Fréttablaðið - 04.04.2012, Síða 70
4. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR54
BESTI BITINN Í BÆNUM
Sushi á Fiskmarkaðnum er í
uppáhaldi. Ekki skemmir fyrir
að deila því með góðum vinum
og hafa hvítvín við hönd.
Sigríður Heimisdóttir hönnuður.
„Ég skrifaði undir ráðningarsamning á servíettu í
Stokkhólmi í febrúar,“ segir Daníel Ólafsson plötu-
snúður, viðskiptafræðinemi og nú tengiliður tíma-
ritsins Vice á Íslandi.
Daníel var að dreifa nýjasta tölublaði tímarits-
ins á höfuðborgarsvæðinu er Fréttablaðið náði
af honum tali en blaðið er ókeypis. Vice er þekkt
lífsstílsrit og upprunalega frá Kanada. Tímarit-
ið kemur út mánaðarlega í 29 löndum í heiminum.
„Það eru nokkur ár síðan tímaritinu var dreift hér á
landi en núna verður því dreift reglulega í Reykja-
vík. Ég er svokallaður tengiliður Vice á Íslandi en
þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru með svoleiðis,“
segir Daníel sem kynntist Michael Mohn, umsjón-
araðila Vice á Norðurlöndunum, er hann spilaði í
partýi sem tímaritið hélt í Stokkhólmi.
„Það má segja að ég hafi verið ráðinn á staðn-
um. Síðan þá hef ég farið tvisvar til Stokkhólms til
að funda og spila á viðburðum en Vice eru þekktir
fyrir að kunna að halda góð partý. Í síðasta partýi
tróð til dæmis sænska söngkonan Robyn upp.“
Daníel og Mohn voru saman að vinna á vegum
Vice á Íslandi um helgina þar sem þeir fjölluðu um
Reykjavík Fashion Festival. Mohn er mjög hrifinn
af Íslandi. „Hann elskar Ísland og íhugar að kaupa
sér húsnæði hérna í nánustu framtíð.“
Vice er allsherjar margmiðlunarfyrirtæki með
prentútgáfu, vefsíðuna Vice.com og nýstofnaða sjón-
varpsstöð og þekkt fyrir umdeildar myndbirtingar.
Daníel á von á því með ráðningu hans muni umfjöll-
un um Ísland aukast í blaðinu og á heimasíðunni.
„Ég er með nokkur verkefni í vinnslu en tek öllum
hugmyndum fagnandi. Tímaritið býður upp á marga
möguleika og er mjög framarlega í tækninni.“ - áp
Vice teygir anga sína til Íslands
LEITAR AÐ SKEMMTILEGU EFNI Daníel Ólafsson er nýr
tengiliður lífstílstímaritsins Vice á Íslandi og fullyrðir að aukinn
umfjöllun verði um Ísland í tímaritinu og á vefsíðunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hollywood-fyrirtækið XYZ Films hefur sýnt áhuga
á að endurgera íslenska spennutryllinn Frost fyrir
bandarískan markað. Glæný þrjátíu sekúndna stikla
úr myndinni virðist hafa heillað fyrirtækið upp úr
skónum.
„Þetta er allt á byrjunarstigi,“ segir framleiðand-
inn Júlíus Kemp, sem viðurkennir að þetta hafi gerst
furðu hratt. „En samt, allt varðandi þessa mynd
hefur gerst mjög hratt. Við seldum alheimsréttinn
til Trustnordisk. Við sýndum þeim þrjár senur úr
myndinni og það dugði til að skrifa undir samning-
inn,“ segir Júlíus, sem er óvanur slíkum áhuga á
íslenskri mynd. „Menn hafa einhvern veginn stokkið
á þetta einn, tveir og þrír. Þessi áhugi er líka kominn
til vegna þess að þetta er mjög óvenjulegt verkefni
og myndefni sem við erum að sýna,“ segir hann en
Frost var að stórum hluta tekin uppi á Langjökli.
Fyrirtækið XYZ framleiddi myndina The Raid
sem vann áhorfendaverðlaunin á kvikmyndahátíð-
inni í Toronto. Sony Pictures er að endurgera hana
og hefjast tökur í sumar. Fyrirtækið er einnig að
vinna mynd með Darren Aronofsky, leikstjóra
Black Swan. „Þetta er nýtt fyrirtæki en aðal-
náunginn þarna hefur mikla reynslu af frekar
stórum myndum,“ segir Júlíus og heldur
áfram: „Það er mikill hiti úti í heimi
fyrir öllu sem kemur frá Norður-Evr-
ópu. Það virðist annar hver sjónvarps-
þáttur eða bíómynd sem gengur
vel hafa verið keyptur með góðum
árangri.“
Frost verður frumsýnd hérlendis
um miðjan september og er eftir-
vinnslan í fullum gangi. - fb
Hollywood sýnir Frost áhuga
FROST Spennutryllirinn er
strax farinn að vekja athygli í
Hollywood.
„Ég er svo glöð að einhver á Íslandi
sé að búa til sjónvarpsefni um
framkvæmdir að það var auðsótt
mál að fá mig til að taka þátt,“ segir
Yrsa Sigurðardóttir, rithöfund-
ur og verkfræðingur, sem verður
ráðgjafi í nýrri þáttaröð af bygg-
ingarþáttum fjölmiðlamannsins og
smiðsins Gunnlaugs Helgasonar,
Gulli byggir.
Yrsa er einn ástkærasti rithöf-
undur þjóðarinnar og einn besti
glæpasagnahöfundur Norðurlanda
að mati breska blaðsins The Times.
Hún hefur vakið athygli um allan
heim fyrir ritsnilli sína og bækur
hennar hafa verið gefnar út á fjölda
tungumála. Síðasta bók hennar,
Brakið, kom út í lok síðasta árs og
varð mest selda bók ársins 2011 á
Íslandi.
Margir þekkja Yrsu aðeins sem
rithöfund svo það verður áhugavert
að sjá hana í nýju hlutverki í þátt-
unum, sem hefja göngu sína á RÚV
í vor. Þar mun hún svara spurning-
um og leiðbeina áhorfendum um
hluti sem snúa að verkfræðinni.
„Ég kem aðallega til með að ráð-
leggja fólki með undirbúning og
slíkt. Ég get bæði talað frá faglegu
sjónarhorni og persónulegu, en ég
hef staðið í alls kyns framkvæmd-
um sjálf í gegnum tíðina,“ segir
Yrsa. „Ég vona bara að mitt innlegg
í þættina verði öðrum til gagns og
að þeir sem séu að fara út í fram-
kvæmdir hlusti á ráðleggingar. Ég
veit að ég hlusta sjaldnast á eigin
ráð, svo ég veit hvað ég er að tala
um þegar ég segi að það sé mikil-
vægt,“ bætir hún við hlæjandi.
Yrsa starfar sem verkfræðing-
ur og aðspurð segir hún það ganga
vel að samræma vinnuna og skrif-
in. „Þetta er reyndar búið að vera
erfitt að undanförnu þar sem ég er
búin að vera svo mikið á ferðinni,
en það stendur til bóta með hækk-
andi sól,“ segir hún.
Hinir fjölmörgu aðdáendur henn-
ar gleðjast svo eflaust yfir þeim
fréttum að hún er nú að vinna
að nýrri bók þessa dagana sem
kemur út um næstu jól, gangi allt
að óskum. tinnaros@frettabladid.is
YRSA SIGURÐARDÓTTIR: VONA AÐ FÓLK HLUSTI Á RÁÐLEGGINGAR MÍNAR
Glæpasagnadrottning gefur
ráð í þáttum Gulla Helga
GEFUR RÁÐ Yrsa segist geta talað frá faglegu og persónulegu sjónarhorni þar sem
hún hafi staðið í miklum framkvæmdum í gegnum tíðina sjálf.
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS