Fréttablaðið - 04.04.2012, Page 66

Fréttablaðið - 04.04.2012, Page 66
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR50 golfogveidi@frettabladid.is Okkar hlutverk er að dreifa fjölpósti, blöðum, tímaritum, bréfum og vörum. Póstdreifing - Suðurhraun 1 - 210 Garðabær - Sími 585 8300 - www.postdreifing.is Heyrðu í okkur næst þegar þú þarft á öruggri og hagstæðri dreifingarþjónustu að halda. Það er mikið að gerast hjá Golfklúbbi Grindavíkur um þessar mundir. Í sumar verða fimm nýjar holur opnaðar auk þess sem verið er að byggja nýjan golf- skála. Völlurinn kemur ótrúlega vel undan vetri og er ástandið á flötunum eins og best gerist á sumri til. „Völlurinn er í lygilega góðu ástandi, ég hef aldrei séð flatirn- ar svona góðar í mars. Það er búið að valta þær og það er eins og við séum að spila í maí,“ segir Jón Júlíus Karlsson, ritari og formað- ur mótanefnd- ar Golfklúbbs Grindavíkur. Húsatóftavöll- ur kemur ótrú- lega vel undan vetri og er mál manna að hann hafi aldrei litið betur út en nú. „Völlurinn hefur tekið vel við sér og er í raun alveg frábær. Við erum í skýjunum með hann en þetta er allt okkar frábæra vallarstjóra að þakka,“ segir Jón Júlíus. Þegar er búið að halda tvö mót á vellinum og voru bæði spiluð á sumarflötum. Þriðja mótið verður svo haldið á laugardaginn kemur, svokallað Skálamót en allur ágóð- inn rennur til styrktar nýjum skála sem Golfklúbburinn er að byggja. „Við héldum eitt svona mót og náðum þá að niðurgreiða parketið á nýja skálann og næst á döfinni er að niðurgreiða eldhústækin,“ segir Jón Júlíus. Aðeins hafa þrettán holur verið á Húsatóftavelli síðustu ár en um miðjan júní eða í byrjun júlí verða opnaðar fimm nýjar brautir – völl- urinn verður þá fullvaxinn. „Völl- urinn verður með skemmtilegri almenningsvöllum landsins eftir að við opnum nýju holurnar,“ segir Jón Júlíus. Hann segir uppganginn í golfinu í Grindavík hafa geng- ið vonum framar undanfarin ár. „Það eru um 220 í klúbbnum núna en þeim gæti fjölgað stíft í ár. Við erum í raun bara að biðla til fólks að ganga í klúbbinn,“ segir ritarinn en árgjaldið er um 55 þúsund krón- ur fyrir einstaklinga. Þá er ódýrara fyrir þá sem hafa aldrei verið í golf- klúbbi og hjón fá afslátt. Að sögn Jóns Júlíusar hefur ekki verið afreksstefna hjá Golfklúbbi Grindavíkur síðustu ár en nú á að gera bragarbót á. „Við erum búin að stofna félag betri kylfinga í GG með það að markmiði að búa til kylf- inga sem verða samkeppnishæfir við þá bestu og þá hefur stjórnin lagt mikið púður í að efla unglinga- starfið. Í Grindavík eru íþrótta- menn í fótbolta og körfubolta sem eru meðal þeirra bestu á landinu og okkar markmið er að eiga kylfinga sem eru með þeim bestu,“ segir Jón Júlíus og nefnir þar meðal ann- ars Davíð Arthur Friðriksson, sex- faldan klúbbmeistara. „Við gerum okkur vonir um að hann muni láta að sér kveða strax í sumar. Þetta er flottur strákur sem á mikið inni.“ kristjan@frettabladid.is Sumarflatirnar í lygilega góðu ástandi 12. FLÖT Flatirnar hjá Golfklúbbi Grindavíkur koma ótrúlega vel undan vetri. 2. BRAUT Fimm nýjar brautir verða teknar í notkun á Húsatóftavelli um miðjan júní eða í byrjun júlí. MYNDIR/JÓN JÚLÍUS KARLSSON JÓN JÚLÍUS KARLSSON SÆTIÐ á styrkleikalista atvinnukylfinga vermdi Charl Schwartzel fyrir Masters-mótið í apríl í fyrra. Þessi lítt þekkti suður-afríski kylfingur bar sigur úr býtum en Mastersmótið verður spilað yfir páskahelgina. Aðeins 14 högg undir pari dugðu Schwarzel til sigurs, sem var tveimur höggum minna en ástralska tvíeykið Adam Scott og Jason Day náðu í öðru til þriðja sæti. 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.