Fréttablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 6
15. júní 2012 FÖSTUDAGUR6 EFNAHAGSMÁL Bættar samgöngur hafa þau áhrif að fasteignamat á sumum stöðum á landsbyggðinni hefur hækkað mikið milli ára. Þetta segir sviðsstjóri hjá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga. Nýtt fasteignamat fyrir næsta ár var kynnt af Þjóðskrá Íslands í gær. Fasteignamatið hækkar um 7,4 prósent milli ára. Heildarmat fasteigna hér á landi er nú 4.715 milljarðar króna, en þar af eru 3.105 milljarðar íbúðareignir. Af þeim hækkar matið á rúmlega níu- tíu prósentum en lækkar á tæplega tíu prósentum eigna. Fasteignamatið hefur hækkað mest í Vestmannaeyjum milli ára, eða um nítján prósent. Í Bolungar- vík hækkar það um rúm sextán prósent og í Fjallabyggð og Dal- víkurbyggð um tæp þrettán og ellefu prósent. Mat á fasteignum hækkaði minnst á Reykjanesi, um 0,6 prósent. Gunnlaugur Júlíusson, sviðs- stjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, segir fasteignamat gefa ákveðna sýn á hvað sé að ger- ast hjá sveitarfélögunum. Hækkun í bæjarfélögunum sem nefnd eru að framan sé til dæmis hægt að tengja við betri samgöngur, þótt fasteignamatið segi ekki alla sög- una. „Það er nýbúið að tengja Bol- ungarvík við Ísafjarðarbæ með jarðgöngum svo áhrifin eru farin að sýna sig úti í Bolungarvík.“ Sama megi segja um Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. „Að maður tali nú ekki um Vestmannaeyjar, þar sem fasteignamat hækkar um nær 20 prósent sem er alveg örugglega afleiðingin af betri samgöngum.“ Á höfuðborgarsvæðinu í heild hækkar fasteignamatið um 8,3 prósent. Ef íbúðarhúsnæði er aðeins skoðað verður hækkunin 9,5 prósent að meðaltali, en hækk- unin er misjafnlega mikil eftir hverfum. Á Suðurnesjum verður matið 2,7 prósentum hærra en á þessu ári. Á Vesturlandi er hækkunin 4,3 pró- sent og á Vestfjörðum 6,3 prósent. Á Norðurlandi vestra og eystra er hækkunin um sjö prósent. Á Aust- urlandi er hækkunin 5,5 prósent og á Suðurlandi 5,9 prósent. Fasteignaviðskipti hafa verið að glæðast síðustu misseri eftir sam- dráttarskeið. Í fyrra var 6.598 kaupsamningum þinglýst, en þeir voru rúmlega 4.700 árið áður. Fram kom í máli Inga Þórs Finns- sonar verkfræðings á mats- og hagsviði Þjóðskrár að það sem af er árinu í ár hefði kaupsamningum svo fjölgað um fimmtung miðað við sama tímabil í fyrra. thorunn@frettabladid.is Bættar samgöngur hækka fasteignamat Hærra fasteignamat á sumum stöðum á landsbyggðinni er hægt að tengja við betri samgöngur þar. Fasteignamat fyrir næsta ár var kynnt í gær og hækkar matið yfir landið um 7,4 prósent. Mesta hækkunin er í Vestmannaeyjum. EKTA ÍSLENSKT SÓLSKIN 200 150 100 50 0 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 Fjöldi fíkniefnabrota 2005-2011 ■ Flutningur fíkniefna milli landa ■ Framleiðsla fíkniefna HEIMILD: LÖGREGLAN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Fj öl di b ro ta Höfuðborgarsvæðið 8,3% Suðurnes 2,7% Vesturland 4,3% Vestfirðir 6,3% Norðurland vestra 7,0% Norðurland eystra 7,1% Austurland 5,5% Suðurland 5,9% Mesta hækkunin á höfuðborgarsvæðinu Meðalbreyting á fasteignamati er mest á höfuðborgarsvæðinu eða 8,3 prósent. Hækkunin er hins vegar minnst á Suðurnesjum, 2,7 prósent. ÁSTRALÍA, AP Eftir 32ja ára þrauta- göngu var léttir hinnar áströlsku Lindy Chamberlain-Creighton mikill í gær þegar hún var endan- lega hreinsuð af ásökunum um að hafa valdið dauða dóttur sinnar árið 1980. Azaria Chamb erlain var níu mánaða gömul þegar hún hvarf úr tjaldi fjölskyld- unnar, en foreldrar hennar héldu því fram að dingó-villihundur hefði numið barnið á brott. Málið veltist um dómskerfið á næstu árum og var Lindy meðal annars dæmd sek um morð árið 1982 og sat í fangelsi í rúm þrjú ár áður en hún var hreinsuð af ásökunum. Síðan hefur málið verið óupp- gert, en nú hefur dánarvottorði stúlkunnar verið breytt og sak- leysi foreldranna staðfest. - þj Dularfullt barnshvarf leyst: Dingóar námu Azariu á brott LINDY CHAMBERLA- IN-CREIGHTON LÖGREGLUMÁL Framleiðsla fíkni- efna hérlendis hefur aukist til muna síðustu ár en fram til ársins 2008 voru skráð brot vegna inn- flutnings miklu fleiri en þau sem sneru að framleiðslu. Eftir bankahrunið 2008 varð viðsúningur og ræktun kannabis hérlendis tók mikinn kipp. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2007 voru skráð í kring- um tuttugu brot sem tengdust framleiðslu kannabis á höfuð- borgarsvæðinu. Þremur árum síðar voru sambærileg mál yfir 180 talsins. Á sama tíma marg- faldaðist fjöldi kannabisplantna sem lögregla gerði upptækan. Árið 2007 tók lögreglan um þús- und kannabisplöntur en árið 2009 voru teknar meira en tíu þúsund plöntur. Málum af þessum toga hefur aðeins fækkað síðan þá og í fyrra tók lögreglan um sex þús- und plöntur. Nokkur breyting varð einnig á magni þeirra fíkniefna sem lög- reglan lagði hald á eftir hrun. Magn e-taflna jókst mikið, fór úr nokkrum þúsundum taflna í hátt í 50 þúsund töflur. Á sama tíma minnkaði magn hass og kókaíns sem lögreglan lagði hald á. - ktg Framleiðsla fíkniefna hefur aukist gríðarlega á Íslandi: Kannabisframleiðsla tók kipp JAFNRÉTTISMÁL Þóra Victoria, aðstoðarflokksstjóri hjá Skrúð- garðyrkjudeild borgarinnar, hefur sent opinbert kvörtunarbréf til yfirmanna Reykjavíkurborgar þar sem hún sakar Bjarna Brynj- ólfsson, upplýsingafulltrúa Reykja- víkurborgar, um aðdróttanir og svívirðingar í sinn garð. Þóra Victoria segir í bréfi sem hún birti á Facebook í gær að hún sé transmanneskja og að Bjarni hafi ekki virt það þegar hann hringdi í hana á miðvikudag. Hann hafi ekki trúað að hann væri að tala við hana og hafi meðal annars spurt „Hvers son ert þú Þóra?“ „Ég er særð, móðguð og reið og mér finnst alvarlega að mér vegið,“ segir Þóra í bréfinu. „Aldrei á ævinni hef ég þurft að upplifa aðrar eins aðdróttanir og móðgan- ir.“ Bjarni segir að um misskiln- ing hafi verið að ræða. „Mér var ekki sagt að hún væri svona trans- manneskja. Ég fékk karlmanns- rödd í símann og út af þessu skap- aðist talsverður misskilningur,“ segir Bjarni. „Ég hringdi í hana í hádeginu í dag [í gær] og bað hana afsökunar á þessu,“ segir Bjarni og bætir við að þau hafi í kjölfar- ið átt gott spjall. „Málið var að ég hringdi í hana því ég var að fara að skrifa frétt um blómaskreytingar í Reykjavík.“ Bjarna hafi verið bent á að tala við Þóru því hún ynni með hópi við gróðursetningu. „Ég hélt bara að það væri einhver að djóka í mér,“ segir Bjarni að lokum. - bþh Þóra Victoria sakaði Bjarna Brynjólfsson upplýsingafulltrúa um aðdróttanir: Sagðist særð, móðguð og reið KJÖRKASSINN Það er nýbúið að tengja Bolungarvík við Ísafjarðarbæ svo áhrifin eru farin að sýna sig... GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON SVIÐSTJÓRI Skiptir þú við eitt olíufélag um- fram annað? JÁ 77,6% NEI 22,4% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hræðist þú hunda eða hefur þú ofnæmi fyrir þeim? Segðu skoðun þína á visir.is Ég hélt að það væri einhver að djóka í mér. BJARNI BRYNJÓLFSSON UPPLÝSINGAFULLTRÚI NOREGUR Dauð leðurblaka sem hjón fundu í kofa sínum í Finn- mörk í Norður-Noregi fyrir skömmu hefur sennilega sett heimsmet rétt áður en hún drapst. Aldrei áður hefur leðurblaka fundist svo norðarlega. Kofinn er í Bekkarfjord rétt hjá nyrsta odda Noregs og um leið Evrópu. Um er að ræða svokallaða trítil- blöku, sem hefur að minnsta kosti einu sinni sést hér á landi, sam- kvæmt Vísindavefnum. Hjónin sendu dýrið til sérfræð- ings hjá náttúrufræðistofnun Noregs, Jeroen var der Kooij, sem sagði við Aftenposten að fundur- inn væri einstakur. „Þetta er pott- þétt met!“ - þj Smávaxin leðurblaka: Setti heimsmet fyrir andlátið NORÐURFARI Þessi litla leðurblaka fannst dauð í kofa í Finnmörku á nyrsta odda Noregs. Aldrei fyrr hefur leður- blaka fundist svo norðanlega. SVÍÞJÓÐ Tveir sænskir karlmenn hafa verið handteknir í Svíþjóð að beiðni bandarísku fíkniefna- lögreglunnar vegna gruns um þátttöku í ólöglegum vopnahring. Mennirnir höfðu afhent dönskum leyniþjónustumanni, sem villti á sér heimildir, þungavopn í fyrra- vor. Greitt var fyrir með kókaíni. Að sögn Helle Sörensen sak- sóknara tekur alþjóðleg sam- vinna lögreglu tíma og þess vegna dróst að handtaka Svíana. Svíi, sem situr í fangelsi í Bandaríkjunum, er talinn höfuð- paurinn. Hann mun hafa útveg- að Farc-skæruliðum í Kólumbíu vopn í skiptum fyrir kókaín. - ibs Handtökur í Svíþjóð: Fengu kókaín í stað vopna DÝRALÍF Hænan Gulla á Ósbakka í Skeiða og Gnúpverjahreppi fóstrar nú þrjá stokkandarunga eftir að hrafnar réðust á andamömmu fyrir skemmstu. Frá þessu er greint í Bændablaðinu. Öndin sem hrafnarnir réðust á var aflífuð en fjögur egg voru flutt að Ósbakka þar sem hænan lá á þeim í tólf daga. Einn af andar- ungunum fjórum sem komu í heiminn drapst strax. Gulla fóstrar andarungana allan sólarhringinn en hættir sér ekki út á andapollinn þegar ungarnir fá sér sundsprett enda ósynd. - bþh Hæna sat á andareggjum: Hæna fóstrar andarunga ELDSVOÐI Eldur kom upp í plast- bátnum Guðrúnu EA 58 í Hrísey á Eyjafirði í gær. Slökkvilið var kallað til og réði niðurlögum elds- ins á skömmum tíma. Talið er að kviknað hafi í út frá rafknúnum viftumótor fyrir loft- ræstingu sem brann yfir. Slökkviliði Akureyrar var gert viðvart en ekki var ástæða til að senda það út í eyjuna því þar er slökkvilið sem var fullfært um að leysa verkefnið með þeim góða eldvarnarbúnaði sem til staðar er í eyjunni. - bþh Slökkviliðið í Hrísey kallað út: Eldur í plastbát í Hrísey
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.