Fréttablaðið - 08.06.2012, Page 34
8 • LÍFIÐ 8. JÚNÍ 2012
05.30 Vakna, tek öll vítamínin mín og glútamín. Borða ban-
ana og Thermo booster frá QNT, það er eins og kaffið mitt.
06.15 Kenni Fitness form sem er lokað námskeið fyrir stelp-
ur á öllum aldri í World Class Laugum.
07.30 Borða morgunmat sem er yfirleitt hafrar og eggjahvít-
ur.
08.00-12.00 Einkaþjálfa í World Class Laugum. Borða milli-
mál kl.10.00; prótein-shake frá QNT og ávöxt.
12.00 Hádegismatur á Nings eða alltaf í undirbúningi fyrir
mót.
13.00 Fer sjálf á æfingu en ég lyfti sex sinnum í viku.
15.00 Borða prótein-shake frá QNT og ávöxt. Þjálfa svo fleiri
kroppa, misjafnt hversu lengi fram eftir ég vinn.
17.00 Millimál: Bygg-morgunkorn eða boost með höfrum og
próteini frá QNT (verð oft að hafa það eitthvað fljótlegt þegar
ég er að þjálfa).
20.00 Kvöldmatur. Ég er mjög mikið fyrir fisk og fæ allan
minn fisk hjá fiskversluninni Hafinu.
22.00 Casein-prótein frá QNT fyrir svefninn. (Það er prótein
sem meltist hægar yfir nóttina.)
DAGUR Í LÍFI AÐALHEIÐAR
bikiní-fitness og þá er bara komið
fram í einni lotu eða í bikiníi. (Sund-
bolir eru alveg dottnir út alls staðar).
Stöðurnar eða pósurnar eru frekar
frjálsar í bikiní-fitness.
Svo er body-fitness eða figure-fit-
ness-flokkurinn fyrir ofan okkur. Þar
eru þær með meiri vöðvamassa,
skurð og aðrar pósur.
Nú hafa háværar raddir verið
uppi um öfgar þessarar íþróttar
og að þær séu ekki hollar líkam-
anum. Hvaða skoðun hefur þú á
því? Ég held að það geti verið öfgar
í öllu sporti, sama hvert það er.
Mér finnst alltof margar stelpur
fara út í það að keppa og vita ekki
alveg hvað þessu fylgir – bæði er
fyrirvarinn alltof stuttur grunnurinn
enginn. Svo fara þær að æfa sex til
tólf sinnum í viku eða oftar eins og
atvinnumenn, skilja svo ekkert í því
að þær bæta á sig því þær fara bara
í gömlu rútínuna sína strax aftur.
Þetta er engan veginn búið eftir
mót. Það er ekki hægt að leggjast
í leti og sætindi. Til að gera þetta
rétt þarf að trappa líkamann aftur
upp hægt og rólega. Þetta er meira
lífsstíll sem ég hef valið mér að lifa
eftir en ekki bara tímabil sem ég vil
vera flott á í einn dag.
Hvernig líður þér bæði andlega
og líkamlega eftir mót – kemur
niðursveifla eins og oft er talað
um? Já, ég vil alveg að fólk viti það
að þetta er alls ekki fyrir alla, það
koma sveiflur eftir mót, en ég er
auðvitað búin að læra á mig og veit
að þetta er bara í hausnum á mér
og er hætt að pæla í því. Ég reyni
bara að undirbúa hugann þeim mun
betur áður en það gerist. Og er ég
það dugleg að halda mér í formi allt
árið og búin að gera þetta að lífsstíl
svo það er miklu minni sveifla núna
en áður. En fólk verður að átta sig á
því að formið sem það sér á kepp-
endum upp á sviði er ekki eðlilegt
dagsform þar sem keppendur eru
kannski ekki búnir að drekka neinn
vökva þann dag og búnir að bera lit
og olíu á sig til að ýkja allar línur og
pumpa allt upp. Svo við erum ekki
alveg svona alla daga.
Hvernig hagar þú þér eftir mót,
leyfirðu þér að borða allt sem þig
langar í eða eru þetta lítil skref
til eðlilegs lífs aftur? Ég hef alltaf
fengið mér góða máltíð og nammi
eftir mót, kannski líka smávegis
daginn eftir. En ég reyni svo eftir
það að fara aftur í sama fæði og
ég var í meðan ég var í köttinu og
trappa mig hægt upp og bæti inn
stærri nammidögum til að byrja
með. En ég verð svo að viður-
kenna að ég er algjör matarsælkeri
og elska að gera vel við mig með
góðum mat og baka kökur.
Hver eru næstu skref/mark-
mið þín? Slaka vel á í sumar og
þjálfa aðra kroppa. Svo ætla ég að
sjálfsögðu að halda áfram að bæta
mig og búa mig undir að gera betur
næst en það er ekkert ákveðið hvar
og hvenær það verður.
Stundarðu nám eða vinnu
samhliða íþróttinni eða er þetta
full vinna? Ég vinn sem einka-
þjálfari í World Class Laugum og
er einnig með fjarþjálfun.
Hefurðu góðan stuðning frá
fjölskyldunni? Já, fjölskyldan mín
styður mig 100% í öllu sem ég geri
og er svo stolt af mér. Og kærast-
inn minn á heiðursverðlaun skilin
fyrir þolinmæðina í kringum þetta
allt saman.
Nú hlýtur að vera kostnaðar-
samt að taka þátt í mótum af
þessum toga, gengur vel að afla
styrkja? Já, þetta kostar allt sitt og
er í raun mjög dýrt sport. En ég er
komin með svo marga góða styrkt-
araðila núna að þetta er orðið mun
auðveldara. Fæ öll mín fæðubótar-
efni frá Core.is/QNT í Skeifunni, fæ
mat á Nings, fisk frá Hafinu fisk-
verslun, keppnislit fæ ég frá Jan
tana Íslandi, ljósakort frá Stjörnu-
sól, förðunarvörur frá Youngblo-
od.is. Aðrir styrktaraðilar eru svo
Choke.is, Bíla- og réttingaverk-
stæði Auðuns og Cintamani.
Hvaða ráð hefurðu handa
ungum konum sem hafa áhuga
á íþróttinni? Ég ráðlegg engum að
keppa strax nema þær hafi ágæt-
an íþróttagrunn að baki og gefi sér
svo að minnsta kosti ár í að búa
sig undir svona keppni. Þær gætu
gert það á styttri tíma ef þær hafa
verið að lyfta stíft áður, en þetta
er meira fyrir þær sem eru búnar
að vera í formi í einhvern tíma og
hoppa ekki út í þetta nema vita
hvað tekur við eftir keppni. Það er
líka mjög óhollt að rokka hratt upp
og niður með fituprósentuna. Þetta
getur allt verið skemmtilegt ef rétt
er farið að en einnig mjög erfitt og
þá sérstaklega andlega fyrir marga.
Og enginn ætti að fara út í þetta
nema með þjálfara.
Eitthvað að lokum? Það sem
ég hef verið að stimpla inn í mig
seinustu ár er að „believe“ – trúa
á sjálfa mig! Bættur lífsstíll – betri
líðan.
Framhald af síðu 7
Þetta er alls ekki fyrir alla, segir Aðalheiður.