Fréttablaðið - 08.06.2012, Page 6
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR6
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
Glæný Bláskel
frá Stykkishólmi
Ferskur Túnfiskur
Alla föstudaga og laugardaga
Humar 2.350 kr.kg
Óbrotinn fyrsta flokks humar
Fiskibollur
að dönskum hætti
(lax, þorskur, dill, rjómi, krydd)
Harðfiskurinn
frá Stykkishólmi
Þessi sjúklega góði
Humarsoð
frá
Hornarfirði
Ætlar þú í veiði í sumar?
Já 28,5%
Nei 61,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér viðhaldi á vegum á
Íslandi ábótavant?
Segðu þína skoðun á visir.is
SÝRLAND, AP „Það sem við sjáum
gerast vekur okkur viðbjóð,“
sagði Hillary Clinton, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna í gær,
um nýjustu fjöldamorðin, sem
framin voru í Sýrlandi á mið-
vikudag.
„Ofbeldið, sem við urðum vitni
að aftur í Hama í gær og stjórnin
ber ábyrgð á, er einfaldlega sam-
viskulaust,“ sagði hún í Istanbúl í
Tyrklandi í gær að loknum fundi
sem hún átti þar með utanríkis-
ráðherrum og erindrekum sex-
tán ríkja.
„Grimmd og undirferli Assads
hefur eflst um allan helming og
Sýrland mun ekki verða og getur
ekki orðið friðvænlegt, stöðugt
og hvað þá lýðræðislegt fyrr en
Assad fer,“ bætti hún við.
Bandaríkin og fleiri Vesturlönd
jafnt sem arabaríki hafa undan-
farnar vikur og mánuði reynt að
ná samstöðu í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna um harðari
aðgerðir gegn Sýrlandsstjórn.
Þær tilraunir hafa jafnan mætt
andstöðu Rússa og Kínverja sem
geta ekki hugsað sér að styðja
erlenda íhlutun í málefni Sýr-
lands, enda gætu bæði Rússar og
Kínverjar þá hugsanlega átt von
á sambærilegum kröfum síðar
meir um alþjóðlega íhlutun, til
dæmis í málefni ýmissa minni-
hlutahópa í Rússlandi og Kína.
Friðargæsluliðum á vegum
Sameinuðu þjóðanna og Araba-
bandalagsins var í gær meinað-
ur aðgangur að þorpinu Qubair,
sem er skammt norður af borg-
inni Hama. Það voru félagar í
stjórnarher Assads, sem hindr-
uðu för þeirra.
Nokkrum íbúum þorpsins tókst
að flýja þaðan á miðvikudag,
þegar vígasveitir fóru um þorp-
ið og myrtu þar nánast hvern
einasta mann, einkum konur og
börn.
Þeir sem tókst að komast lif-
andi burt segja að árásin á þorpið
hafi byrjað með sprengjuárásum
stjórnarhersins en í framhaldinu
hafi vígasveitirnar haldið inn
í þorpið, gengið hús úr húsi og
drepið fólk.
Þetta er lítið þorp. Íbúðarhús-
in eru ekki nema um þrjátíu en
engin leið hefur verið að fá stað-
festar upplýsingar um það, hve
margir voru myrtir.
Ríkisfjölmiðlar í Sýrlandi
hafa neitað öllum frásögnum um
fjöldamorð, en segja að stjórnar-
herinn hafi gert árás á þorpið
eftir að hafa fengið ábendingu
frá almenningi.
gudsteinn@frettabladid.is
Hillary Clinton ítrekar
að Assad verði að víkja
Hrottasveitir Sýrlandshers sagðar hafa myrt flesta þorpsbúa í Qubair í kjölfar loftárása á þorpið. Einungis
örfáum tókst að komast undan og skýra frá því sem gerðist. Clinton ómyrk í máli um ofbeldið í Sýrlandi.
SÝRLENSKIR UPPREISNARMENN Sveitir uppreisnarmanna segjast ekki lengur
bundnar af vopnahléi og hafa síðustu daga fellt tugi stjórnarhermanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GRIKKLAND, AP Ilias Kasidar-
is, þingmaður fasistaflokksins
Gylltrar dögunar, réðst í gær-
morgun í beinni sjónvarpsútsend-
ingu á Liönu Kanelli, þingkonu
gríska kommúnistaflokksins.
Hann sló hana þrisvar í andlitið
en hafði rétt áður skvett vatni á
aðra þingkonu, Renu Dourou frá
Róttæka vinstribandalaginu, í
sama umræðuþætti.
Útsendingin var stöðvuð en
átökin héldu áfram enn um sinn
í sjónvarpssal. Ríkissaksókn-
ari gaf þegar í stað út handtöku-
beiðni á hendur Kasidaris, en
engin afsökunarbeiðni fékkst frá
Gylltri dögun.
Deilurnar í sjónvarpssal milli
Kasidaris og Kanelli snerust um
það, hvort olía væri í Miðjarðar-
hafinu suður af Krít. Kasidaris
reiddist hins vegar Dourou vegna
þess að hún minntist á dómsmál
gegn honum vegna ofbeldisverka
frá árinu 2007, þegar félagar
hans, sem voru í för með honum,
réðust á námsmann í Aþenu,
börðu hann og stungu með hníf
og stálu loks persónuskilríkjum
hans.
Félagar í flokknum, sem vilja
ekki láta kalla sig nýnasista held-
ur fasista, hafa verið sakaðir um
að beita óspart ofbeldi, einkum
gegn útlendingum. - gb
Þingmaður nýnasista í Grikklandi handtekinn:
Líkamsárás í beinni
ÞINGMAÐUR BEITIR OFBELDI Liana Kanelli verður fyrir barsmíðum af hendi Iliasar
Kasidaris. NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL Íslendingar hafa orðið sífellt
ánægðari með sinn hag síðustu misseri. Fleiri
Íslendingar segjast dafna og færri eiga í basli
en áður og þá hefur andleg líðan farið batn-
andi. Þetta leiðir ný könnun Capacent Gallup
á líðan Íslendinga í ljós en Capacent hefur
mælt stöðu og andlega líðan Íslendinga frá
því í maí 2010.
Þegar Capacent hóf að nota þessa mæli-
kvarða töldu 52% Íslendinga sig eiga í basli
í lífinu en 45% sögðust dafna. Á síðustu
tveimur árum hefur þróunin hins vegar verið
nokkuð stöðug í jákvæðari átt. Þannig töldu
alls 67,4% Íslendinga sig dafna í nýjust mæl-
ingunni. Þá telja 29,0% sig eiga í basli. Aldrei
hafa fleiri talið sig dafna og færri talið sig
eiga í basli.
Sá hópur Íslendinga sem er í erfiðastri
stöðu hefur hins vegar ekki minnkað á þeim
tveimur árum sem liðin eru frá því að Capa-
cent hóf þessar mælingar. Telja 3,6% sig nú
vera í þrengingum en hlutfallið var 3% í maí
2010.
Spurð um andlega líðan sína kom í ljós að
tæp 48% sögðust upplifa mikla hamingju en
hafa litlar áhyggjur. Hefur það hlutfall ekki
mælst hærra. Þá sögðust tæp 8% hafa miklar
áhyggjur og upplifa litla hamingju en það er
nálægt meðaltali mælinga síðustu tvö árin.
- mþl
Capacent Gallup hefur síðustu tvö ár mælt andlega líðan Íslendinga:
Brúnin er að lyftast á Íslendingum
ÍSLENDINGAR Mælingar Capacent leiða í ljós að það
hefur heldur birt yfir þjóðinni síðustu tvö ár. Sá hópur
sem metur sig í mjög erfiðri stöðu hefur hins vegar
ekki minnkað. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BANDARKÍKIN, AP Sagnfræðingar
í Bandaríkjunum hafa nú fundið
læknaskýrslur um dauða Linc-
olns, en þær
hafa verið
týndar í 147 ár.
Lincoln dó árið
1865, þegar
hann varð fyrir
skoti morðingja
í leikhúsi í
Washington.
Hinn 23 ára
gamli lækna-
nemi, Charles
Leale kom fyrst að forsetanum en
hann skrifaði einnig skýrsluna.
Skýrslan þykir bæði sýna skjót
viðbrögð læknanemans og fagleg
vinnubrögð, en hún er talin skrif-
uð á sérstaklega nákvæman og
faglegan hátt. -ktg
Skýrsla um dauða Lincolns:
Nú fundin 147
árum síðar
ABRAHAM
LINCOLN
Ók á móti umferð
Kona á áttræðisaldri lenti í verulegum
vandræðum í umferðinni á miðvikudag
þegar hún ók bíl sínum á öfugum
vegarhelmingi á Hafnarfjarðarvegi.
Vegfarandi kom konunni til aðstoðar
og hringdi í lögregluna, sem hjálpaði
henni að snúa bílnum við. Fram kemur
á vef lögreglunnar að henni hafi til
öryggis verið fylgt á fyrirhugaðan
áfangastað. „Konan var allsgáð en hún
hafði óvart tekið „ranga beygju” með
fyrrgreindum afleiðingum,“ segir þar.
LÖGREGLUMÁL
DÓMSTÓLAR Orkuveita Reykjavík-
ur var fyrir Hæstarétti sýknuð í
tveimur málum af kröfum Ístaks
um viðbótargreiðslur vegna breyt-
inga sem gerðar voru með lögum
á byggingarvísitölu. Við það lækk-
aði greiðsla til Ístaks án þess að
kostnaður við verkið hafi breyst.
Héraðsdómur hafði áður dæmt
Orkuveituna til að greiða Ístaki
tæpar þrjá milljónir króna vegna
þessa í öðru málinu og rúmar 26
milljónir í hinu. Hæstiréttur féllst
ekki á að samningur fyrirtækj-
anna tæki til slíkra breytinga. - óká
Héraðsdómi var snúið við:
OR þarf ekki að
greiða Ístaki hf.
ÖRYGGISMÁL Skemmtibátur með
tvo menn um borð var nálægt því
að stranda við Engey í gær. Bát-
urinn varð vélarvana. Björgunar-
liðsmenn frá Ársæli í Reykjavík
komu þó taug í bátinn í tíma.
Beiðni barst frá bátnum um
klukkan hálf tvö. Björgunarsveit-
in Ársæll var kölluð út og fór
þegar á staðinn á tveimur björg-
unarbátum. Einnig var Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins kallað út.
Þegar björgunarsveitin kom var
báturinn aðeins nokkrum metr-
um frá fjörunni. Báturinn var
dreginn til hafnar í Reykjavík af
björgunarbáti Ársæls. - shá
Varð vélarvana við Engey:
Bátur mjög ná-
lægt strandi
KJÖRKASSINN