Fréttablaðið - 17.05.2012, Side 44

Fréttablaðið - 17.05.2012, Side 44
17. maí 2012 FIMMTUDAGUR28 Út er komin rafbókin Subbuskap- ur og sóðarit, sem unnin er upp úr samnefndri bloggsíðu sem haldið var úti í rúmlega tvo mánuði fyrr á árinu. Í bókinni fjalla fjórtán karlar um bókmenntir og bókatengd hugð- arefni sín, sögu og samtíma, stjórn- mál, lestur, popp og klassík, um harm og fjör og fleira. Meðal höfunda eru Eiríkur Örn Norðdahl, Guðmundur Andri Thors- son, Haukur Már Helgason, Her- mann Stefánsson, Jón Karl Helga- son, Þórarinn Leifsson, Þröstur Helgason og Ævar Örn Jósepsson. Rafbókinni má hala niður á tölvu- tæku formi í þremur gerðum á vef- slóðinni subbukallar.blogspot.com en kaupverðið er háð samvisku les- andans og skal leggjast inn á reikn- ingsnúmer sem gefið er upp á síð- unni. Subbukallar til sölu HERMANN STEFÁNSSON Forsprakki subbukallanna, sem gefið hafa út rafbók. Platan Leyfðu ljósinu eftir Hildi Guðnadóttur sellóleikara og tón- skáld kemur í verslanir í dag. Leyfðu ljósinu er tónverk sem tekið var upp í Music Research Centre við Háskólann í York síð- astliðinn janúar af Tony Myatt. Ekkert var átt við upptökurnar eftir flutninginn. Platan kemur út á vegum útgáfufélagsins Touch og er einnig fáanleg á rafrænu formi hjá touchshop.org. Hildur Guðnadóttir býr í Berl- ín en undanfarin ár hefur hún unnið með ýmsum tónskáldum og listamönnum, þar á meðal múm, Stórsveit Nix Nolte, Skúla Sverr- issyni, Jóhanni Jóhannssyni, Val- geiri Sigurðssyni og fleirum. Hildur Guðna leyfir ljósinu HILDUR GUÐNADÓTTIR Sellóleikari og tónskáld sendir frá sér plötuna Leyfðu ljósinu. Þrjár myndlistarsýningar úr sýningarverkefninu verða opnaðar í Listasafni ASÍ á laugardag. Allar eru hluti af verkefninu (I)ndependent People á Listahátíð í Reykjavík. Í Ásmundarsal opnar Rúrí sýninguna Kortlagn- ingu framtíðar. Þar hefur hún í samvinnu við Gunn- laug M. Einarsson landfræðing dregið upp landakort sem varða framtíðina og byggja á spám um yfirvof- andi breytingar á lögun landa. Í Arinstofu verður sýning samstarfsverkefnisins IS-98, sem nefnist A View from the Other Side. Kvik- mynd skráir hrörnun fiskmarkaðar í Turku í teikn- aðri mynd. Verkinu er ætlað að vera spegilmynd af þeim breytingum sem eru að eiga sér stað í Norður- Evrópu. Í Gryfjunni frumsýnir Wooloo heimildarmyndina New Life Horbelev. Myndin lýsir viðbrögðum íbúa smábæjar í Danmörku þegar listamennirnir fengu þá til að gera sameiginlegan skúlptúr úr sjónvarpstækj- um sínum. Sýningarnar verða opnaðar klukkan 16. Þrjár sýningar í Listasafni ASÍ RÚRÍ Hefur unnið landakort í samvinnu við Gunnlaug M. Einarsson sem byggja á spám um yfirvofandi breytingar á lögun landa. Nú eru síðustu forvöð að berja augum sýninguna Antoni Tàpies – Mynd, líkami, tregi á Kjarvals- stöðum, en henni lýkur á sunnu- dag. Á sýningunni getur að líta mál- verk frá rúmlega sjö áratuga ferli spænska listamannsins Ant- oni Tàpies. Tàpies var Katalóníu- maður, fæddur í Barcelona árið 1923 en hann lést fyrr á árinu, þá 88 ára að aldri. Sýningin á Kjarvalsstöðum er sú fyrsta sem opnuð er eftir andlát hans. Sýningin hefur hlotið góðar undirtektir og ástæða til að hvetja listunnendur að láta tæki- færið til að sjá verk þessa heims- fræga listamanns ekki fram hjá sér fara. Sýningin er opin daglega frá klukkan 10 til 17. Tàpies senn að ljúka MYND, LÍKAMI, TREGI Sýningu Antoni Tàpies lýkur á sunnudag.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.