Fréttablaðið - 04.04.2012, Síða 66
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR50
golfogveidi@frettabladid.is
Okkar hlutverk
er að dreifa
fjölpósti, blöðum, tímaritum, bréfum og vörum.
Póstdreifing - Suðurhraun 1 - 210 Garðabær - Sími 585 8300 - www.postdreifing.is
Heyrðu í okkur næst þegar þú þarft á öruggri
og hagstæðri dreifingarþjónustu að halda.
Það er mikið að gerast hjá
Golfklúbbi Grindavíkur
um þessar mundir. Í sumar
verða fimm nýjar holur
opnaðar auk þess sem verið
er að byggja nýjan golf-
skála. Völlurinn kemur
ótrúlega vel undan vetri og
er ástandið á flötunum eins
og best gerist á sumri til.
„Völlurinn er í lygilega góðu
ástandi, ég hef aldrei séð flatirn-
ar svona góðar í mars. Það er búið
að valta þær og það er eins og við
séum að spila í
maí,“ segir Jón
Júlíus Karlsson,
ritari og formað-
ur mótanefnd-
ar Golfklúbbs
Grindavíkur.
Húsatóftavöll-
ur kemur ótrú-
lega vel undan
vetri og er mál
manna að hann
hafi aldrei litið betur út en nú.
„Völlurinn hefur tekið vel við sér
og er í raun alveg frábær. Við erum
í skýjunum með hann en þetta er
allt okkar frábæra vallarstjóra að
þakka,“ segir Jón Júlíus.
Þegar er búið að halda tvö mót
á vellinum og voru bæði spiluð á
sumarflötum. Þriðja mótið verður
svo haldið á laugardaginn kemur,
svokallað Skálamót en allur ágóð-
inn rennur til styrktar nýjum skála
sem Golfklúbburinn er að byggja.
„Við héldum eitt svona mót og
náðum þá að niðurgreiða parketið
á nýja skálann og næst á döfinni er
að niðurgreiða eldhústækin,“ segir
Jón Júlíus.
Aðeins hafa þrettán holur verið
á Húsatóftavelli síðustu ár en um
miðjan júní eða í byrjun júlí verða
opnaðar fimm nýjar brautir – völl-
urinn verður þá fullvaxinn. „Völl-
urinn verður með skemmtilegri
almenningsvöllum landsins eftir
að við opnum nýju holurnar,“ segir
Jón Júlíus. Hann segir uppganginn
í golfinu í Grindavík hafa geng-
ið vonum framar undanfarin ár.
„Það eru um 220 í klúbbnum núna
en þeim gæti fjölgað stíft í ár. Við
erum í raun bara að biðla til fólks
að ganga í klúbbinn,“ segir ritarinn
en árgjaldið er um 55 þúsund krón-
ur fyrir einstaklinga. Þá er ódýrara
fyrir þá sem hafa aldrei verið í golf-
klúbbi og hjón fá afslátt.
Að sögn Jóns Júlíusar hefur ekki
verið afreksstefna hjá Golfklúbbi
Grindavíkur síðustu ár en nú á að
gera bragarbót á. „Við erum búin að
stofna félag betri kylfinga í GG með
það að markmiði að búa til kylf-
inga sem verða samkeppnishæfir
við þá bestu og þá hefur stjórnin
lagt mikið púður í að efla unglinga-
starfið. Í Grindavík eru íþrótta-
menn í fótbolta og körfubolta sem
eru meðal þeirra bestu á landinu og
okkar markmið er að eiga kylfinga
sem eru með þeim bestu,“ segir
Jón Júlíus og nefnir þar meðal ann-
ars Davíð Arthur Friðriksson, sex-
faldan klúbbmeistara. „Við gerum
okkur vonir um að hann muni láta
að sér kveða strax í sumar. Þetta er
flottur strákur sem á mikið inni.“
kristjan@frettabladid.is
Sumarflatirnar í lygilega góðu ástandi
12. FLÖT Flatirnar hjá Golfklúbbi Grindavíkur koma ótrúlega vel undan vetri. 2. BRAUT Fimm nýjar brautir verða teknar í notkun á Húsatóftavelli um miðjan júní
eða í byrjun júlí. MYNDIR/JÓN JÚLÍUS KARLSSON
JÓN JÚLÍUS
KARLSSON
SÆTIÐ á styrkleikalista atvinnukylfinga vermdi Charl Schwartzel fyrir Masters-mótið í apríl í fyrra. Þessi lítt þekkti suður-afríski
kylfingur bar sigur úr býtum en Mastersmótið verður spilað yfir páskahelgina. Aðeins 14 högg undir pari dugðu Schwarzel til
sigurs, sem var tveimur höggum minna en ástralska tvíeykið Adam Scott og Jason Day náðu í öðru til þriðja sæti.
80