Fréttablaðið - 08.06.2012, Qupperneq 48
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR32
Hljómsveitin Retro Stefson og Jón
Jónsson spila saman á Faktorý
á laugardagskvöld. Slegið verð-
ur til veislu í hverjum mánuði á
skemmtistaðnum þar sem Retro
Stefson býður mismunandi lista-
mönnum að spila með sér. Þema
þessa fyrsta kvölds er dásemdir
popptónlistarinnar og endalaus
gleði.
Retro Stefson er á fullu við upp-
tökur á nýrri plötu sem kemur út
á Menningarnótt, 18. ágúst, á milli
þess sem sveitin spilar á hinum
ýmsu tónlistarhátíðum í Evrópu.
Smáskífulagið Qween er nýkomið
út á vínil ásamt endurhljóðbland-
aðri útgáfu Hermigervils af lag-
inu. Jón Jónsson er að undirbúa
nýja plötu sem kemur út í haust og
verður vafalítið í miklu stuði.
Forsala á tónleikana er hafin á
Midi.is. Miðaverð er 1.500 kr. í for-
sölu og 2.000 kr. við dyrnar.
Popptónlist og gleði
RETRO STEFSON Retro Stefson og Jón Jónsson spila á Faktorý á laugardagskvöld.
Einn ástsælasti leikari þjóðar-
innar er myrtur á tökustað kvik-
myndar, fyrir augum alls tökuliðs-
ins en enginn veit eða skilur hvað
hefur gerst. Lögreglan er kölluð til
og við fyrstu sýn virðist leikarinn
hafa lifað fullkomlega flekklausu
lífi og ekki átt sökótt við nokk-
urn mann. Nánari rannsókn leiðir
svo auðvitað í ljós óhreint mjöl í
poka hans og inn í söguna dragast
barnaklámhringur, fyrrverandi
eiginkona og ýmis leyndarmál úr
fortíðinni. Sögusviðið er nútíminn,
en eins og vinsælt er í glæpasög-
um leiðir rannsóknin löggurnar á
vit fortíðarinnar, þar sem fiskar
sprikla undir hverjum steini.
Persónugalleríið er fjöl-
breytt. Í forgrunni er props-
ari kvikmyndarinnar, Alda
Ingþórsdóttir, ung kona með
fortíð sem ekki þolir nán-
ari skoðun, þótt ekki verði
séð að sú fortíð tengist morðinu á
nokkurn hátt. Lögguteymið inni-
heldur fjórar persónur, tvo karla
og tvær konur, sem öll hafa sína
djöfla að draga og eru vel dregn-
ar og sannfærandi persónur.
Fjöldi aukapersóna dregst inn í
rannsóknina og eru þær allar vel
skapaðar og eftirminnilegar, hver
á sinn hátt.
Flétta sögunnar er töluvert
flókin. Margir þræðir vefjast
saman og höfundur hefur fullt
vald á þeim vefnaði, skammtar
upplýsingar yfirleitt í hæfilegum
skömmtum þótt einstaka sinnum
bregðist henni
bogalistin og
upplýsi of mikið
of snemma.
Leikarinn er
fyrsta bók Sólveig-
ar Pálsdóttur og ber
þess nokkur merki.
Spennan er ekki
mikil þar sem nokkuð ljóst er um
miðja bók hver morðinginn er og
það eina sem er óljóst er ástæðan
fyrir morðinu. Fléttan er þó prýði-
leg og textinn ágætlega skrifaður,
fyrir utan samtölin sem sverja sig
í ætt íslenskra glæpasagna, eru
stirð og ótrúverðug. Helsti galli
bókarinnar er þó persónusköpun
prímus mótors sögunnar, propsar-
ans Öldu. Maður trúir ekki á þessa
persónu eitt augnablik og er þar
af leiðandi hjartanlega sama um
örlög hennar og ástæður fyrir
gerðum hennar. Lögguteymið er
hins vegar skemmtilega samsett,
en Guðgeir yfirmaður teymisins
er þó ansi langt frá því að vera
nokkur Erlendur, daufgerð pers-
óna sem virkar mun eldri en sagan
segir hann vera. Skemmtilegasta
persóna teymisins, fullkomn-
unarsinninn Særós, hefur hins
vegar alla burði til að verða ást-
sæl krimmalögga og vonandi fær
hún meira pláss í næstu bókum
Sólveigar. Því það er ljóst að hér
er kominn fram höfundur sem
hefur alla burði til að blanda sér
í glæpasagnaslaginn á íslenskum
metsölulistum í framtíðinni.
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Prýðilega ofin flétta og
fjölbreytt persónugallerí í ágætlega
skrifuðum krimma sem geldur fyrir
ótrúverðugleika aðalpersónunnar.
Enn af syndum feðranna
SÓLVEIG PÁLSDÓTTIR Heldur haganlega um marga þræði í
sinni fyrstu skáldsögu, að mati gagnrýnanda, en persónu-
sköpunin mætti vera sterkari. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bækur ★★★ ★★
Leikarinn
Sólveig Pálsdóttir
JPV
Föstudagur 08. júní 2012
➜ Sýningar
17.00 Olivier Manoury opnar sýningu
á vatnslitamyndum frá Íslandi í Þjóð-
menningarhúsinu. Hann, kona hans
Edda Erlendsdóttir píanóleikari og fleiri
landsþekktir tónlistarmenn munu leika
tónlist fyrir gesti. Enginn aðgangseyrir er
að sýningunni og verkin eru til sölu.
➜ Tónlist
21.00 Þingeyska hljómsveitin Ljótu
hálfvitarnir heldur tónleika í Klifi á
Ólafsvík. Nýtt lag þeirra, Ég ræ, verður á
efnisskrá tónleikanna.
21.00 Feðginin Erla Stefánsdóttir söng-
kona og Stefán S. Stefánsson saxófón-
leikari koma fram ásamt hljómsveit á
Café Rosenberg. Þau munu flytja Bítla-
lög í djössuðum útsetningum Stefáns.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Böddi Reynis, unnusta hans Jór-
unn Steinsson og hljómsveit leika lög af
sólóplötu Bödda, So Simple, á Hressó.
Aðgangur er ókeypis
22.00 Vintage Caravan ásamt Why Not
Jack spila á Græna Hattinum á Akureyri.
Miðaverð er kr. 1.500.
23.00 Ingvar Grétarsson og Tómas
Tómasson skemmta ásamt gestum
á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Hátíðir
10.00 The
Icelandic
Tattoo
Convention
verður haldin
á Bar 11 alla
helgina. Dag-
skrá verður í
gangi í allan
dag en klukk-
an 21 hefjast
tónleikar. Þar
spila hljómsveitirnar Sólstafir, Foreign
Monkeys og Endless Dark.
23.00 Hátíðin Kótelettan hefst á Sel-
fossi. Meðal þeirra sem fram koma eru
RetRoBot, Kiriyama family, Blár Ópal,
Geirmundur Valtýsson og Helga Möller.
Miðaverð á hátíðina er kr. 5.900.
➜ Leiklist
20.00 Einleikurinn Fastur er sýndur á
Norðurpólnum, Seltjarnarnesi. Sýningin
er án orða og hentar öllum frá 10 ára
aldri. Miðaverð er kr. 2.200 en kr. 1.500
fyrir nemendur.
➜ Fræðsla
13.00 Boðið verður upp á fræðslu-
göngu um Grasagarð Reykjavíkur alla
föstudaga í júní. Þáttaka er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Orðinn sósíalisti
Reynslan af stjórnmálum hefur gert borgarstjórann
Jón Gnarr að sósíalista.
Meðal annars efnis:
Hvar liggja áherslurnar?
Forsetaefnin svara spurningum Fréttablaðsins.
Hin árlega nútímatónlistarhátíð
Frum verður haldin á Kjarvals-
stöðum á sunnudag. Kammer-
hópurinn Adapter stendur að
Frum-hátíðinni í samvinnu við
Listasafn Reykjavíkur en mark-
miðið er að kynna meistaraverk
nútímatónbókmenntanna fyrir
tónlistarunnendum, verk sem
þegar hafa sett mark sitt á tón-
listarsöguna en eru þó sjaldheyrð
í tónleikahúsum Reykjavíkur.
Einleiksverk verða í öndvegi
á hátíðinni í ár. Kristjana Helga-
dóttir og Ingólfur Vilhjálmsson
leika verk fyrir alt- og bassa-
flautu og klarinett og bassaklari-
nett. Verkin eru afar fjölbreytt,
eftir níu tónskáld frá átta lönd-
um, og spanna helstu tónlistar-
stíla nútímatónlistar sem og
möguleika hljóðfæranna til hins
ýtrasta. Elsta stykkið er frá 1969
en það nýjasta, Quietly Breathing
eftir Heather Frasch, er spán-
nýtt og verður flutt á hátíðinni í
fyrsta sinn.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20 á sunnudagskvöld en húsið
verður opnað hálftíma fyrr.
Einleiksverk í
öndvegi á Frum
ADAPTER Kristjana Helgadóttir
og Ingólfur Vilhjálmsson, félagar í
Adapter, flytja níu einleiksverk eftir
átta nútímatónskáld á Frum á Kjarvals-
stöðum á sunnudag.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Save the Children á Íslandi