Fréttablaðið - 08.06.2012, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 8. júní 2012 17
Samkvæmt rannsókninni „Sam-eiginleg forsjá sem meginregla
og íhlutun stjórnvalda – Rann-
sókn um sjónarhorn foreldra“, frá
árinu 2008, dvöldu 24% barna sem
áttu fráskilda foreldra jafnlengi
hjá þeim báðum. Ýmsar útgáfur af
helgarfyrirkomulagi summuðust
upp í 40%. Þótt nýrri tölur liggi
ekki fyrir segir tilfinningin manni
að víxlbúsetufyrirkomulagið hafi
heldur sótt á síðan.
Samfélög eru oft framsæknari
en löggjafinn. Vikupabbinn er
að stinga helgarpabbann af. En
hvorki gildandi barnalög né þær
breytingar sem til stendur að gera
á þeim gera sérstaklega ráð fyrir
„viku og viku“. Það stendur reynd-
ar til að setja það í lög að heimilt
verði „þegar sérstaklega stendur
á“ að úrskurða um umgengni í
allt að 7 daga af hverjum 14. En
jafnframt er áfram áréttuð sú
skekkja sem felst í sterkari réttar-
stöðu þess foreldris sem barnið
hefur lögheimili hjá (sem oftast er
mamman).
Í frumvarpinu segir: „Ef for-
eldrar búa ekki saman hefur það
foreldri sem barn á lögheimili hjá
heimild til þess að taka afgerandi
ákvarðanir um daglegt líf barns-
ins, svo sem um hvar barnið skuli
eiga lögheimili innan lands, um
val á leikskóla, grunnskóla og dag-
gæslu, venjulega eða nauðsynlega
heilbrigðisþjónustu og reglubund-
ið tómstundastarf. Foreldrar sem
fara saman með forsjá barns skulu
þó ávallt leitast við að hafa samráð
áður en þessum málefnum barns
er ráðið til lykta.“
Ég get kannski skilið þá þörf
stjórnvalda að vilja að það sé
ábyrgð eins aðila hvort barnið fari
í fótbolta eða skák en lagagreinar
sem þessar eru óneitanlega ekki
í anda þess sem manni finnst að
orðin „sameiginleg forsjá“ ættu að
þýða. Fyrst til eru foreldrar sem
ekki búa saman en vilja deila að
fullu ábyrgð á uppeldi barna sinna
ættu barnalög að bjóða þeim upp
á það.
Í gildandi barnalögum segir:
„Foreldrar geta samið um að
forsjá barns verði sameiginleg. Í
samningi um sameiginlega forsjá
skal greina hjá hvoru foreldra
barn skuli eiga lögheimili og þar
með að jafnaði hafa fasta búsetu.“
Börn verða því lögum samkvæmt
að jafnaði með fasta búsetu á
einum stað. Af hverju? Geta börn
átt tvær mömmur, en ekki tvo
tannbursta?
Sameiginleg en samt ekki alveg
Skyldan til að velja lögheimili býr
til kerfisbundna skekkju á rétti
foreldra, sama hvort þeir kæra sig
um hana eða ekki. Algeng krafa
feðra um möguleikann á tvöföldu
lögheimili er sprottin af þessu. Og
þótt forritarinn í mér hafi reyndar
örlitla samúð með þeim sem halda
því fram að þetta gæti verið vesen
þá verður kerfið að þjóna fólk-
inu en ekki öfugt. Út frá sjónar-
miðum jafnréttis og heilbrigðrar
skynsemi þarf því klárlega eitt
af tvennu að gerast: Annað hvort
þarf að heimila tvöfalt lögheimili
barna eða að afnema þann sjálf-
krafa umframrétt sem lögheimilið
veitir öðru foreldrinu.
Þetta lögheimilisrugl er reyndar
hluti af stærra vandamáli: Hið
opinbera biður okkur um að segja
því hvar við búum, oftast með
þeim mjúku rökum að það „það
sé gott að vita hver sé hvar svo
hægt sé að ná í hann“ en síðan
hefur þessi skráning áhrif á allt
frá skattamálum til aðgengis að
tómstundastarfi. Meira að segja
sumar af tillögum að lögum um
tvöfalt lögheimili barna vildu ein-
skorða möguleikann við sama
sveitarfélag. Rétt eins og það væri
óleysanlegt vandamál fyrir bæi að
deila kostnaðinum af skólagöngu
þessara barna. Eða það að barn
gæti labbað í skólann trompaði
alla aðra þætti í velferð þess.
Fínt að dæma fólk til sátta
Þrátt fyrir að nefndin sem átti að
yfirfara barnalögin hafi lagt til
að dómarar fengju heimild til að
dæma foreldrum sameiginlega
forsjá vildi innanríkisráðherra
ekki fara að ráðum hennar. Nú
virðist stefna í að þingið ætli að
hafa þá heimild inni sem er gott,
enda verður ekki séð að þau rök
ráðuneytisins að vont sé að „dæma
fólk til sátta“ séu sterk. Staðan
í dag er nefnilega þessi: ef ekki
tekst að semja þá er móðurinni
að jafnaði dæmd forsjáin. Þetta
hefur auðvitað áhrif að samnings-
stöðu feðra. Tillögum þingsins
má fagna. En það þarf að ganga
lengra.
Vikupabbinn er
að stinga helgar-
pabbann af.
„Heiða á tvo tannbursta“
Pawel Bartoszek
Stærðfræðingur
Í DAG
Á forsíðu Fréttablaðsins 4. júní er viðtal við framkvæmdastjóra
Íbúðalánasjóðs, þar sem hann
varar við óverðtryggðum húsnæð-
islánum. Því vil ég fagna, þótt ein-
ungis sé hálf sagan sögð, eins og
vikið skal að síðar. Raunar virðast
aðaláhyggjur framkvæmdastjórans
stafa af því að ÍLS sé alls ekki sam-
keppnisfær við bankana sem fjár-
magna útlán sín með ódýrum inn-
lánum (hár vaxtamunur). Áhyggjur
hans eru eðlilegar og raunar hlýt-
ur maðurinn að hafa samviskubit,
að hann skuli þurfa að gefa út sér-
stök ríkisskuldabréf í þessu skyni,
þrátt fyrir góðan vilja ríkissjóðs að
greiða háa vexti.
Meginástæða skrifa minna er
hins vegar athugasemd af minni
hálfu fyrir nokkrum mánuðum í
grein í Mbl. í þá veru að nú sé góður
tími til að leggja niður ÍLS. Þótt
ekki væri þar útskýrt hvers vegna
leggja skuli ÍLS niður, þá mátti
ráða af samhenginu að lífeyrissjóð-
irnir ásamt bönkunum ráði full-
komlega við að veita öll íbúðalán.
Auk þess hefur lengi verið vitað að
ÍLS er gjaldþrota. Það er rétt eftir
athyglissjúkum alþingismönnum,
nú þegar áróðurinn er gegn verð-
tryggðum lánum, að leggja ÍLS þær
skyldur á herðar að veita óverð-
tryggð lán. Er ekki vaxtakostnað-
ur ríkissjóðs orðin nægjanlega hár?
Hin hliðin á óverðtryggðu lánun-
um snýr að því hvað gerist þegar
verðbólgan lækkar en hækkar ekki
eins og framkvæmdastjórinn víkur
að.
Raunar hefur fjármálaheimurinn
verið að bíða eftir styrkingu geng-
is krónunnar, auknum kaupmætti
og lækkun verðbólgu. Ríkisstjórn-
in hefur sýnt mjög ákveðinn vilja
til að halda okkur í stöðugu ástandi
fast við botn efnahagslægðarinn-
ar. Þess vegna mun ástandið ekki
batna meðan hún ræður ríkjum. Nú
sér hins vegar fyrir endann á því og
þá gæti fjárfesting farið af stað og
gengið farið að styrkjast. Þá hafa
bankarnir enn eftir nokkur ár í að
unnt sé að segja upp óverðtryggð-
um útlánum og raunvaxtakostnað-
ur lántaka vex mikið. Það kemur
illa við þá alla, ekki bara þá sem
„spenntu bogann of hátt” eins og
framkvæmdastjórinn nefnir. Það
er raunar þessi framtíðarsýn sem
hvetur bankana til óverðtryggðra
útlána á vöxtum sem breytast ekki
í 3 til 5 ár. Þessir vextir eru raun-
ar ekki hátt yfir verðbólgu núna
(raunvextir ekki háir), en það er
ekki verðbólgan núna sem skiptir
máli, heldur væntanleg verðbólga
næstu árin. Þannig ættu lögin að
skylda Seðlabankann til að hugsa í
stað þess að byggja á vitleysu.
Óverðtryggð lán
Fjármál
Halldór I. Elíasson
stærðfræðingur
Ríkisstjórnin
hefur sýnt mjög
ákveðinn vilja
til að halda
okkur í stöðugu ástandi
fast við botn efnahags-
lægðarinnar.
- örugg bifreiðaskoðunSími 570 9000 - Þjónustuver og tímapantanir 570 9090 - www.frumherji.is
Eineygður?
Er ekki allt í lagi með ljósin?
Hjólbarðar?
Það verður að vera almennilegt grip.
Í dag 8. júní kl. 13.00 opnum við nýja og glæsilega
bifreiðaskoðunarstöð að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði
Öryggisbelti?
Svo þú getir gengið burt af slysstað.
OPNUNARTILBOÐ:
15% afsláttur af aðalskoðunum
ökutækja og ferðavagna. Ef þú
lætur skoða bílinn og vagninn
saman færðu 20% afslátt af
skoðunargjaldi vagnsins.
opnar í Hafnarfirði
Láttu skoða ökutækið þitt eða ferðavagninn hjá okkur.
Góð aðstaða fyrir viðskiptavini og að sjálfsögðu kaffi á könnunni.
1. Actavis
2. Fjarðakaup
1
2
Hér