Fréttablaðið - 19.04.2012, Page 25
FIMMTUDAGUR 19. apríl 2012 25
Orðið dýrtíð klingdi seint og snemma við eyrum okkar sem
munum aftur til miðrar aldarinnar
sem leið, dýrtíð og sam setningar
eins og dýrtíðarvandi og dýrtíðar-
ráðstafanir. Hetjur strituðu við
dýrtíðina eins og Sisýfos við
bjargið í goð sögunni, en ekki til
neins, allt var það ónýtt erfiði.
Dýrtíðin át í sig innmatinn úr
krónunni jafnt og þétt.
En viti menn! Þar kom að orðið
dýrtíð steinhætti að heyrast. Það
þótti ekki lengur nógu áhrifaríkt
til að tjá uppdráttarsýki gjald-
miðilsins. Nýtt orð hóf sigur-
göngu: verðbólga. Sú bólga varð
hins vegar brátt svo skæð að
alþingismenn og aðrir stólpar
þjóðlífsins höfðu vart undan við
að smíða verðbólgu-samsetn-
ingar til áherzlu. „Íslenzkan er
orða frjósöm móðir,/ekki þarf
að sníkja, bræður góðir“ kvað
Bólu-Hjálmar. Landsfeður tóku
á öllu sínu hugmyndaflugi, sóttu
líkingar í verkfærakistuna og
urðu þá til verðbólguhjólið og
verðbólguskrúfan, í þjóðsögur og
töluðu brúnasíðir um verðbólgu-
skessuna og verðbólgudrauginn,
þar á ofan um verðbólguhítina og
verðbólgubálið.
Að lokum hrökk ekkert þessara
hugtaka til að lýsa „víxlverkun
kaupgjalds og verðlags“, allt var
komið á slíka fleygiferð niður í
móti að ennþá nýrra orð sprengdi
öll hin af sér með látum: óðaverð-
bólga.
Eftir að nokkuð hafði hægzt
um í bili hófust svo verðbólgu-
skotin. Orðliðurinn skot hlýtur
að hafa hér merkinguna niður-
gangur, skita (sbr. magaskot).
Nú hafa þau skot komið hvert
af öðru, enda „víxlverkun kaup-
gjalds og verðlags“ á sínum stað.
Maður er farinn að kannast við
sig aftur, verðbólgan hérlendis
orðin meiri en í nokkru nálægu
landi öðru þrátt fyrir gjaldeyris-
höft og guð má vita hvað fleira til
varnar. Verðbólguskitan er hluti
af „íslenzku leiðinni“ svonefndu.
Í því skyni að tákngera horbjúg
íslenzku krónunnar betur en áður
stendur til að gefa út nýjan verð-
bólguseðil, tíuþúsundkall. Og er
ætlunin að mynd af Jónasi Hall-
grímssyni prýði seðilinn, einn-
ig mynd af heiðlóu sem vorboða.
Vorboði Jónasar var reyndar
þröstur. Svo er hitt að Jónas
Hallgrímsson dó blásnauður, var
jarðsunginn á kostnað annarra.
Kannski á því seðillinn meðfram
að vera vísbending um hliðstæð
sögulok hins íslenzka krónubú-
skapar og væri það vel til fundið.
Í eðli sínu er gott og gilt að
prýða peningaseðla með myndum
stórmenna liðins tíma eins og
alsiða hefur verið hér og víða um
lönd, svo sem til brýningar og
eflingar fjármálaviti þegnanna.
Sú hefð hefur þó engu skilað á
meðal vor. Jón forseti, Brynjólfur
biskup Sveinsson, Hannes Haf-
stein, Einar Benediktsson og
enn fleiri urðu í áranna rás að
litlum körlum hver á sínum seðli,
í fullu samræmi við snúnings-
hraða verðbólguhjólsins. Og er
athugandi hvort nú væri ekki rök-
rétt að taka upp annan sið, þannig
að valin yrði mynd af einhverjum
sem naut ekki mikils álits út á við
í lífinu fremur en íslenzka krónan
um þessar mundir. Til er fjöldi
ljósmynda af íslenzkum körlum
og konum sem stóðu höllum fæti.
Mér myndi lítast vel á Sæfinn
á sextán skóm. Hann safnaði
hlunkum og smáeyringum og
geymdi þá haganlega.
„Íslenzka leiðin“ er svo mark-
verð að til greina kæmi að hafa
nýja bólguseðilinn tvískiptan:
á annarri hlið hans væri vísað
til innlendrar krónu, á hinni til
aflands krónu. Og vegna þess að
engir standa tryggari vörð en
Heimssýnarmenn um fullveldis-
rétt verðbólgudraugsins þætti
mér einsýnt að velja mynd af for-
manni þeirra samtaka á seðilinn,
ef tekið yrði til þessara bragða.
Að vísu kæmi þá upp álitamál um
það á hvorri hliðinni Ásmundur
úr Dölum ætti að vera og á hvorri
Sæfinnur.
Mér myndi lítast vel á Sæfinn á sextán
skóm. Hann safnaði hlunkum og smá-
eyringum og geymdi þá haganlega.
Bólguseðill
Fjármál
Hannes Pétursson
rithöfundur
Veiðimálastofnun á sér merka sögu sem rekja má allt aftur
til ársins 1946 þegar embætti
Veiðimálastjóra var sett á stofn.
Saga stofnunarinnar er því sam-
ofin nýtingu veiðihlunninda á
Íslandi. Það skal því þakka fram-
sýni þeirra sem höfðu forgöngu
um stjórnsýslu og rannsóknir í
veiðimálum að við eigum bestu
samfelldu upplýsingarnar um
laxastofna hérlendis í samanburði
aðrar laxveiðiþjóðir við Norður-
Atlantshaf.
Veiðimálastofnun hefur verið
til ráðgjafar um verndun og nýt-
ingu á laxi og á það ekki síst við
þegar framkvæmt hefur verið í
ám og vötnum. Þá er stofnunin
kölluð til rannsókna til að meta
áhrif og veita ráðgjöf um hvernig
draga megi úr neikvæðum áhrifum
slíkra framkvæmda eða leggja til
mótvægisaðgerðir þannig að hag
lónbúans sé gætt eins og kostur er.
Þetta er mikilvægt að hafa í huga
þegar örlar á umræðu þar sem
ruglað er saman hags munum fram-
kvæmdaraðila og starfi vísinda-
mannanna, sem hafa það hlutverk
eitt að sporna gegn neikvæðum
áhrifum framkvæmda í ám og
vötnum. Framkvæmdir verða
alltaf á ábyrgð framkvæmdar-
aðilans hvort sem þar er um veiði-
félög að ræða eða aðra.
Veiðifélög hafa áratuga reynslu
af starfi Veiðimálastofnunar og
í ljósi mikilvægi hennar fyrir
atvinnugreinina hefur Lands-
samband veiðifélaga ályktað á
all flestum aðalfundum sínum um
nauðsyn þess að efla stofnunina,
en fjárveitingar til grunnrann-
sókna í ám og vötnum hafa verið
smánarlega litlar. Raunar er
furðulegt hversu miklu stofnunin
hefur áorkað á því sviði þótt
úr litlu fjármagni hafi verið að
spila. Verkefnin eru margvísleg.
T.d. hafa verið byggðir 75 fisk-
vegir hér á landi og þar með hafa
opnast um 800 km af ám sem
nýtast til stækkunar búsvæða laxa
og sem veiðisvæði. Þarna er um
gríðar leg verðmæti að ræða sem
sést best á því að ofan laxastiga
eru nú um 30% af fisk gengum
svæðum landsins í laxveiðiám.
Að öllum þessum framkvæmdum
hefur Veiðimálastofnun komið
með ráðgjöf og rannsóknum. Við
státum því af framúrskarandi
vísindamönnum hjá Veiðimála-
stofnun með gríðarlega reynslu
sem standa jafnfætis, ef ekki
framar kollegum sínum erlendis.
Nú eru áformaðar miklar breyt-
ingar á opinberum stofnunum í
kjölfar fækkunar ráðuneyta. Hug-
myndir hafa verið um að leggja
Veiðimálastofnun niður og færa
verkefni hennar undir sérstakt
auðlinda- og umhverfisráðuneyti.
Landssamband veiðifélaga leggst
eindregið gegn slíkum áformum
og telur að rannsóknum veiðimála
sé best fyrirkomið hjá ráðuneyti
atvinnuvegarins áfram. Stjórnin
hefur því óskað eftir fundi með
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra til að ræða framtíð þessarar
stofnunar sem við teljum hafa
gríðarlega þýðingu fyrir okkar
atvinnuveg. Það yrði mikið slys ef
verkefni VMS yrðu bitbein þeirra
sem vilja aukinn eld að sinni köku.
Veiðimálastofnun
Veiði
Óðinn Sigþórsson
formaður
Landssambands
veiðifélaga
...alltaf opið!
Í 10–11 finnurðu
frábært vöruúrval.
Þú færð ljúffenga
Ristorante pepperoni-salame
pizzu frá Dr. Oetker
í næstu 10–11 verslun.
Ristorante
Bragðast ávallt eins og
á ekta ítölskum veitingastað