Fréttablaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 28
KYNNING − AUGLÝSINGKrakkar FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 20124
1. Málað gólf
Auðveldlega má fríska upp á lúin trégólf og gamalt parket með
málningu. Pússa þarf yfirborðið vel, ryksuga svo yfir og skúra.
Þegar gólfið er orðið þurrt er það grunnað og svo málað yfir.
Skynsamlegast er að leita ráða fagmanna áður en hafist er handa.
2. Fóðruð bókahilla
Með fallegu veggfóðri má flikka upp á ódýrar bókahillur í barna-
herbergið. Þá má smíða ofan á þær þak svo þær nýtist einnig sem
dúkkuhús.
3. Öðruvísi bókahillur
Kryddhillur eru bráðsniðugar undir bækur. Málaðar í hressilegum
lit setja þær fallegan svip á herbergið.
4. Krítartafla á vegg
Sköpunarþörfin fær óhefta útrás ef krítartöflumálning er notuð á
stóra veggfleti. Gera má tilraunir með ólík form eins og talblöðrur
og ský og heila veggi.
5. Kojur spara pláss
Þar sem lítið pláss er en margir krakkar er sniðugt að smíða
hlaðrúm upp undir loft. Þar með nýtist gólflöturinn undir leik og
lærdóm.
6. Hirslur á vegg
Körfur hengdar upp á vegg geta verið þægilegar undir leikföng
og annað dót. Þá verður líka fljótlegra að taka til ef ekki þarf að
flokka ofan í skúffur.
Barnaherbergi
Barnaherbergin gegna oftast hlutverki
svefnherbergis og leikherbergis. Til að búa
til fallegt og skemmtilegt rými má grípa til
ýmissa einfaldra ráða. Þessar hugmyndir
voru fengnar af www.housetohome.co.uk.
1 2
3
4
5 6
Polarn O. Pyret hefur frá 1976 fram-leitt fyrsta f lokks barnaföt, þekkt fyrir gæði og góða hönnun. Fyrir-
tækið hefur að leiðarljósi að fötin séu þægi-
leg fyrir börn í leik, að litirnir séu glaðleg-
ir og ekki sé verið að ýta á börnin að verða
fullorðin. Hin þekkta röndótta fatalína er
framleidd á umhverfisvænan hátt úr 100%
lífrænni bómull og stærstur hluti af ung-
barnafatnaðinum einnig.
Polarn O. Pyret hefur að leiðarljósi að
fötin séu þægileg fyrir börn í leik og starfi.
„Við viljum að börnin fái að vera börn og því
er áhersla lögð á gæði, þægindi, glaðlega
liti og falleg mynstur.“ segir Harpa Hrund,
verslunarstjóri í Polarn O. Pyret í Smára-
lind.
„Yfirhafnirnar okkar eru sérlega vinsæl-
ar og hafa sannað sig í gegnum árin. Bæði
kuldafatnaðurinn og ekki síður útivistar-
fatnaðurinn sem er léttur og þægilegur en
samt vatnsheldur, vindheldur og andar.
Hann hentar því vel íslenskri sumarveð-
ráttu og er í raun hægt að nota allt árið.“
Harpa tekur fram að gerðar séu strangar
prófanir á flíkunum áður en þær fari í sölu
til að gæðin séu tryggð. „Við heyrum líka frá
viðskiptavinum okkar að fatnaðurinn gangi
frá einu barni til annars þó hann sé þveginn
og þveginn þá haldi hann sínum gæðum.“
„Allur bómullarfatnaðurinn er úr mjúkri
gæðabómull og sumarlínan í ár er sérlega
falleg, litríkar buxur, bolir, kjólar og sólhatt-
ar í stíl er mjög vinsælt.“
Harpa Hrund bendir á nauðsyn þess að
verja börn fyrir sólinni bæði í fríinu erlend-
is og líka hér heima. „Við erum með venju-
legan sundfatnað en einnig langerma boli
og buxur með sólarvörn sem stöðvar 98%
af UV geislum sólarinnar.“ „Börn þurfa hatt,
sólgleraugu og góða sólarvörn,“ segir Harpa
Hrund, „en við erum einmitt með sólgler-
augu sem fást í þremur stærðum og henta
börnum á mismunandi aldri, allt frá nokk-
urra mánaða til eldri barna.“
Eitt helsta vörumerki Polarn O. Pyret eru
bómullarföt með röndum, annars vegar blá
og hvít og hins vegar rauð og hvít. Þau hafa
verið framleidd í yfir þrjátíu ár. Þessi fatn-
aður er framleiddur á umhverfisvænan hátt,
allt frá akrinum til fullunninnar vöru og er
Svansmerktur sem er vottun Norrænu um-
hverfisstofunnar. „Það eru engin bleikiefni
eða eiturefni notuð,“ tekur Harpa fram.
Meirihlutinn af ungbarnafatnaðinum er
einnig vottaður að hennar sögn.
Polarn O. Pyret hefur framleitt barna-
föt í yfir 35 ár, eða síðan 1976, og versl-
un þeirra hefur verið á Íslandi í 25 ár.
„Við fengum strax góðar viðtökur þegar
við opnuðum í Kringlunni,“ segir Harpa
Hrund. „Tryggð viðskiptavinanna segir
sína sögu.“
Gerðu eitthva
ð öðruvísi í su
mar!
Skemmtilegt og fjölbreytt matreiðslunámskeið fyrir krakka
Skráning & upplýsingar
matreidslunamskeid.is
Fjölbreyttur matseðill,
spennandi verkefni
uppselt í fyrra
Kennari á námskeiðunum er
Guðmundur Finnbogason heimilis-
fræðikennari við Laugarnesskóla
Námskeiðin verða haldin í Laugar
nesskóla
og eru fyrir, 8-9 ára kl. 9-12,
10-12 ára kl. 13-17, & 13-15 ára kl 9-12
Námskeiðið k
ostar 17.900. In
nifalið er allt
hráefni, kenn
sla, aðstaða, u
ppskriftabæk
lingur, ávaxta
hressing og k
okkahattur
18. - 22. júní
25. - 29. júní
30. júlí. - 3. ágúst
9. - 13. júlíFJÓRAR VIKUR Í BOÐI
www.matreidslunamskeid.is
8-9 ára 10-12 ára 13-15 ára Hvert námskeið
stendur í 5 daga
frá mánudegi til
föstudags
Börn fái að vera börn
Barnafataverslanir Polarn O. Pyret eru á tveimur stöðum í Reykjavík, ein verslun hefur verið í Kringlunni frá upphafi, eða í nálægt 25 ár, og fyrir
nokkrum árum var opnuð ein glæsilegasta barnafataverslun landsins í Smáralind. Báðar verslanir eru með mikið úrval af frábærum gæðafatnaði
fyrir nýbura og börn að 11 ára aldri.
Verslun Polarn O. Pyret í Smáralind er glæsileg. MYNDIR/VALLI