Fréttablaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 56
5. maí 2012 LAUGARDAGUR12
Hagvagnar hf. er þjónustufyrirtæki sem var stofnað árið 1991 til
að annast almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Hagvagnar hf. keyra aðallega um sveitarfélögin Hafnarfjörð,
Kópavog, Garðabæ og Álftanes. Markmiðið Hagvagna hf. er að efla
almenningssamgöngur og veita viðskiptavinum sínum ávallt
bestu þjónustu sem völ er á hverju sinni.
Hjá fyrirtækinu starfa 90 manns. Bílafloti fyrirtækisins í dag er 40
strætisvagnar. Það er mikið kappsmál hjá fyrirtækinu að bílstjórar
séu vel upplýstir um markmið félagsins og veiti faglega og góða
þjónustu. Öryggismál eru ofarlega á blaði hjá fyrirtækinu og því er
það tryggt að strætisvagnarnir fari reglubundið í eftirlit á
verkstæði Hagvagna.
Fyrirtækið starfar eftir vottuðu alþjóðlegu gæðakerfi ISO 14001 og
leggur ríka áherslu á að starfsmenn taki virkan þátt í að framfylgja
verklagi kerfisins. Það er einnig markmið Hagvagna að bjóða upp á
eins nýlega strætisvagna og kostur er, sem valda minni
óæskilegum umhverfisáhrifum.
Hagvagnar óska eftir að ráða starfsmann á verkstæði
Starfshlutfall: fullt starf
Dagsetning ráðningar: Sem fyrst
Laun: samkomulag
Starfslýsing: Leitum að starfsmanni til þess að sjá um almennar
viðgerðir og önnur störf sem eru því tengd.
Hæfinskröfur: Æskilegt að hafa menntun í bifvélavirkjun, en
áhugi og reynsla af bílaviðgerðum kemur einnig til greina.
Hægt er að senda inn umsóknir á palmar@hopbilar.is eða hafa
samband við Þórð í síma 8220066.
Hefur þú framúrskarandi samskiptahæfni?
Færðu góðar hugmyndir og kemur hlutunum í verk?
Þá er þetta starfið fyrir þig!
Forstöðumaður þjónustu- og upplýsingamála hjá Mosfellsbæ
Forstöðumaður þjónustu- og upplýsingamála hefur yfirumsjón með starfsemi þjónustuvers og sér um upplýsinga-
miðlun ásamt því að annast samskipti við fjölmiðla. Hann er ritsstjóri á vef bæjarins www.mos.is og hefur með
höndum gerð og útgáfu kynningarefnis auk þess að sjá um tilfallandi textagerð. Hann tekur ennfremur þátt í
stefnumótunarvinnu sem varðar málaflokkinn.
Forstöðumaður þjónustu- og upplýsingamála er staðsettur á bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar og heyrir undir bæjar-
stjóra. Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar eru staðsettar í Kjarna að Þverholti 2 og þar starfa að jafnaði um 40 manns.
Helstu verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
eru meðal annars:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er
skilyrði
• Góð íslenskukunnátta og færni í
textagerð og tjáningu er skilyrði
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi sam-
skiptafærni áskilin
• Rík þjónustulund, frumkvæði og sjálf-
stæði í vinnubrögðum
• Framúrskarandi tölvukunnátta
• Reynsla af vinnu við vefumsjónarkerfi
æskileg
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Framtíðarsýn Mosfellsbæjar:
Mosfellsbær er eftirsótt bæjarfélag til búsetu þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi.
Mosfellsbær er framsækið samfélag þar sem ábyrgðarkennd ríkir gagnvart
náttúru og umhverfi auk þess sem hagkvæmni í rekstri og samfélagsleg ábyrgð
eru ávallt höfð að leiðarljósi. Stjórnsýsla og þjónusta Mosfellsbæjar eru skilvirk,
ábyrg, vönduð og í fremstu röð á Íslandi. Mosfellsbær er eftirsóknarverður vinnu-
staður hæfra einstaklinga þar sem áhersla er lögð á persónulega og nútímalega
þjónustu.
Umsóknarfrestur er til 21. maí 2012.
Umsóknir um starfið ásamt ferilskrá og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu
sendar á netfangið sigriduri@mos.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Indriðadóttir, mannauðsstjóri, í síma 525 6700.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og aðildar-
félaga BHM.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
PUBLIC AFFAIRS ASSISTANT-GRANTS
TEMPORARY PART-TIME
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir lausa til umsóknar stöðu Public
Affairs Assistant-Grants í tímabundið hlutastarf.
Umsóknarfrestur er til 11 maí, 2012. Frekari upplýsingar er að
finna á heimasíðu sendiráðsins:
http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for a
temporary part time position of Public Affairs Assistant-Grants.
The closing date for this postion is May 11, 2012. Application
forms and further information can be found on the Embassy’s
home page: http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
Please send your application and resumé to :
reykjavikvacancy@state.gov
Munnharpan veitingahús í Hörpu auglýsir eftir
faglærðum matreiðslu manni eða bakara
Aðili með mjög mikla reynslu úr eldhúsi kæmi einnig
til greina í starfið.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknir með ferilskrá sendist á starf@munnharpan.is
Hægt er að hringja í síma 528 5111 til að fá nánari upplýsingar.
Forstöðumaður og verkefnastjóri
Forstöðumaður
Verkefnastjóri, tímabundin staða til eins árs
Velferðarsvið
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis auglýsir eftir forstöðumanni til að sinna uppbyggingu
og þróun á þjónustu við fatlað fólk. Ennfremur er auglýst eftir verkefnastjóra í þjónustu við
fatlað fólk tímabundið til eins árs.
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis hefur að markmiði að veita íbúum hverfanna fyrirmyndar-
þjónustu og stuðla að góðu samfélagi fyrir alla í samvinnu við íbúa, félagasamtök og hagsmunaaðila.
Við veitingu þjónustunnar er gengið út frá því að fólk vilji hafa hlutverk og áhrif.
Helstu verkefni:
• Dagleg stjórnun og samþætting heimaþjónustu,
frekari liðveislu og annarrar stuðningsþjónustu.
• Fagleg og rekstrarleg ábyrgð á þjónustunni
• Stjórnun starfsmannamála og ábyrgð á framkvæmd
starfsmannastefnu
• Leiðandi starf í uppbyggingu og þróun á þjónustu í
heimahús
• Ráðgjöf og samstarf við notendur þjónustunnar
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði félags-, uppeldis- og/eða
heilbrigðisvísinda
• Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi
• Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og valdeflingu
Helstu verkefni:
• Umsjón með daglegri þjónustu við íbúa
• Stýring verkefna og þátttaka í þróun verkferla
• Umsjón með starfsmannatengdum verkefnum
• Þátttaka í uppbyggingu og þróun á þjónustu í
heimahúsum
• Stuðningur og ráðgjöf við starfsmenn
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði félags-, uppeldis- og/eða
heilbrigðisvísinda
• Reynsla og þekking af starfsmannamálum
• Reynsla af skipulagningu þjónustu
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og valdeflingu
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Launakjör eru skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar gefur Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri netfang: adalbjorg.traustadottir@reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2012.
Umsækjendur er vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is