Fréttablaðið - 08.06.2012, Síða 4
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR4
EVRÓPUMÁL Spánverjum tókst að selja
ríkisskuldabréf fyrir 2,1 milljarð evra í
gær, aðeins fáeinum dögum eftir að fjár-
hagsvandræði spænskra banka juku enn á
óvissuna á evrusvæðinu.
Spænskir bankar hafa ekki lengur
aðgang að lánsfé frá öðrum evrópskum
bönkum og fjárfestum, en þurfa tugi
milljarða evra í fjárhagsaðstoð á næst-
unni. Einungis fimm milljarðar eru hins
vegar eftir í neyðarsjóði spænska ríkis-
ins, sem stofnaður var árið 2009 og ætl-
aður til þess að bjarga bönkum úr bráða-
vanda.
David Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands, segir nauðsynlegt að evruríkin
hraði viðbrögðum sínum til þess að eyða
markaðsóvissu.
Angela Merkel Þýskalandskanslari
sagði hins vegar ómögulegt að lagfæra
með hraði þann fjárhagsvanda, sem safn-
ast hefur upp síðan evran hóf göngu sína
fyrir tíu árum.
„Við þurfum ekki bara gjaldmiðils-
bandalag. Við þurfum líka svokallað fjár-
lagabandalag, sameiginlega stefnu á fleiri
sviðum fjárlagagerðar. Og við þurfum
fyrst og fremst stjórnmálabandalag,“
sagði Merkel að loknum fundi með Came-
ron í gær. „Það þýðir að við þurfum, skref
fyrir skref eftir því sem hlutirnir þróast,
að framselja völd til Evrópu líka.“ - gb
Cameron vill eyða óvissu sem fyrst en Merkel segir ekki hægt að vinda hratt ofan af vandanum:
Telur nauðsynlegt að framselja meiri völd
EKKI ALVEG SAMMÁLA David Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands, og Angela Merkel Þýskalandskanslari. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓLK 65 skemmtiferðaskip munu
heimsækja Akureyri í sumar.
Fyrsta skipið lagðist að bryggju
í gær, en von er á síðasta skipinu
þann 17. september.
Í fyrra komu tæplega 50 þús-
und farþegar til Akureyrar með
skemmtiferðaskipum, en í sumar
er gert ráð fyrir um 67 til 68 þús-
und manns. Skipið sem lagðist að
bryggju í gær er lítið og með um
320 farþega. Strax á laugardag
kemur talsvert stærra skip, Vent-
ura, sem er með um 2.500 manns
um borð. - þeb
Farþegum fjölgar um þriðjung:
65 skip fara
norður í sumar
DANMÖRK Danska þingið sam-
þykkti með miklum meirihluta
í gær frumvarp sem heimilar
hjónabönd samkynhneigðra.
Hingað til hafa samkynhneigðir
í Danmörku ekki getað gengið
í hjónaband, heldur aðeins haft
möguleika á að skrá sig í sam-
búð.
Kirkju- og jafnréttismálaráð-
herra Danmerkur, Manu Sareen,
sagði daginn í gær sögulegan.
Bera mætti þennan áfanga
saman við það þegar konu var
leyft að fá prestvígslu.
Búist er við að fyrstu samkyn-
hneigðu pörin geti látið gefa sig
saman í kirkju föstudaginn 15.
júní. Prestar ráða því sjálfir
hvort þeir gefi samkynhneigða
saman í hjónaband. -ibs
Ný lög í Danmörku:
Samkynhneigð-
ir fá að ganga í
hjónaband
Sjóslysaæfing á Skjálfanda
Almannavarnanefnd Þingeyinga og
embætti Lögreglustjórans á Húsavík
standa fyrir sjóslysaæfingu á Skjálf-
anda og á Húsavík á morgun, laugar-
daginn 9. júní. Æfingin er haldin í
samstarfi við almannavarnadeild ríkis-
lögreglustjóra og Landhelgisgæsluna.
Æfa á viðbrögð við bruna um borð í
hvalaskoðunarskipi.
ALMANNAVARNIR
GENGIÐ 07.08.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,0019
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,39 129,01
198,73 199,69
161,26 162,16
21,69 21,816
21,160 21,284
17,901 18,005
1,6167 1,6261
194,50 195,66
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
hópkaup.is
HÓPKAUP.IS Í DAG
Lúxus sumarþvottur: handforþvottur, bón og þurrkun
Bíladagar þessu viku
á Hópkaup.is
Glans bílaþvottastöð er þekkt
fyrir góðan og hraðan þvott.
í krafti fjöldans
1.190 kr.
1.990 kr.
Verð
40%
Afsláttur
800 kr.
Afsláttur í kr.
GILDIR 24 TÍMA
IÐNAÐUR Olía verður ekki unnin á
Drekasvæðinu fyrr en að uppfyllt-
um ströngustu umhverfisreglum,
og vinnsla mun ekki hefjast áður
en allur nauðsynlegur öryggisbún-
aður vegna mengunaróhappa er til
staðar í landinu.
Íslendingar geta búist við því
að upp úr 2025 verði þrjú olíu-
svæði norð-
an Íslands; á
Drekasvæðinu,
út af Austur-
Grænlandi, og
við Jan Mayen.
Íslensk stjórn-
völd stefna að
því að byggja
upp þjónustu
á Norðurlandi
við öll olíu-
svæðin þrjú.
Þetta kom
fram í erindi Össurar Skarphéð-
inssonar utanríkisráðherra á
morgunverðarfundi Arion banka
um Drekasvæðið og hugsanlega
olíuvinnslu Íslendinga.
Össur er bjartsýnn á olíufund á
Drekasvæðinu, en mestum tíma
varði hann til að lýsa þeirri skoðun
sinni að, þrátt fyrir lofandi efna-
hagsleg áhrif á íslenskt samfélag,
þá skyldi umhverfið njóta vafans.
„Það sem gerðist í Mexíkóflóa var
stórslys. Slys af sömu stærðar-
gráðu á einu af þessum þremur
svæðum norðan Íslands yrði hins
vegar slys af allt annarri og hrika-
legri stærðargráðu.“
Össur útskýrði ástæðuna fyrir
þessari fullyrðingu sinni. Í köldum
sjó brotnar olía seint og illa niður
og umhverfisáhrifin því mun meiri
í okkar heimshluta. Fyrir Ísland
er hættan sú sama, hvar sem slys
yrði, þar sem straumrastir bera
olíuna að ströndum Íslands óháð
staðsetningu.
Varðandi uppbyggingu þjón-
ustu á Íslandi fyrir olíusvæðin
þrjú upplýsti utanríkisráðherra
að hann hefði þegar átt formlegar
viðræður við Kuupik Kleist, for-
sætisráðherra Grænlendinga, um
samstarf. Sömuleiðis hefði málið
verið tekið nýlega upp í samræð-
um milli hans og Jonasar Gahr
Störe, utanríkisráðherra Noregs,
og þeir orðið sammála um að taka
málið upp í opinberri heimsókn
Össurar til Noregs síðar á árinu.
Össur leggur þunga áherslu á
samvinnu þjóðanna þriggja en
hann kvað það jafnframt farsælast
fyrir Íslendinga, komi til vinnslu á
Drekanum, að í framtíðinni verði
settur á fót Auðlindasjóður að fyr-
irmynd Norðmanna, og sagði það
sérstaklega nauðsynlegt til að
tryggja að hugsanlegur afrakstur
af olíuvinnslu á næsta áratug leiði
ekki til ójafnvægis og ofhitnunar í
íslenska hagkerfinu.
svavar@frettabladid.is
Olíuvinnsla skal háð
ströngustu reglum
Árið 2025 má búast við olíuvinnslu á þremur svæðum norðan Íslands. Samkomu-
lag við Grænlendinga og Norðmenn um víðtækt samstarf er komið á dagskrá
stjórnvalda. Afrakstur olíuvinnslu er best geymdur í sérstökum auðlindasjóði.
ÖSSUR SKARPHÉÐ-
INSSON
MEXÍKÓFLÓI 2010 Olía brotnar hraðar niður í heitum sjó en köldum. Önnur staða og
alvarlegri kæmi því upp ef olía lekur út norðan Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
29°
22°
23°
18°
22°
21°
16°
16°
24°
17°
30°
26°
31°
18°
20°
18°
17°
Á MORGUN
5-10 m/s.
SUNNUDAGUR
3-8 m/s.
7
6
8
13
11
13
14
10
5
12
9
5
6
8
7
5
15
8
6
7
5
9
7
10
10
12
13
1010
9
5
12
HELGARVEÐRIÐ
Það verða áfram
austlægar áttir
ríkjandi um helgina
í þurru og nokkuð
björtu veðri. Hitinn
breytist lítið og
verður áfram eilítið
svalara austanlands
en gæti náð yfi r
16°C vestanlands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SVÍÞJÓÐ Sænsk stúlka verður
fulltrúi Íslands í alheimsfeg-
urðarsamkeppni fyrir ungar
stúlkur, Miss Teenager, sem
haldin verður í Gvatemala síðar
í sumar.
Sænska stúlkan, Juliana Arde-
nius, hefur engin tengsl við
Ísland.
Á vef sænska blaðsins Borås
Tidning segir að hún hafi sjálf
sótt um þátttöku í keppninni
og verið valin fulltrúi Íslands.
Norðurlöndin hafi verið ein heild
í úrtakinu og einn keppandi val-
inn þaðan. Svíþjóð hefur þó eigin
fulltrúa í fegurðarkeppninni.
Juliana Ardenius hefur stund-
að fyrirsætustörf og er að ljúka
framhaldsskólanámi. - ibs
Miss Teenager í Gvatemala:
Sænsk stúlka
fulltrúi Íslands
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum stöðvaði nítján ára öku-
mann fyrir ofsaakstur á Grinda-
víkurvegi. Hann reyndist vera
á 173 kílómetra hraða, en þar
er hámarkshraði 90 kílómetrar.
Ökumaðurinn var sviptur öku-
réttindum og þarf að auki að
greiða 150 þúsund krónur í sekt.
Lögreglan á Suðurnesjum
hafði afskipti af á fimmta tug
ökumanna sem reyndust aka
yfir leyfilegum hámarkshraða.
Fjórir ökumenn reyndust ekki
hafa spennt bílbelti, tveir töluðu í
farsíma við akstur og þrír höfðu
filmur í fremri hliðarrúðum. -ktg
Lögreglan á Suðurnesjum:
Nítján ára á
ofsahraða