Fréttablaðið - 05.05.2012, Side 30
5. maí 2012 LAUGARDAGUR30
FRAMHALD AF SÍÐU 28
STUND MILLI STRÍÐA Kristján Eldjárn og Halldóra Ingólfsdóttir kona hans sjást hér njóta lífsins í sumarblíðu við sumarbústað í
Munaðarnesi. MYND/GVA
greina skýrt hvar embættislífinu
lýkur og einkalífið tekur við.
Elda að mestu sjálf
Það virðist þó ljóst að sjálft heimili
forsetans og fjölskyldu hans er ríki
einkalífsins.
Íbúðarhús forsetans á Bessa-
stöðum er nokkurn veginn eins og
hvert annað heimili. Stórt heimili
reyndar, enda er húsið tæpir 450
fermetrar, en það er nú varla við
öðru að búast af forsetabústað.
Fréttablaðið grennslaðist fyrir
um það hjá embættinu hvernig
væri almennt farið með máltíðir
forseta og fjölskyldu hans – hvort
þær væru jafnan útbúnar af ráðs-
manninum á Bessastöðum eða
heimalagaðar af forsetahjónunum
sjálfum. Svar forsetaritarans var
stutt og laggott: „Það fer eftir dag-
skrá forseta, önnum og öðrum við-
burðum. Mikill meirihluti máltíða
er forsetahjónanna sjálfra.“
Aðföng á Bessastöðum og heim-
ili forsetans eru greidd af fyrir-
fram ákveðinni risnu, sem hefur
verið í kringum sex milljónir á ári
á þessu kjörtímabili, og ráðsmað-
urinn sér að mestu um þau inn-
kaup. Risnan dekkar æði margt
í útgjöldum embættisins, til að
mynda öll veisluhöld. Árlega koma
á áttunda þúsund gestir á Bessa-
staði til funda eða viðræðna, í
móttökur vegna ráðstefna, þinga,
verðlaunaafhendinga eða annarra
atburða, í hádegisverð eða kvöld-
verð og auk þess um hundrað þús-
und ferðamenn í skoðunarferðir.
Öllum þessum fjölda þarf að
bjóða upp á ýmist kaffi, kökur,
snittur, gosdrykki, léttvín eða
málsverði. Þá hefur embættið
undanfarin ár að jafnaði varið um
einni milljón króna á veitingastöð-
um, sem forsetinn heimsækir eink-
um með erlendum gestum sínum.
Í júnílok ræðst hver mun halda
heimili á Bessastöðum næstu fjög-
ur árin; sitjandi forseti sem hefur
búið þar undanfarin sextán ár, eða
einhver áskorenda hans. Fari svo
að honum verði velt úr sessi blasir
við að það verða mikil viðbrigði,
bæði fyrir hann og eftirrennar-
ann.
Einstaklega góður tími
Ingólfur Árni Eldjárn ólst upp á Bessastöðum
■ BERNSKUMINNINGAR FRÁ BESSASTÖÐUM
Ingólfur Árni Eldjárn er yngstur fjögurra barna Kristjáns Eldjárns og Halldóru Ingólfsdóttur.
Hann var á áttunda ári þegar faðir hans var kjör-
inn forseti Íslands. Ingólfur og systkini hans voru
þannig líklega fyrstu börn forseta sem bjuggu á
Bessastöðum.
Í samtali við Fréttablaðið sagði Ingólfur að árin á
Bessastöðum hafi verið afar góður tími.
„Ég var að verða átta ára þegar faðir minn var
kjörinn og við fluttum suður á Bessastaði. Við
bjuggum áður í Þjóðminjasafninu, í íbúð á jarðhæð-
inni, þannig að segja má að við höfum flutt þarna úr
frekar óeðlilegum aðstæðum yfir í aðrar,“ segir hann
hlæjandi, en faðir hans var þjóðminjavörður þegar
hann var kjörinn.
„Það var mjög spennandi að flytjast suður á Bessa-
staði. Þarna var nóg pláss til allra þeirra verka sem
átta ára gamlir menn þurfa að sinna. Það bjuggu
ekki margir á Álftanesi, en ég gekk í barnaskólann á
Álftanesi og kynntist þá strax svo til öllum krökkun-
um á mínum aldri.“
Ingólfur segist ekki hafa fundist sem honum væri
tekið öðruvísi á Álftanesi, vegna þess hver faðir hans
var.
„Ég upplifði það ekki þannig. Fólk bar mikla virð-
ingu fyrir embættinu og fjölskyldunni og við börnin
vorum aldrei neitt með í opinberum athöfnum for-
eldra okkar. Það var alveg aðskilið.“
Að loknum barnaskóla gekk Ingólfur í Hagaskóla
og síðar í Menntaskólann í Reykjavík. Hann seg-
ist hafa verið viðkvæmari fyrir stöðu sinni á þeim
árum, þó að hann hafi ekki fundið fyrir auknum
kröfum til sín hennar vegna.
„Utan Álftaness beindist stundum athygli að manni
og ég kunni ekkert sérstaklega vel við það. Þegar
maður er á þessum aldri þolir maður ekki hvað sem
er, og ég var ekki að veifa því sérstaklega hverra
manna ég var. Ef ég kvartaði undan þessu sagði
pabbi alltaf að forsetaembættið væri bara vinna sem
hann væri að sinna og ætti ekki að hafa áhrif á mig.“
Hvað varðar daglegt líf fjölskyldunnar á Bessa-
stöðum segir Ingólfur að foreldrar hans hefðu lagt
áherslu á að halda heimilinu aðskildu frá skyldustörf-
um embættisins.
„Pabbi fór á skrifstofuna á morgnana og kom aftur
um hádegið. Mamma var heimavinnandi og seinni
partinn sinntu þau gjarna móttökum og öðru sem upp
á þau stóð.“
Auk fjölskyldunnar bjuggu á Bessastöðum bílstjóri
sem einnig gegndi störfum ráðsmanns og sá um við-
hald á húsunum og jörðinni og svo ráðskonan Sigrún
Pétursdóttir.
„Mamma og pabbi lögðu á það áherslu að eiga sitt
eigið heimili á Bessastöðum. Fyrri forsetar höfðu
notað allt húsið sem sitt heimili og þau húsgögn sem
fylgdu með, en mamma og pabbi fluttu með sín eigin
húsgögn og innbú og við vorum með það á efri hæð-
inni þar sem var okkar heimili með venjulegar mubl-
ur eins og hjá öðru fólki.“
Þegar Ingólfur lítur til baka á árin á Bessastöðum
segir hann þau hafa verið góð.
„Já, þetta var einstaklega góður tími, sérstak-
lega þegar ég var barn því að þarna á nesinu var svo
skemmtilegt umhverfi, fjaran og æðarvarpið. Þarna
bjuggum við í alvöru sveit og það var heilmikil upp-
lifun og mér finnst það standa upp úr.“
Vann við rannsóknir og skrif í tómstundum
Kristján Eldjárn í viðtali við Frjálsa verslun árið 1974
■ FORSETI OG FRÍSTUNDIRNAR
Í viðtali við Frjálsa verslun árið 1974 var Kristján Eldjárn forseti, sem þá bjó að Bessastöðum með
fjölskyldu sinni, meðal annars spurður út í hið
daglega líf í forsetabústaðnum. Eftirfarandi brot
úr viðtalinu er birt með leyfi útgefanda Frjálsrar
verslunar.
Það eru einkum hinar opinberu embættisat-
hafnir forsetans, sem almenningur í landinu fylg-
ist með. En hvernig er daglegum störfum yðar
háttað á milli þeirra?
„Það er ekki nema eðlilegt að almenningur í
landinu fylgist heldur lítið með daglegum störfum
forsetans eða lífi hans innan veggja heimilisins.
Dagleg störf mín eru þau að ég er venjulega kom-
inn inn í bæ og á skrifstofuna um kl. 9.30 og er þar
þangað til um það bil 12.15. Á þessum tíma koma
þeir menn til viðtals, sem um það hafa beðið, enn
fremur er ég þá með starfsfólki mínu að undir-
búa það sem fyrir liggur í sambandi við risnu og
yfirleitt móttöku gesta, enn fremur afgreiða bréf
og ýmis mál, sem að höndum ber. Ég fer aftur á
skrifstofuna eftir hádegi, ef þess er þörf vegna
einhverra sérstakra anna, en oftast held ég kyrru
fyrir á Bessastöðum og við hjón erum þá að þoka
áleiðis einhverju, sem fyrir liggur, eða ég er að
skrifa sitt af hverju, sem embættið hefur í för með
sér. En hvenær sem næði er til vinn ég; við rann-
sóknir mínar og skrif í sambandi við þær, eins
og ég hef ætíð gert, en þetta kemur ekki embætt-
inu við, heldur varðar aðeins notkun tómstunda,
sem forseti á að eiga eins og aðrir. Nýi forsetinn í
Ísrael var prófessor og er sagður hafa rannsókn-
arstofu í forsetahöllinni. Ég get sagt það hér, af
því að margir spyrja um það, að ég tel mig hafa
komið þó nokkrum fræðistörfum í verk síðan ég
kom á Bessastaði. Raunverulegt frí höfum við
hjón hins vegar ekki tekið í háa herrans tíð, og
liggja til þess ýmsar ástæður.“
Hversu fjölmennt er starfslið forsetaembættis-
ins og hvernig er rekstri Bessastaða háttað?
„[...] Á Bessastöðum er ráðsmaður, sem er um
leið bifreiðarstjóri forseta. Hann annast allar
útréttingar fyrir staðinn. Þá er ráðskona og ein
stofustúlka.
Það nægir daglega og við smærri gestamót-
tökur, en þegar stórar móttökur eru eða veizl-
ur, sem oft ber við, er fengin aukahjálp. Aðeins
örsjaldan eru veitingamenn fengnir til að standa
fyrir veitingum við móttöku gesta. Forseti hefur
umráð yfir jörð og húsum á Bessastöðum, en
búskapur er þar enginn nú, ríkisbúskapurinn var
lagður niður vorið 1968. Í svip virðist mér ekki
líklegt að hann verði tekinn upp aftur, þótt ég viti
vel að mörgum finnst að honum sjónarsviptir. En
þar er á margt að líta, sem ókunnugir munu varla
átta sig á í fljótu bragði.“
ÆSKAN Á ÁLFTANESI Ingólfur Árni Eldjárn fluttist átta ára gamall á Bessastaði með
foreldrum sínum. Þar segist hann hafa átt afar ánægjulega bernsku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Andrea
Ólafsdóttir
Ari Trausti
Guðmundsson
Ástþór
Magnússon
Hannes
Bjarnason
Herdís
Þorgeirsdóttir
Jón
Lárusson
Ólafur
Ragnar
Grímsson
Þóra
Arnórsdóttir
Ólafur Ragnar Grímsson hefur búið á Bessastöðum frá því að hann tók
við embætti forseta árið 1996. Hann gefur áfram kost á sér, en sjö aðrir
frambjóðendur hafa þegar lýst yfir framboði fyrir kosningarnar sem munu
fara fram í lok júní. Einhver þeirra mun því hugsanlega fá að kynnast hinu
daglega lífi og starfi á Bessastöðum.
HVER MUN BÚA Á BESSASTÖÐUM?