Fréttablaðið - 08.06.2012, Side 59

Fréttablaðið - 08.06.2012, Side 59
FÖSTUDAGUR 8. júní 2012 43 OPINBER STYRKTARAÐILIwww.coke.is Fagnaðu með © 2 0 12 T he C o ca -C o la C o m p an y. “ C o ca -C o la ”, a nd t he d es ig n o f th e “C o ca -C o la C o nt o ur B o tt le ” ar e re g is te re d t ra d em ar ks o f T he C o ca -C o la C o m p an y. T he U E FA E U R O 2 0 12 ™ o ffi ci al lo g o is p ro te ct ed b y tr ad em ar ks , c o p yr ig ht a nd /o r d es ig n. A ll ri g ht s re se rv ed . FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyjólfs- son valdi í gær 22 manna hóp fyrir leikinn gegn Ungverjalandi í und- ankeppni EM á Laugardalsvelli annan laugardag. Þrír nýliðar eru í hópnum. Katrín Ásbjörnsdóttir úr Þór/KA, Soffía Arnþrúður Gunn- arsdóttir Stjörnunni og hinn 17 ára framherji Vals, Elín Metta Jensen. Sigurður Ragnar segist hafa getað valið alla sína sterkustu leik- menn í leikinn gegn Ungverja- landi. Þó setur hann fyrirvara við Fanndísi Friðriksdóttur, Hallberu Guðnýju Gísladóttur og markvörð- inn Guðbjörgu Gunnarsdóttur sem glíma við smávægileg meiðsli. Sandra Sigurðardóttir, markvörð- ur Stjörnunnar, er klár á hliðarlín- unni skyldi Guðbjörg þurfa frá að hverfa. Sigurður valdi 22 leikmenn en ljóst er að hópurinn sem flýgur til Búlgaríu að loknum landsleiknum gegn Ungverjalandi verður ekki svo stór. „Fjórir leikmenn okkar (Fanndís, Hólmfríður, Sara Björk og Þórunn Helga) eru á gulu spjaldi. Ef þær fá spjald í fyrri leiknum eru þær í banni í seinni leiknum svo það er gott að hafa margar stelpur til taks,“ sagði Sigurður Ragnar. - ktd Landsliðið valið fyrir tvo leiki í undankeppni EM: Þrír nýliðar í hópnum Landsliðshópurinn Markverðir: Guðbjörg Gunnarsdóttir Djurgården Þóra Björg Helgadóttir LdB Malmö Varnarmenn: Hallbera Guðný Gísladóttir Piteå IF Katrín Jónsdóttir - fyrirliði Djurgården Mist Edvardsdóttir Valur Rakel Hönnudóttir Breiðablik Sif Atladóttir Kristianstads DFF Þórunn Helga Jónsdóttir Avaldsnes Anna María Baldursdótir Stjarnan Miðjumenn: Dagný Brynjarsdóttir Valur Dóra María Lárusdóttir Valur Edda Garðarsdóttir KIF Örebro Katrín Ómarsdóttir Kristianstads DFF Sara Björk Gunnarsdóttir LdB Malmö Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir Stjarnan Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir Stjarnan Sóknarmenn: Fanndís Friðriksdóttir Breiðablik Hólmfríður Magnúsdóttir Avaldsnes Margrét Lára Viðarsdóttir án liðs Kristín Ýr Bjarnadóttir Avaldsnes Elín Metta Jensen Valur Katrín Ásbjörnsdóttir Þór/KA MÆTA AFTUR Í DALINN Ísland gerði markalaust jafntefli við Belgíu í síðasta heimaleik Íslands í undankeppni EM. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Borgunarbikar karla Stjarnan - Grótta 4-1 1-0 Garðar Jóhannesson (36.), 2-0 Darri Konráðs- son (67.), 3-0 Kennie Chopart (71.), 4-0 Mads Laudrup (82.), 4-1 Jónmundur Grétarsson (90.). Selfoss - Njarðvík 2-1 0-1 Magnús Örn Þórsson (33.), 1-1 Jon Andre Royrane (56.), 2-1 Viðar Örn Kjartansson (86.). Þróttur V. - Afturelding 1-3 0-1 John Henry Andrews, víti (7.), 0-2 Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban (68.), 1-2 Reynir Þór Valsson (71.), 1-3 Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban (84.). KFS - KB 0-1 0-1 Sigmar Egill Baldursson (90.). Upplýsingar um markaskorara frá Úrslit.net. NÆSTU LEIKIR Þór - Valur í kvöld kl. 19.15 FH - Fylkir í kvöld kl. 19.15 Breiðablik - BÍ/Bol. í kvöld kl. 19.15 ÍA - KR í kvöld kl. 20.00 Víkingur Ó. - ÍBV þriðjudag kl. 19.15 ÚRSLIT FÓTBOLTI Fjórir leikir fóru fram í 32-liða úrslitum Borgunarbikars- ins í gær en tvö úrvalsdeildarlið komust þá áfram. Selfoss hafði betur gegn Njarðvík, 2-1, þar sem Viðar Örn Kjartansson skor- aði sigurmark heimamanna rétt fyrir leikslok. 2. deildarlið Njarð- víkur komst yfir í leiknum. Stjarnan lenti ekki í teljandi vandræðum með Gróttu sem leikur í 2. deildinni, rétt eins og Afturelding. Mosfellingar gerðu góða ferð í Vogana og unnu þar lið Þróttar, 3-1. KB mætti svo KFS í Vest- mannaeyjum en bæði lið leika í 3. deildinni. Sigmar Egill Baldurs- son tryggði fyrrnefnda liðinu dramatískan sigur með marki á lokamínútu leiksins. Fjórir leikir fara fram í kvöld og verður þá öllum nema einum leik í 32-liða úrslitum lokið. Dreg- ið verður í 16-liða úrslit á mánu- daginn. - esá Borgunarbikarinn: Selfoss naum- lega áfram VIÐAR ÖRN Tryggði Selfyssingum sæti í 16-liða úrslitum bikarsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.