Fréttablaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 86
5. maí 2012 LAUGARDAGUR50
krakkar@frettabladid.is
50
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Hefurðu heyrt um manninn sem var svo stuttur að þegar hann
hljóp steig hann alltaf á hælana á sér?
En hefurðu heyrt um manninn sem var svo lítill að það var
táfýla af hárinu á honum?
Hefurðu þá heyrt um manninn sem var svo langur að það tók
hann hálftíma að detta?
Eða hefurðu heyrt um manninn sem var svo mjór að það var
bara ein rönd á náttfötunum hans?
Hvað heitirðu fullu nafni? Ég er
langminnstur af öllum öpunum í
Brúðubílnum og þess vegna allt-
af kallaður Lilli api.
Hvað ertu gamall? Ég er alltaf
5 ára. En ég held ég sé búinn að
vera í Brúðubílnum í 30 ár.
Hvar fæddist þú? Auðvitað í
Afríku. Þar er alveg glás af ban-
önum.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Lagið um dýrin í Afríku. Oja,
oja, ahaha. Ég hef oft sungið það
fyrir krakkana.
Hvað finnst þér best að
borða? Bananar eru sko
uppáhaldið mitt. Ég borða
áreiðanlega yfir 100 ban-
ana á dag.
Hver er besti vinur þinn?
Allar brúðurnar í Brúðubíln-
um, líka úlfarnir og refirnir og
krókódíllinn.
Ertu ánægður með að vera
appelsínugulur, eða myndirðu
frekar vilja vera öðruvísi á
litinn, til dæmis grænn
eða blár? Rosalega
ánægður því app-
elsínugulur er fal-
legasti litur í
heimi. En
Krókó-
díllinn er
grænn og
Blárefurinn
blár.
Kíkirðu stundum á
Facebook-síðuna þína?
Næstum því á hverjum degi, en
ég kann ekki að lesa nógu vel.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að syngja með
krökkunum. Í sumar ætlum við
að syngja fullt af lögum.
Verður þú aldrei bílveikur í
Brúðubílnum? Einu sinni gubb-
aði ég í sætið, bílstjórinn varð
að stoppa bílinn. Hann skamm-
aði mig ekkert.
Kanntu góðan brandara? Bara
einn... á ég að segja ykkur hann
... æææ ég held ég sé búinn að
gleyma honum.
Hvernig heldurðu að Gretu Sal-
óme og Jónsa gangi í Eurovisi-
on? Ég er næstum viss um að
þau verða nr. 2.
Með hvaða íþrótta-
liði heldurðu? FFA
er uppáhalds-
l iðið mit t .
Það er Fim-
leikafélag
apanna. Ég
er a l ltaf
að klifra í
Brúðubíln-
um, ég hef
meira að segja
klifrað upp á þak.
En þá kom Helga og
bannaði mér það, sagði
að ég gæti dottið og
meitt mig.
HELDUR MEÐ FIM-
LEIKAFÉLAGI APANNA
Lilli api og félagar hans í Brúðubílnum verða á fleygiferð við að skemmta íslensk-
um börnum í sumar eins og síðustu þrjátíu árin. Lilli er alltaf fimm ára og borðar
yfir hundrað banana á dag.
Nafn og aldur: Dagur Björn
Benediktsson, 9 ára.
Í hvaða skóla ertu: Vífilsskóla
Hjallastefnunnar í Garðabæ.
Í hvaða stjörnumerki ertu: Í
ljóninu.
Áttu happatölu? 53.
Helstu áhugamál/hvað gerirðu
í frístundum þínum? Les Syrpur,
leik við vini, fer í pottinn, fer í tölv-
una, spila og fer út í leiki.
Eftirlætissjónvarpsþáttur: Malcolm in the middle.
Besti matur? Burritos.
Eftirlætisdrykkur? Appelsín og vatn.
Hvaða námsgrein er í uppáhaldi? Stærðfræði.
Áttu gæludýr – ef svo er, hvernig dýr og hvað
heitir það? Já, kött. Hann heitir
Lárus og er 13 ára.
Skemmtilegasti dagurinn og af
hverju? Föstudagar af því að þá er
pitsa og kósí.
Eftirlætistónlistarmaður/hljóm-
sveit? Taio Cruz.
Uppáhaldslitur? Rauður.
Hvað gerðirðu í sumar? Fór á
Shell-mótið í Vestmannaeyjum,
fór á ættarmót í Breiðdal, var á
Reyðarfirði, var í sumarbústað og fór með pabba
mínum til Boston.
Skemmtilegasta bók sem þú hefur lesið? Víti í
Vestmannaeyjum.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðinn
stór? Flugmaður eins og pabbi.
Ætla að verða flugmaður eins og pabbi
Fullor›i› fólk sem ólst upp vi›
alkóhólisma flarf a›sto› vi› a› glíma
vi› aflei›ingar fless og til a›
ver›a betri foreldrar
ÁLFASALAN 2012
KRAKKAVEFUR UMFERÐARSTOFU er stórskemmtilegur
vefur ætlaður börnum í 1. til 5. bekk. Þar er að finna námsefni,
verkefni og leiki af ýmsu tagi sem vonandi vekja áhuga nemenda.
Slóðin er http://www.umferd.is/page/umferd.is_krakkar.