Fréttablaðið - 17.05.2012, Page 46
17. maí 2012 FIMMTUDAGUR30
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Það er nóg að gera fyrir tónlistarþyrsta Reykvíkinga á næstu vikum.
Auk Listahátíðar sem býður upp á nokkra spennandi tónlistarvið-
burði eru tvær tónlistarhátíðir í maímánuði. Í gær hófst Reykjavík
Live-hátíðin og stendur til sunnudags. Á henni koma fram yfir tutt-
ugu tónistaratriði, flest íslensk. Hátíðin fer fram á fjórum stöðum,
en aðaltónleikastaðirnir eru Gaukurinn og Prikið. Það er af nógu að
taka á Reykjavík Live. Í kvöld
spila t.d. Manami N (frá Japan),
Kiriyama Family, Agent Fresco og
Blood group og á morgun Cater-
pillarmen, Reykjavík!, Kimono
og Ensími. Dúndurprógramm og
armbandinu á hátíðina fylgir tilboð
á mat og drykk og frítt í Sundhöll-
ina!
Reykjavík Music Mess hefst svo á
föstudaginn í næstu viku. Þetta er
í annað sinn sem hátíðin er haldin.
Hún er minni í sniðum heldur en
í fyrra og fer fram á Faktorý og
Kex hosteli. Það eru tólf atriði á
dagskránni í ár. Þar á meðal eru
íslensku hljómsveitirnar Legend,
Dandelion Seeds, Reykjavík!,
Benni Hemm Hemm og Tilbury.
Það eru líka erlendir listamenn:
Man Made og Laura J. Martin
koma frá Bretlandi, Jarse frá Finn-
landi og svo eru tvær hálfíslensk-
ar sveitir. Dúóið My Bubba and Mi er íslenskt-sænskt og gerir út frá
Kaupmannahöfn, en Cheek Mountain Thief er hljómsveit sem enski
tónlistarmaðurinn Mike Lindsay, fyrrum meðlimur Tunng, stofnaði
með íslenskum tónlistarmönnum eftir að hann flutti hingað til lands.
Sem sagt. Allt fullt af spennandi músíkdjúsi í boði í Reykjavík á næstu
dögum og vikum!
Magnaður maímánuður
TÓNLISTARVOR Í REYKJAVÍK Finnska
dúóið Jarse spilar á Reykjavík Music
Mess.
> Í SPILARANUM
Sigur Rós - Valtari
Tilbury - Exorcise
Richard Hawley - Standing At The Sky’s Edge
Simian Mobile Disco - Unpatterns
> PLATA VIKUNNAR
Jack White - Blunderbluss
★★★★★
„Jack White með eina af plötum
ársins.“ - TJ
Jay-Z vill að Barack Obama Banda-
ríkjaforseti syngi lag eftir Al Green
á tónlistarhátíðinni Made In Amer-
ica sem rapparinn heldur í Fíla-
delfíu í september. Obama
söng einmitt Al Green-
lagið Stay Together í New
York í janúar.
Jay-Z, sem er mikill
stuðningsmaður Obama,
lýsti því nýlega yfir að
hann væri fylgjandi
hjónaböndum samkyn-
hneigðra, rétt eins og for-
setinn gerði fyrir skömmu.
„Það sem fólk gerir í svefn-
herbergjum sínum er einka-
mál og þú velur hvern þú
elskar,“ sagði rapparinn, sem ætlar að
hringja í forsetann á næstunni og biðja
hann um að syngja á hátíðinni.
„Hann verður svo upptekinn við
að bjarga heiminum að hann
hefur líklega ekki tíma en
ég ætla að spyrja hann,“
sagði hinn 42 ára Jay-
Z. Hann þarf ekki að
örvænta þótt Obama
stígi ekki á svið því
eiginkonan Beyoncé
Knowles verður meðal
söngvara.
JAY-Z Rapparinn vill að Barack Obama
syngi á tónlistarhátíðinni Made In
America.
Vill að Obama syngi
Dúettinn Soulsavers sendir
frá sér fjórðu plötuna sína
í næstu viku. Í þetta skipti
er Dave Gahan, söngvari
Depeche Mode, í aðalhlut-
verki, en Mark Lanegan
hefur sungið inn á tvær síð-
ustu plötur.
Breski dúettinn Soulsavers gaf út
fyrstu plötuna sína, Tough Guys
Don’t Dance, árið 2003. Fjórum
árum síðar byrjuðu hjólin að snú-
ast, en þá kom út platan It’s Not
How Far You Fall, It’s the Way You
Land. Hún markaði upphaf sam-
starfs dúettsins og söngvarans
Marks Lanegan, en hann er aðal-
söngvari plötunnar og söngvari
hinnar sálugu Screaming Trees.
Lagið Revival af plötunni náði tals-
verðum vinsældum og gospelskot-
ið poppið þótti vel heppnað. Árið
2009 leiddu svo Soulsavers og Mark
Lanegan saman hesta sína á ný á
plötunni Broken. Þar koma einnig
listamenn á borð við Mike Patton og
Will Oldham við sögu.
Þeir eiga sem sagt ekki í vand-
ræðum með að laða til sín hæfi-
leikaríka söngvara, sem kristall-
ast í því að Dave Gahan, söngvari
Depeche Mode, er aðalsöngvari
nýju plötunnar, The Light the Dead
See, sem kemur út í næstu viku.
Samstarfið varð til í kjölfarið á
því að Soul savers hitaði upp fyrir
Depeche Mode á tónleikaferðalagi
fyrir þremur árum.
Gahan er ánægður með afrakst-
urinn. „Þetta var ný reynsla,“
sagði hann í viðtali við vefritið The
Quietus. „Ég veit að einhver lög eru
dimm og þunglyndisleg, en að gera
þessa plötu var engu að síður mögn-
uð upplifun.“
Platan var tekin upp víða um
heim, í hljóðverum í London, New
York, Los Angeles, Berlín og Sid-
ney. Rich Machin, annar hluti Soul-
savers-tvíeykisins, segist í viðtali
við The Quietus vera duglegur að
grípa augnablikið. Platan var því
tekin upp svona víða og fóru sumar
upptökurnar fram heima hjá ókunn-
ugu fólki. atlifannar@frettabladid.is
Söngvari Depeche Mode
í slagtogi við Soulsavers
NÝ REYNSLA Dave Gahan er ánægður með samstarfið við Soulsavers.
Ég veit að einhver
lög eru dimm og
þunglyndisleg, en að gera
þessa plötu var engu að síður
mögnuð upplifun.
DAVE GAHAN
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 10. maí - 16. maí 2012
LAGALISTINN
Vikuna 10. maí - 16. maí 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 The Black Keys ............................. Gold On The Ceiling
2 Fun / Janelle Monae .............................. We Are Young
3 Train ........................................................................Drive By
4 Tilbury ................................................................Tenderloin
5 KK ................................................................................ Frelsið
6 Bubbi / Mugison ....................................................Þorpið
7 M83 ...............................................................Midnight City
8 Of Monsters And Men ...................................Six Weeks
9 Keane ...........................................Silenced By The Night
10 Magn. Þór / Jónas Sig. ...Ef ég gæti hugsana minna
Sæti Flytjandi Plata
1 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal
2 Bubbi Morthens......................................................Þorpið
3 Ýmsir .................Eurovision Song Contest 2011: Baku
4 Adele .................................................................................. 21
5 Mugison ....................................................................Haglél
6 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
7 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorla. ....... Ásamt Sinfó
8 Ýmsir .........................Hot Spring: Landamannalaugar
9 Jack White .................................................... Blunderbuss
10 Tilbury .....................................................................Exorcise
Frá aðeins kr. 119.900 - með öllu inniföldu -
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í 10 nátta ferð til
Tyrklands þann 12. júní Í boði er m.a. frábær sértilboð á Hotel Eken með öllu
inniföldu á ótrúlegum kjörum. Aðeins örfá herbergi í boði - bókaðu strax!
Frá kr. 119.900 í 10 nætur – Allt innfalið
m.v. tvo fullorðna og tvö börn í fjölskylduherbergi á Hotel Eken í Bodrum
með allt innifalið.
Verð 149.900 kr. m.v. tvo í herbergi á hotel Eken með allt innifalið.
Tyrkland
12. júní í 10 nætur