Fréttablaðið - 08.06.2012, Side 46
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
Tónlistarhátíðin IsNord verður hald-
in í áttunda sinn í dag og á morgun.
Hátíðin hefst með tónleikum Gissur-
ar Páls Gissurarsonar tenórs og Árna
Heiðars Karlssonar píanóleikara í
Reykholtskirkju klukkan 20.30 í kvöld.
Þar flytja þeir Árni Heiðar og Gissur
Páll íslensk sönglög úr ýmsum áttum.
Á laugardag klukkan 16 verða tón-
leikar í Borgarneskirkju þar sem
Jónína Erna Arnardóttir og Morten
Fagerli flytja fjórhent píanóperlur frá
Noregi og Íslandi, þar á meðal norska
dansa eftir Grieg og fjórhenta útgáfu
af Brennið þið vitar eftir Pál Ísólfsson
sem sjaldan heyrist.
Jónína og Morten námu tónlist við
Grieg akademiet í Noregi fyrir fimm-
tán árum en hafa síðan komið fram á
ótal tónleikum en eru nú að spila fjór-
hent saman í fyrsta sinn.
Síðustu tónleikar hátíðarinnar eru
yfirleitt haldnir á sunnudeginum en
að þessu sinni verður brugðið út af
venjunni og þeir haldnir á sumarsól-
stöðum, fimmtudaginn 21. júní, en þá
mun karlakórinn Söngbræður syngja
í Álftanesi á Mýrum lög um sumar og
sól.
Nánari upplýsingar um hátíðina má
finna á heimasíðunni isnord.is.
IsNord hátíðin í áttunda sinn
ÁRNI HEIÐAR OG GISSUR PÁLL Flytja íslensk sönglög úr ýmsum áttum í
Reykholtskirkju í kvöld.
Örlagaborgin nefnist ný
bók eftir Einar Má Jóns-
son sagnfræðing. Í bókinni
er stiklað á stóru í „afreka-
sögu frjálshyggjunnar“ á
19. öld.
„[H]agfræðin er of alvarlegt
mál til að hagfræðingum einum
sé fyrir henni treystandi, sagn-
fræðingur ætti að fá að leggja
þar eitt lítið orð í belg,“ skrifar
Einar Már Jónsson, prófessor í
sagnfræði við Sorbonne-háskóla
í Frakklandi, í Örlagaborgina –
fyrri hluta verks sem hann kall-
ar brotabrot úr afrekasögu frjáls-
hyggjunnar. Bókin kom út í gær á
vegum Ormstungu og var útgáf-
unni fagnað í Bókabúð Máls og
menningar við Laugaveg síðdegis,
þar sem Einar sagði frá tildrögum
bókarinnar og las valda kafla.
„Þetta er athugun á uppruna
frjálshyggjunnar, kenningarinnar
og fyrsta tímabils hennar á fyrri
hluta 19. aldar,“ segir Einar um
Örlagaborgina. Hann hafði hugs-
að sér að skrifa um efnið frá því
að hann gaf út greinasafnið Bréf
til Maríu fyrir nokkrum árum,
þar sem hann tók á nokkrum
helstu álitamálum samtímans og
hjólaði meðal annars í hugmynda-
fræði frjálshyggjunnar.
„Ég var gagnrýndur og legið á
hálsi fyrir að ráðast á frjálshyggj-
una án þess að skilgreina hana
eða þekkja hana nógu vel. Ég hug-
leiddi að skrifa greinaflokk til að
svara því en svo hafði ég öðrum
hnöppum að hneppa og það varð
ekkert úr því.“
Við hrunið fannst Einari hins
vegar tilefni til að dusta rykið af
hugmyndinni og gera frjálshyggj-
unni skil.
„Ég ætlaði að fylgja upphaflegu
hugmyndinni um greinaflokk en
sá fljótt að efnið myndi vaxa fljótt
svo ég ákvað að skrifa sjálfstæða
bók.“
Örlagaborgin er sem fyrr segir
fyrri bókin af tveimur en í þeirri
seinni hyggst Einar Már beina
sjónum sínum að seinna tímabili
frjálshyggjunnar, upp úr 1970 og
fram að fjármálakreppunni 2008.
„Það tímabil er oftar en ekki
kennt við nýfrjálshyggju,“ segir
Einar Már. „En eins og ég kem inn
á í bókinni hefur kenningin ekki
breyst í meginatriðum frá því
hún kom fram hjá þessum klass-
ísku höfundum. Það er því rétt
hjá þeim sem segja að það sé ekki
til neitt sem heiti nýfrjálshyggja;
kenningin er sú sama en stendur
okkur aðeins nær í tíma.“
Einar Már dregur ekki dul á
það að hann tekur afstöðu til efn-
isins.
„Þetta er gagnrýnin athugun.
Ef frjálshyggjan er útfærð út
í æsar verður hrun, því ekkert
þjóðfélag stendur til lengri tíma
þegar það er leyst upp í öreindir
hagmenna, eða homo economicus,
sem eru í raun ekki þátttakendur í
samfélaginu heldur hugsa fyrst og
fremst um eigin hag og að græða
sem mest.“
Að mati Einars beið frjáls-
hyggjukenningin skipbrot í
hruninu en það þýði þó ekki að
tími hennar sé á enda runninn.
„Kenningin hrundi gjörsamlega
en frjálshyggjumennirnir eru
ekki af baki dottnir; þeir hurfu
ofan í holu um skeið en eru nú
smám saman að stíga fram aftur.
Ég vil gjarnan rita sögu frjáls-
hyggjunnar fram að hruni en að
því loknu fór af stað nýtt ferli og
það sér ekki enn fyrir endann á
því.“
bergsteinn@frettabladid.is
Örlagaborgin sem hrundi
ÞJÓÐMINJASAFN Sigurjón Pétursson og
Þóra Hrönn Njálsdóttir leiða gesti um
sýningar sínar á sunndag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hjónin og áhugaljósmyndararn-
ir Sigurjón Pétursson og Þóra
Hrönn Njálsdóttir leiða gesti um
ljósmyndasýningarnar Aðventa
á Fjöllum og Ferðalangar á Fjöll-
um, sem nú standa yfir í Þjóð-
minjasafni Íslands, sunnudaginn
10. júní klukkan 14.
Á sýningunni Aðventa á Fjöll-
um getur að líta svarthvítar ljós-
myndir Sigurjóns af landslaginu
á Fjöllum í vetrarbúningi. Saga
sæluhússins á Fjöllum, sem reist
var árið 1881, er efni sýningar-
innar Ferðalangar á Fjöllum.
Sigurjón og Þóra Hrönn hafa
ljósmyndað vítt og breitt um
Ísland sem og víða um heim,
til dæmis í Grænlandi, Alaska,
Bandaríkjum Norður-Ameríku,
Kína, víða um Evrópu, í Líbanon
og Namibíu.
Aðventa og
ferðalangar
Dagskráin er hluti Söguþings sem í ár er haldið í fjórða sinn. Saga Íslands hefur ætíð verið
samofin sögu Evrópu. Frá landnámi til okkar daga hafa samskipti Íslendinga við aðrar
Evrópuþjóðir verið mismikil en ætíð hafa þau þó verið mikilvæg. Á málþinginu mun
valinkunnt fræðafólk fjalla um sögu Íslands og Evrópu frá ólíkum sjónarhólum. Aðgangur
er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.
Dagskrá:
13:00-13:40 Ann Katherine Isaacs, University of Pisa:
Looking at Europe in Historical Perspective.
13:40-14:00 Helgi Þorláksson, Háskóla Íslands: The Europeanization of Iceland:
Iceland and the rest of Western-Europe, 1000-1700.
14:00-14:20 Anna Agnarsdóttir, Háskóla Íslands:
Iceland: An Isolated Outpost of Europe?
14:20-15:00 Umræður og kaffihlé.
15:00-15:20 Guðmundur Hálfdanarson, Háskóla Íslands:
Icelanders: Reluctant Europeans.
15:20-16:00 Alyson Bailes, Háskóla Íslands: Nordic States and European Integration:
The “Me” Region?
16:00-16:40 Anne Deighton, University of Oxford: The EU’s strategic crisis:
Temporary or fatal?
16:40-17:00 Umræður.
Að málþinginu standa Evrópustofa, Félag sögukennara á Íslandi, ReykjavíkurAkademían,
Sagnfræðingafélag Íslands, Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og Sögufélag.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Söguþingsins, www.akademia.is/soguthing.
Evrópa í sögu og samtíð
Sunnudaginn 10. júní verður opið
málþing í Hátíðarsal Háskóla Íslands,
„Evrópa í sögu og samtíð“.
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir,
listfræðingur og verkefnastjóri
fræðslu hjá Listasafni Reykja-
víkur, leiðir gesti um sýninguna
„Sjálfstætt fólk“ sem stendur nú
yfir í Hafnarhúsinu klukkan 15 á
sunnudag.
Sýningin sem haldin var í
tengslum við Listahátíð 2012
stendur yfir sumarmánuðina en
Hafnarhúsið er einn helsti vett-
vangur samstarfsverkefnisins
sem sýnt var á hinum ýmsu sýn-
ingarstöðum í Reykjavík. Verk-
efnið hverfist um samstarf í
samtímamyndlist undir sýning-
arstjórn listheimspekingsins og
rithöfundarins Jonatan Habib
Engqvist. Meðal þátttakenda eru
íslensk listamannateymi á borð
við Gjörningaklúbbinn, Jónu Hlíf
Halldórsdóttur og Hlyn Hallsson,
hópurinn að baki Kling & Bang
gallerís og Steingrímur Eyfjörð í
samvinnu við Ulriku Sparre (SE).
Leiðsögn um
Sjálfstætt fólk
KRISTÍN DAGMAR
Sýningin 10 mánuðir í Gallerí
Tukt í húsakynnum Hins húss-
ins verður opnuð á laugardaginn
klukkan 15.
Á sýningunni munu nemend-
ur sem lokið hafa fyrsta ári af
tveimur við Sjónlistadeild Mynd-
listaskólans í Reykjavík sýna ný
verk, en námið er undirbúning-
ur í fögum er snúa að myndlist
og hönnun. Deildin er tilrauna-
kenndur vettvangur í samþætt-
ingu listnáms og bóklegra faga,
og munu nemendur útskrifast að
námi loknu með stúdentspróf þar
sem bókleg fög eru kennd á for-
sendum myndlistar og hönnunar.
Sjónlistadeild var stofnuð vorið
2011 og er þetta fyrsta sýning
þessara nemenda.
Samsýning í
Gallerí Tukt
Guðrún Nielsen skúlptúrlista-
kona er listamaður júnímánaðar í
SÍM-húsinu í Hafnarstræti í júní.
Í tilefni af því verður sýning á
verkum Guðrúnar opnuð í húsinu
klukkan 15 á laugardag.
Á sýningunni eru ljósmyndir og
módel af verkum sem flest hafa
verið sett upp á erlendri grund
á árunum 1992 til 2012. Einnig
sýnir Guðrún hluta af nýju verki
sem kemur beint af sýningu
alþjóðlegra skúlptúrlistamanna í
Svíþjóð. Það er skúlptúr, vídeó og
hljóðverk, „Borrowed View 231“
sem tilheyrir Japönsku tehúsa-
seríunni frá 2005. Verkið saman-
stendur af tvö hundruð þrjátíu og
einum geometrískum skúlptúr,
jafnmörgum textuðum vatnslita-
teikningum og plexígleri.
Guðrún
Nielsen í SÍM
EINAR MÁR Tók þá sem gagnrýndu hann fyrir að ráðast á frjálshyggju í Bréfi til Maríu á orðinu og hefur nú skrifað fyrstu bók af
tveimur þar sem hann rekur sögu kenningarinnar með gagnrýnum augum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÁTTUNDA OG NÍUNDA SINFÓNÍA BEETHOVENS
verða fluttar í kvöld af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Móttettukór
Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hanne Lintu. Þar með er Beethoven-
hring Sinfóníunnar lokað.