Fréttablaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 23
| FÓLK | 3TÍSKA
Á meðan Frakkar fagna nýjum for-seta og stjörnurnar búa sig undir kvikmyndahátíðina í Cannes setti
Karl Lagerfeld upp eina af sínum flott-
ustu Chanel-tískusýningum. Sýningin var
haldin í Versölum en innblásturinn kom
frá sólkonungnum sjálfum, Lúðvík 14.,
og frægustu drottningu Frakka, Maríu
Antoinette.
Hnébuxur, tjull, fegurðarblettir og
hárkollur settu sinn svip á sýninguna en
einnig mátti finna nútímaleg sundföt
og rokkaða buffalo-skó.
Sniðin voru í nútímalegri kantinum
en áferð efnanna minnti á barokktíma-
bilið. Fyrirsæturnar í sýningunni voru
70 talsins en í þeirra röðum var rokk-
dóttirin Georgia May Jagger. Margar
stórstjörnur, eins og Tilda Swinton og
Vanessa Paradis létu sjá sig á sýningunni
enda eru Chanel-tískusýningar engu
líkar.
ÓHEFÐBUNDIÐ
Hönnunin og fyrir-
sæturnar voru heldur
óvenjulegar eins og Karl
Lagerfeld einum er lagið.
Í ANDA MARÍU
ANTOINETTE
BAROKKTÍSKA Tískusýning Chanel fór fram í Versölum á
dögunum og var hún undir áhrifum frá barokktímabilinu.
FLOTT
BLANDA
Óhefðbundin
blanda af
barokk fatnaði
og pönkskóm
kemur vel út.
SUMARLEGT
Flott og sumar-
leg strákatíska.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flottar
sumarvörur
fyrir
flottar konur
st. 40 – 58
Skoðið brot af úrvalinu á Facebook
Þar sem gæði, þægindi og
fegurð fara saman!
af öllum vörum
Brjálað kringlukast
20 - 50% afsláttur
Nýjar vörur
Nýtt kortatímabil
Save the Children á Íslandi