn. Hann þarf að laga,
sem og hugarfar leikmanna, ef liðið ætlar að komast á Ólympíuleikana.
EINBEITTUR Vignir Svavarsson skýtur að marki í hraðaupphlaupi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁHYGGJUFULLUR Guðmundur Guð-
mundsson fylgist með á hliðarlínunni í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI