Fréttablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 2
15. júní 2012 FÖSTUDAGUR2
UMHVERFISMÁL Smávaxið fiðrildi,
birkikemba, hefur náð undraverðri
útbreiðslu á stuttum tíma. Ummerki
þessa nýbúa má víða merkja í görð-
um á höfuðborgarsvæðinu og víðar
en skýrasta merkið um heimsókn
þess eru sölnuð birkilauf sem víða
eru mjög greinileg.
Erling Ólafsson, dýrafræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands,
vekur athygli á mikilli útbreiðslu
birkikembu á pödduvef NÍ í gær,
en það er veglegur upplýsingabanki
um skordýr hvers konar sem hann á
veg og vanda af.
Í viðtali við Fréttablaðið segir
Erling að fjölgun fiðrildisins í
vor veki athygli. „Þetta er eigin-
lega eins og þegar kínversk rak-
etta springur. Í vor fór fólk í fyrsta
skipti að hringja og spyrja hvers
kyns væri enda hægt að sjá stóra
hópa af fiðrildinu, til dæmis á
veggjum húsa. Þau eru mjög smá-
vaxin og eitt og eitt vekur enga
athygli. En þegar þau skipta tugum,
eins og í vor, fer þetta ekkert á milli
mála.“
Erling segir að birkikembu hafi
fyrst orðið vart í Hveragerði árið
2005. Nú í vor var ljóst orðið að
birkikembunni hafði vaxið mjög
ásmegin og fannst víða í Reykjavík
og suður í Hafnarfjörð. Auk þess
var hún mætt til leiks í trjárækt
Skógræktar ríkisins að Mógilsá í
Kollafirði og í görðum á Selfossi.
„Ummerkin á trjánum, brún-
ir uppblásnir laufbelgir, eru ein-
kennandi fyrir birkikembu. Hér er
sennilega mætt til leiks tegund sem
á eftir að fjölga sér hratt á komandi
árum og dreifast út víðar um garða
og trjáræktir, jafnvel í náttúrulega
birkiskóga,“ segir Erling.
Halldór Sverrisson, plöntusjúk-
dómafræðingur hjá Skógrækt ríkis-
ins, segir erfitt að tímasetja aðgerð-
ir gegn fiðrildinu, enda ráðist það
af vorveðrinu. Í ár hafi snemma
orðið vart við birkikembu, enda
veður víða milt. Hins vegar sé ljóst
að lítið verður að gert þetta árið.
Hann telur að hefðbundin alhliða
skordýraeitur komi helst til álita til
að uppræta fiðrildið í görðum, en er
ekki trúaður á sápur og önnur vist-
vænni úrræði. svavar@frettabladid.is
DANMÖRK Stjórnarflokkarnir í
Danmörku fá herfilega útreið í
nýrri skoðanakönnun og mikil
óánægja er með
störf forsætis-
ráðherrans
Helle Thorning-
Schmidt.
Í könnuninni,
sem DR segir
frá, eru vinstri
flokkarnir með
42,3 prósent
fylgi en hægri
flokkarnir eru
með 57,7 prósent.
Thorning hefur ekki átt sjö dag-
ana sæla síðan hún tók við emb-
ættinu í september en nú segjast
68 prósent aðspurðra ósáttir við
frammistöðu hennar í starfi.
Sérfræðingur DR segir að Jafn-
aðarmannaflokkur Thorning hafi
aldrei nokkru sinni komið svo illa
út í könnunum. - þj
Skoðanakönnun í Danmörku:
Stjórnin tapar
miklu fylgi
HELLE
THORNING-SMITH
11
-0
56
8
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
ms.is
...hvert er
þitt eftirlæti?
...endilega fáið ykkur
Smámál frá MS hafa notið vinsælda hjá
stórum og smáum í fjölda ára. Þau fást
í tveimur gómsætum bragðtegundum,
karamellu og súkkulaði.
Benedikt, verðið þið í
kastljósinu núna?
„Nei. Okkur verður kastað fram í
haust.“
Benedikt Valsson stjórnar vefþættunum
Hraðfréttir sem verða hluti af Kastljósi
RÚV næsta vetur.
Agnarsmár vágestur
veldur miklum skaða
Birkikemba, örsmátt fiðrildi, breiðist hratt út eftir landnám 2005. Sölnuð birki-
lauf í görðum og í trjárækt eru til vitnis um skaðsemi þess. Dýrafræðingur telur
að skordýrið muni fjölga sér hratt næstu árin trjáræktarfólki til lítillar gleði.
KOMIÐ OG FARIÐ Svona er víða um að
litast í görðum fólks. MYND/ERLING ÓLAFSSON
BIRKIKEMBA Fiðrildið er aðeins sex
millimetrar á lengd. MYND/ERLING ÓLAFSSON
Á pödduvefnum NÍ útskýrir Erling að fiðrildin sjálf séu á ferð á vorin en
þau skríða úr púpum í fyrri hluta apríl og hverfa með öllu fyrir miðjan maí.
Á þeim tíma verpa þau á brum birkis og eggin klekjast þegar tré taka að
laufgast. Lirfurnar smjúga þá inn í laufblöðin, koma sér þar fyrir og éta inn-
vefi þeirra. Eftir því sem lirfurnar dafna taka blöðin að sölna og á endanum
standa einungis eftir ysta lag efra- og neðraborðs blaðs sem blæs út eins og
brúnn belgur. Fullvaxnar lirfur skríða út úr belgnum og hverfa niður í svörð
þar sem þær púpa sig og bíða næsta vors á því þroskastigi.
Vorið er tími birkikembunnar
EGYPTALAND, AP Æðsti stjórn-
lagadómstóllinn í Egyptalandi
úrskurðaði í gær að þingkosn-
ingar í landinu hefðu verið ólög-
legar og leysa ætti upp neðri
deild þingsins og kjósa á ný. Þá
úrskurðaði dómstóllinn líka að
Ahmad Shafiq, sem var síðasti
forsætisráðherrann í stjórn Hosni
Mubaraks, mætti vera í forseta-
framboði.
Úrskurður dómstólsins eru
mikið áfall fyrir Múslímska
bræðralagið, sem hefur tæpan
helming þingsæta. Mohammed
el-Beltagy, háttsettur þingmað-
ur bræðralagsins, sagði niður-
stöðuna jafnast á við valdarán.
Dómararnir voru allir skipaðir
á tímum Mubaraks og þingmenn
saka þá um að ganga erinda hers-
ins og reyna að koma honum aftur
til valda. Herinn hefur lofað að
láta völd sín af hendi til nýs for-
seta í júlí, en engin stjórnarskrá
er í gildi og nú er ekkert þing til
þess að semja hana. Því er ólík-
legt að nýr forseti hafi skýrt vald-
svið þegar hann tekur við emb-
ætti.
Seinni umferð forsetakosninga
í landinu fer fram um helgina, en
þingið hafði í síðasta mánuði sett
lög sem banna mönnum sem voru
háttsettir á tímum Mubaraks að
bjóða sig fram í embætti. Hæsti-
réttur dæmdi lögin ólögleg. Því
verður kosið á milli Shafiq og
Mohammed Morsi, frambjóðanda
Múslímska bræðralagsins. - þeb
Forsetaframbjóðandi má bjóða sig fram en þingkosningarnar þarf að endurtaka:
Kosningar dæmdar ólöglegar
BYLTINGIN Bræðralag múslíma komst
til valda eftir fimmtán daga mót-
mælin gegn Mubarak í fyrra. Nú sakar
flokkurinn dómstól um valdarán.
NORDICPHOTOS/AFP
ELDSVOÐI Konu á þrítugsaldri er
haldið sofandi í öndunarvél eftir
að hún stökk út um glugga á annari
hæð brennandi húss í Borgarnesi
í fyrrinótt. Auk konunnar tókst
tveimur öðrum að flýja úr risi
hússins sem varð alelda á skammri
stundu. Þeim varð ekki meint af.
Húsið, sem var byggt skömmu
eftir aldamótin 1900, er gjörónýtt
eftir eldsvoðann. Að sögn Bjarna
Kristins Þorsteinssonar var húsið
timburklætt og einangrað með
heyi og torfi. Eldsupptök eru til
rannsóknar. - bþh
Gamalt timburhús alelda:
Haldið sofandi
eftir eldsvoða
ÓNÝTT Húsið við Borgarbraut í Borgar-
nesi er ónýtt eftir brunann í fyrrinótt.
MYND/STÖÐ 2
VIÐSKIPTI Sú upphæð sem ríkið fékk við
einkavæðingu bankanna um síðustu alda-
mót var sanngjörn sé litið til markaðs-
verðs evrópskra banka og banka á hinum
Norðurlöndunum. Þetta er mat Bankasýslu
ríkisins og kemur fram í nýrri ársskýrslu
stofnunarinnar.
Í skýrslunni er þó tekið fram að enginn
af bönkunum hafi verið skráður á hluta-
bréfamarkað og því erfitt að meta hvert
sanngjarnt verð fyrir bankana hafi verið.
Í skýrslunni er rakið hvernig Samson-
hópurinn, undir forystu Björgólfs Guð-
mundssonar, keypti tæplega 46 prósent í
Landsbankanum á um 11,2 milljarða króna
árið 2002. Það verð er í nokkru samræmi
við verð í nágrannaríkjunum, ögn
lægra en á hinum Norðurlöndunum
en hærra en annars staðar í Evrópu.
Um svipað leyti keypti S-hópur-
inn svokallaði, sem í voru meðal
annarra Ólafur Ólafsson og Finnur
Ingólfsson, um 46 prósent í Bún-
aðarbankanum. Endanlegt kaup-
verð varð 11,2 milljarðar króna
miðað við ríkisreikning, segir í
skýrslu Bankasýslunnar. Það verð
er í ágætu samræmi við verð
banka bæði á Norður-
löndunum og
annars staðar í
Evrópu. - bj
Verðið sem fékkst við einkavæðingu bankanna var sanngjarnt segir Bankasýslan:
Upphæðin í samræmi við verð banka í Evrópu
BJÖRGÓLFUR
GUÐMUNDSSON
ÓLAFUR ÓLAFSSON FINNUR INGÓLFSSON
SVÍÞJÓÐ Öryggi í Ringhals kjarn-
orkuverinu í Svíþjóð er ábóta-
vant verði jarðskjálftar eða flóð.
Þetta eru niðurstöður rannsókn-
ar á vegum Evrópusambands-
ins, ESB, sem gerð var í kjölfar
kjarnorkuslyssins í Fukushima.
Alls voru aðstæður í 143 kjarn-
orkuverum kannaðar.
Geislavarnastofnunin í Sví-
þjóð segir að hægt sé að tryggja
öryggið í Ringhals á meðan
kjarnorkuverið er í rekstri, að
því er segir á vef Göteborgs-
Posten.
Grænfriðungar segja að könn-
unin á vegum ESB hafi verið
ófullnægjandi. Samtökin vilja
láta loka Ringhals á meðan
örygginu er komið í lag. -ibs
Könnun Evrópusambandsins:
Öryggi ábóta-
vant í sænsku
kjarnorkuveri
ALÞINGI Frumvarp Oddnýjar G.
Harðardóttur, fjármálaráðherra,
um heimild til fjármálaráðherra
til að fjármagna göng undir
Vaðlaheiði var samþykkt með 29
atkvæðum gegn 13 á Alþingi í
gær. Fimm þingmenn sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna þar af þrír
stjórnarþingmenn.
Fjármálaráðherra hefur nú
heimild til að undirrita lánssamn-
ing milli ríkisins og Vaðlaheiðar-
ganga hf. að andvirði 8,7 millj-
arða króna.
Frumvarpið var fyrst á dag-
skrá þingsins í lok mars.
- bþh
Vaðlaheiðargöng samþykkt:
Alþingi veitir
heimild til láns
SPURNING DAGSINS