Fréttablaðið - 08.06.2012, Page 58
8. júní 2012 FÖSTUDAGUR42
sport@frettabladid.is
ÓÐINN BJÖRN ÞORSTEINSSON varð í sjötta sæti á demantamótinu á Bislett-
leikvanginum í Ósló í gær. Hann kastaði lengst 18,66 m en á best 20,22 m. Óðinn er nú
að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana í Lundúnum í sumar.
HANDBOLTI Rúnari Kárasyni, sem
á dögunum gekk til liðs við Gross-
wallstadt í efstu deild þýska hand-
boltans, líst vel á að spila í bláu og
hvítu á nýjan leik.
Rúnar segir fyrsta kost hafa
verið að spila áfram með Bergisc-
her HC og hafi verið lagt allt kapp
á að halda liðinu uppi. Það tókst þó
ekki. „Ég gat sagt upp samningn-
um ef við myndum falla sem var
alltaf möguleiki sem ég ætlaði að
nota,“ segir Rúnar og segir hjólin
hafa farið að snúast hratt eftir að
ljóst var að Bergischer félli.
„Það var fínt að klára þetta
áður en ég kom heim. Ég var
búinn að ákveða að ef þetta myndi
ekki ganga upp myndi ég fara til
„Grosso“. Það er gott skref fyrir
mig. Fornfrægur klúbbur sem
hefur stöðugt verið að skila af sér
ungum leikmönnum í betri lið,“
segir Rúnar en ekki spilli fyrir að
hafa félaga sinn Sverre Jakobsson
úr landsliðinu í herbúðum liðsins.
Rúnar, sem er nýorðinn 24 ára,
telur skrefið til Grosswallstadt
passlegt fyrir sig á þessum tíma-
punkti á ferli sínum.
„Hvorki of stórt né of lítið. Full-
komið í rauninni. Það er betra
fyrir mig að fá að spila mikið með
félagi í neðri hluta deildarinn-
ar heldur en að fara ofar og vera
mikið á bekknum,“ segir Rúnar
sem reiknar með samkeppni um
stöðu hægri skyttu.
„Þeir vilja ekki setja alla press-
una á 24 ára strák sem ég skil
mjög vel. Það er líka gott fyrir
mig. Ég hef fengið mjög lítið
aðhald í vetur hvað varðar sam-
keppni og hef í rauninni bara verið
tekinn út af ef ég hef verið léleg-
ur.“
Rúnar segist ekki vera kominn
með fiðring vegna Ólympíuleik-
anna í sumar. „Fyrir það fyrsta
veit ég ekki hvort ég fer með eða
ekki. Það er bara að taka hvern
dag með því hugarfari að hann sé
síðasti dagur fyrir niðurskurð,“
segir Rúnar og bætir við að hann
hafi aldrei verið í betra líkamlegu
formi. „Það væri algjör draumur
að fá að spila á Ólympíuleikum
með þessum snillingum hérna.“
Áður en að Ólympíuleikunum
kemur mætir landsliðið Hollend-
ingum í tveimur leikjum í undan-
keppni heimsmeistaramótsins sem
fram fer á Spáni í janúar. - ktd
Landsliðsmanninum Rúnari Kárasyni líst vel á skiptin til Grosswallstadt og ekki síður á litina í búningi liðsins:
Fullkomið skref á þessum tímapunkti
ÆTLAR AÐ NÝTA TÆKIFÆRIÐ BJÓÐIST
ÞAÐ Rúnar vonast til að verða í eld-
línunni með Íslandi gegn Hollendingum
í Laugardalshöll á sunnudagskvöldið.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
#BESTASÆTIÐ
BORGUNARMÖRKIN STRAX AÐ LEIK LOKNUM KL. 22.00
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT Í SÍMA 512 5100 EÐA Á STOD2.IS
BORGUNARBIKARINN Í BEINNI Á STÖÐ 2 SPORT
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
ÍA-KR Í KVÖLD KL. 19.45
SUND Eva Hannesdóttir, 24 ára sundkona úr
KR, verður einn fulltrúa Íslands á Ólympíu-
leikunum í Lundúnum í sumar. Þetta fékk hún
staðfest þegar FINA, Alþjóðasundsamband-
ið, sendi íslenska sundsambandinu boð um að
senda boðsundsveit í 4x100m fjórsundi kvenna
á leikana.
Óhætt er að segja að atburðarásin hafi verið
hröð hjá Evu sem byrjaði fyrst að hugsa um
Ólympíuleikana fyrir mánuði.
„Langflesta íþróttamenn dreymir um að
keppa á Ólympíuleikum og ég er ekki undan-
skilin,“ sagði Eva við Fréttablaðið í gær. „En
ég er búin að vera í skóla í Bandaríkjunum
síðan 2008 og hafði ekki keppt í sundmóti hér
á landi í þrjú ár þegar ég kom hingað í apríl.“
Missti áhugann á sundinu
Eva hefur verið að keppa í háskólasundinu í
Bandaríkjunum undanfarin fjögur ár og því
ekkert gefið eftir í íþróttinni. En hún var orðin
leið á sundinu þegar hún fór út á sínum tíma.
„Ég vildi athuga hvort ég hafði enn áhuga á
íþróttinni. Ég komst fljótt að því að svo væri
og breyttist mikið við það að komast í nýtt
umhverfi, fá nýjan þjálfara og kynnast nýju
fólki. Á þessum tíma var ég bara með hugann
við það sem ég var að gera úti og kom lítið heim
til að keppa. Ólympíuleikar voru aldrei inni í
myndinni fyrr en fyrir um mánuði,“ segir Eva
en góður árangur á Íslandsmeistaramótinu í
apríl og svo EM í Debrecen í maí hefur fleytt
henni þessa leið. Hún vann sér sess í boðsund-
ssveitinni með því að ná bestum tíma í 100m
skriðsundi á EM en alls tóku fjórar íslenskar
sundkonur þátt í greininni.
„Ég er nú að uppskera eftir allt það sem á
hefur gengið hjá mér síðustu fjögur ár og er ég
í skýjunum yfir því að fá að upplifa Ólympíu-
leika. Ég er ekki alveg búin að fatta þetta allt
saman,“ segir hún.
Eva hefur einnig náð svokölluðu OST-lág-
marki í 100 m skriðsundi (gamla B-lágmarkið)
en FINA mun tilkynna í júlí hvaða OST-sund-
menn fái boð um að keppa á Ólympíuleikunum.
„En mér sýnist eins og málin standa nú að ég
muni aðeins keppa í boðsundinu,“ segir Eva.
Fengu þriggja daga undirbúning
Ísland hefur aldrei áður átt boðsundsveit á
Ólympíuleikum enda fáar útvaldar sem fá að
keppa. Fyrir þessa leika var ákveðið að tólf
bestu sveitirnar á HM í fyrra fengju boð og svo
fjórar sveitir til viðbótar. Ísland fékk boð fyrir
góðan árangur á EM í Debrecen, þar sem liðið
var hársbreidd frá verðlaunum í greininni.
Eva segir að íslensku keppendurnir hafi
ekki byrjað að hugsa um boðsundið af fullri
alvöru fyrr en þremur dögum áður en keppt
var í greininni. Þá var EM þegar hafið í Ung-
verjalandi.
„Jacky [Pellerin landsliðsþjálfari] var búinn
að leggja þetta saman og sjá það út að þetta
var raunhæfur möguleiki. Hann sagði að
við þyrftum að synda á um 4:06 mínútum og
náðum við því í úrslitunum. Við þurftum svo
að bíða í nokkra daga eftir staðfestingunni frá
FINA en það var góð tilfinning að sjá tímann
á töflunni.“
Margir félagar Evu í sundlandsliðinu eru nú
að keppa í Mare Nostrum-mótaröðinni í Frakk-
landi og Spáni en sjálf er hún hér á landi. Hún
neitar því ekki að það hefði verið spennandi
að keppa úti til að gera aðra atlögu að aðal-
lágmarkinu í 100m skriðsundi. „Staðreyndin
var bara sú að ég átti ekki pening fyrir þess-
ari ferð, eins leiðinlegt og það er. En ég er samt
ánægð með að vera komin heim og geta byrjað
að búa mig undir leikana í sumar.”
eirikur@frettabladid.is
Var ekki í myndinni að fara á ÓL
Sundkonan Eva Hannesardóttir byrjaði fyrst að hugsa um þann möguleika að keppa á Ólympíuleikunum í
Lundúnum fyrir um mánuði síðan en fyrr í vikunni fékk hún staðfest að hún verði með á leikunum í ár.
FER TIL LUNDÚNA Eva Hannesardóttir verður í fyrstu
íslensku boðsundsveitinni sem keppir á Ólympíuleik-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SUND Síðari keppnisdagur á Mare
Nostrum-mótinu í Canet-en-rous-
sillion í Frakklandi fór fram í
gær en þar er flest okkar besta
sundfólk að keppa og freistar
þess að ná OQT-lágmarki fyrir
Ólympíuleikana í Lundúnum í
sumar en því má líkja við gömlu
A-lágmörkin.
Enginn náði lágmarkinu í gær
en Jakob Jóhann Sveinsson varð
þriðji í 100 m bringusundi er
hann synti á 1:02,19 mínútum –
sama tíma og á EM í síðasta mán-
uði. Hann er einni og hálfri sek-
úndu frá lágmarkinu.
Hrafnhildur Lúthersdóttir er
um sekúndu frá lágmarkinu í
100 m bringusundi en mjög lítið
vantar upp á til að ná lágmarkinu
í 200 m bringusundi.
Hún og sjö aðrir íslenskir sund-
menn fá tækifæri til að ná lág-
markinu í sínum greinum þegar
mótaröðin færir sig yfir til Móna-
kó um helgina en það verður loka-
tilraun íslensks sundfólks til að
komast til Lundúna.
Tveir sundmenn hafa náð
OQT-lágmörkum, þær Eygló Ósk
Gústafsdóttir og Sarah Blake
Bateman. Fjölmargir hafa náð
OST-lágmarki (gamla B-lágmark-
inu) en Alþjóðasundsambandið,
FINA, mun gefa út í júlí hverjir
úr þeim hópi fá boð um að taka
þátt í leikunum í sumar. - esá
Mare Nostrum-mótaröðin:
Enginn náði
lágmarki í gær
JAKOB JÓHANN Á enn eftir að ná
svokölluðu OQT-lágmarki fyrir Ólympíu-
leikana í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bolt á góðum tíma í Osló
Usain Bolt sigraði í 100 m hlaupi
karla á demantamótinu á Bislett-leik-
vanginum í Osló í gær. Hann hljóp
á 9,79 sekúndum sem er næstbesti
tími ársins. Heimsmet Bolt í greininni
er 9,58 sekúndur og orðið þriggja
ára gamalt. Asafa Powell varð annar í
gær á 9,85 sekúndum en báðir koma
frá Jamaíku. Bolt stefnir á að bæta
heimsmetið í greinni á Ólympíuleik-
unum í Lundúnum í sumar.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR