Fréttablaðið - 05.05.2012, Page 42

Fréttablaðið - 05.05.2012, Page 42
FÓLK|HELGIN DJASS Í NOR- RÆNA HÚSINU FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir FÍNLEGT Ása gerir fínlega skartgripi úr silfri sem er þægilegt að nota hversdags. Ég geri aðallega litla og fínlega skartgripi úr silfri sem er þægi-legt að nota hversdags. Þeir taka ekki mikið frá fötunum sem maður klæðist en maður verður fínni þegar búið er að setja þá upp,“ segir Ása Gunnlaugsdóttir skartgripahönnuður. Ása segir hugmyndir að hönnun- inni geta komið hvaðan sem er. Oft fær hún hugmyndir úr náttúrunni en hún gengur mikið á fjöll. „Það er þó ekki endilega eitthvert markmið í sjálfu sér að hafa hönnunina tengda náttúrunni. Hugmyndin að línu sem er kölluð Hríma kviknaði út frá vatni sem leggur á veturna og brotnar svo upp á vorin. Hugmyndin að línunni Gleymmérei er sótt í barnæskuna en þegar ég var lítil var ég vön að tína gleymméreiar og festa á peysuna mína eins og skartgripi.“ Ása er menntuð í gull- og silfur- smíði í Finnlandi. Hún tók svo master í iðnhönnun í Helsinki og vann sem iðnhönnuður í Suður-Kóreu í eitt ár. Hún hefur síðan einbeitt sér að skart- gripagerð og á nú eigið fyrirtæki, Asa, sem framleiðir skartgripi. „Ég á og rek fyrirtækið en það byggist ekki bara upp í kringum mig, ég kaupi eða leigi hönnun af öðrum og framleiði hana. Þá eiga hönnuðirnir höfundarréttinn að sinni hönnun en þeir eru undir fyrirtækinu Asa.“ Ása er í samstarfi við umboðsmann í Bandaríkjunum sem hefur komið vörunum hennar inn á tvo staði þar. „Ég veit ekki hvað kemur út úr því en það er gaman að prófa þetta þó ég sé ekki að búast við neinum heimsyfir- ráðum.“ Ása tekur þátt í sýningunni HAND- VERK OG HÖNNUN sem verður hald- in í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 3. til 7. maí. Þetta er kynning á íslensku handverki, listiðnaði og hönnun og er þetta í sjöunda sinn sem sýningin er haldin. Hún er nú í fyrsta sinn haldin að vori en 44 aðilar sýna verk sín á henni. Rúmlega helmingur þátttak- enda eða 27 aðilar hefur ekki tekið þátt í sýningunni áður. Nánari upp- lýsingar um sýninguna má finna á slóðinni handverkoghonnun.is. ■ lbh FÍNLEGIR OG ÞÆGILEGIR SKARTGRIPIR SKART Ása Gunnlaugsdóttir hönnuður tekur þátt í sýningunni HANDVERK OG HÖNNUN sem nú er haldin í sjöunda sinn í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 3. til 7. maí. NÁTTÚRA Innblástur að hönn- uninni er oft sóttur til náttúrunnar en Ása gengur mikið á fjöll. MYND/ERNIR SÝNING Ása tekur þátt í sýn- ingunni HANDVERK OG HÖNNUN sem verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 3. til 7. maí. MYND/ERNIR AFSLÁTTURAF ÖLLUM NETTOLINEINNRÉTTINGUM fr ifo rm .is OG 5% AÐ AUKI SÉ GREITT Í EINU LAGI VIÐ PÖNTUN INNRÉTTINGATILBOÐ ■ MÚLINN Tómas R. Einarsson og Matt- hías M. D. Hemstock koma fram á tónleikum Múlans í Norræna húsinu klukkan 16 í dag og flytja verkin Strengur og Quadrant. Quadrant, eða Hringfjórð- ungur, er mynd- og tónverk, samið fyrir slagverksleikara, fimm blindramma og málara- bretti. Það var frumflutt í Amsterdam 1983 og síðan í Tókýó. Höfundurinn er Jón Sig- urpálsson myndlistarmaður og safnvörður á Ísafirði. Matthías M. D. Hemstock flytur verkið. Lagaflokkurinn STRENGUR, fyrir kontrabassa, slagverk, vatnshljóð og vídeó var frum- fluttur á Listahátíð í Reykjavík 2011 og hlaut frábærar viðtök- ur. Tómas R. Einarsson samdi tónlistina.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.