Fréttablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 16
16 15. júní 2012 FÖSTUDAGUR
Í umræðunni um þá ákvörðun bæjarráðs Kópavogs að afnema rúmlega þriggja
ára frystingu launa allra bæjarfulltrúa og
tengja þau aftur við þingfarar-
kaup, sem samþykkt var af
fulltrúum allra flokka, hefur því
verið haldið á lofti að heildar-
laun bæjarstjóra Kópavogs hafi
um leið verið hækkuð um 23%.
Þetta er fjarri sanni.
Hið rétta er að grunnlaun
bæjarstjóra Kópavogs hækk-
uðu um 3,5% þann 1. mars sl.,
samkvæmt ákvörðun kjararáðs,
eins og laun allra þeirra sem
undir kjararáð heyra svo sem
laun þingmanna, ráðherra og
embættismanna.
Í janúar 2009 voru laun
bæjar fulltrúa lækkuð um 10%
en jafnframt voru þau aftengd
þingfararkaupi. Með því vildu
bæjarfulltrúar taka á sig kjaraskerðingu
eins og aðrir í samfélaginu. Síðan þá hafa
launin staðið óhreyfð, með tíu prósenta
lækkuninni, á meðan aðrir sambærilegir
hópar, eins og til dæmis þingmenn, hafa
fengið sínar lækkanir til baka og vel það í
þremur áföngum, nú síðast 1. mars sl.
Eftir ákvörðun bæjarráðs nú í apríl
eru laun bæjarfulltrúa aftur 27% af
þingfarar kaupi. Það þýðir í krónum talið
að laun fyrir setu í bæjarstjórn
urðu frá og með 1. mars 164.752
kr. á mánuði en voru 133.928 kr.
Fyrr á þessu ári höfðu gengið
til baka launalækkanir stjórn-
enda bæjarins. Þetta þýðir með
öðrum orðum að laun bæjarfull-
trúa í Kópavogi voru fyrst til að
lækka eftir hrun og síðust til að
ganga til baka eftir hrun.
Grunnlaun bæjarstjóra Kópa-
vogs voru 1. júní 1.127.821 kr. ef
með er talinn bifreiðastyrkur
en þau hækkuðu um 3,5%, eins
og áður sagði í mars. Þess má
geta að grunnlaun bæjarstjóra
Kópavogs voru 1. janúar 2009
1.080.774 kr.
Auk bæjarstjóralauna fær
bæjarstjóri Kópavogs, samkvæmt venju,
greitt fyrir setu í nefndum og ráðum, og
núna fyrir bæjarráð, bæjarstjórn og hafn-
arstjórn. Eru heildarlaunin þegar það er
talið með því 1.496.988 krónur. Samtals
hafa því heildarlaunin hækkað um 4,4 % á
u.þ.b. þremur árum eða frá 1. janúar 2009.
Grunnlaun
bæjarstjóra
Kópavogs
voru 1. júní
1.127.821 kr.
ef með er tal-
inn bifreiða-
styrkur …
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Frábær orf fyrir
heimilið, sumarhúsið og
atvinnumanninn
Sláttuorf
ÞÓRHF
Krókhálsi 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 461-1070
www.thor.is
Lúxusinn í Kópavogi
Stjórnmálafólk segir oft eitt og annað
sem hljómar þokkalega en lítur mun
verr út á prenti. Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri í Kópavogi, gerði sig sekan
um slíkt á dögunum þegar hann lét DV
hafa eftir sér að nýtilkomin fjórð-
ungshækkun launa bæjarfulltrúa sé
„leiðrétting, ekki hækkun“ og í sömu
grein segir hann að mikil „fita“
hafi verið á grunnþjónustu
bæjarins og „alls konar
lúxus“ hafi verið skorinn
niður.
Þetta á varla eftir að
hljóma fallega í eyrum starfs-
fólks bæjarins enda er ólíklegt
að í þeim hópi hafi allir
fengið „leiðréttingu“ á sínum kjörum
frá hruni.
Lúxus um land allt
Raunar er þetta enn stærra mál
því eins og glöggir lesendur muna,
fengu þingmenn, ráðherrar og
embættismenn líka leiðréttingu á
sínum launum í jólagjöf frá kjararáði.
Frá ársbyrjun hefur BSRB beðið
eftir svörum frá fjármálaráðu-
neyti vegna krafna um að
opinberir starfsmenn fái
sína leiðréttingu. Engin
formleg svör hafa borist.
Ætli það sé ekki enn
einn lúxusinn?
Álag, ágangur og ágirnd
Þór Saari opnaði á fyrirtaks punkt
á þingi í gær þar sem hann sagði
álag vegna ágangs ferðamanna yfir
sumartímann vera allt of mikið. Það er
rétt hjá þingmanninum. Aðdráttarafl
Íslands felst að miklu leyti í ósnortinni
náttúru og friðsemd, og ef það er fyrir
borð borið getur fljótt fjarað undan
ferðamennskuævintýrinu. Ofuráhersla
á fjölda án þess að tryggja að innviðir
landsins þoli áganginn ber vott um
skammsýni og í versta falli græðgi.
Gullna reglan er að maður á ekki
að troða meiru á diskinn en
maður fær torgað.
thorgils@frettabladid.is
Laun bæjarstjóra hækkuðu um 3,5%
Kjaramál
Ármann Kr.
Ólafsson
bæjarstjóri
Kópavogs
K
ína vill fá áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu, sam-
starfsvettvangi ríkjanna átta við heimskautið. Þetta er
liður í langtímaáætlun Kínverja um að láta meira til
sín taka á norðurslóðum og nýta möguleikana sem geta
opnazt þegar loftslag hlýnar og ísinn hopar, meðal annars
í samgöngum, viðskiptum og vinnslu olíu, gass og steinefna.
Aðildarríki Norðurskautsráðsins eiga öll mikið undir viðskiptum
við Kína og hafa almennt tekið málaleitaninni heldur vel. Það eru
hins vegar kínversk stjórnvöld, sem sjálf hafa sett stórt strik í reikn-
inginn með því að loka nánast alveg á diplómatísk samskipti við
eitt aðildarríkjanna, Noreg. Ástæðan er sú að norska Nóbelsnefnd-
in ákvað að veita kínverska andófsmanninum og mannréttinda-
frömuðinum Liu Xiaobo friðarverðlaun Nóbels árð 2010, þrátt fyrir
hótanir Kínastjórnar.
Þetta geta kínversk stjórnvöld
ekki með nokkru móti þolað.
Ferðir embættismanna og við-
skiptasendinefnda til Noregs hafa
verið afboðaðar, fjöldamörgum
Norðmönnum neitað um vega-
bréfsáritun til Kína og kínversk-
um borgurum ekki leyft að ferðast
til Noregs. Fréttablaðið sagði frá
því í fyrradag að fella varð niður ljóðaþing Kínversk-íslenzka menn-
ingarsjóðins, sem átti að halda í Kirkenes í Noregi í sumar, af því
að kínversku skáldin fengu ekki fararleyfi.
Á sama tíma hefur Kínastjórn nuggað sér alveg sérlega vinsam-
lega utan í sum nágrannaríki Noregs, til að mynda Svíþjóð og Ísland
sem Wen Jiabao forsætisráðherra heimsótti í vor.
Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, hefur lýst yfir að
við þessar aðstæður geti Kína ekki fengið áheyrnaraðild að Norður-
skautsráðinu. Vilji Kínastjórn taka þátt í samstarfinu hljóti hún að
verða að hafa virkt samtal við öll aðildarríki ráðsins. Støre bendir
réttilega á að samskiptaleysið sé „ekki okkar val, heldur þeirra“.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fór í kringum málið eins
og köttur í kringum heitan graut þegar Fréttablaðið spurði hann
hvort Ísland tæki undir þessa afstöðu Norðmanna. Svarið, sem birt-
ist í Fréttablaðinu í gær, var á þá leið að Ísland styddi áheyrnaraðild
Kína að Norðurskautsráðinu og reyndi jafnframt að beita sér fyrir
bættum samskiptum Kína og Noregs.
Hér er ástæða til að tala skýrar. Ísland á vissulega að hafa góð
samskipti við Kína og rækta viðskiptasamband sitt við þetta volduga
land. Við eigum hins vegar sízt af öllu að reyna að notfæra okkur
að Kína frysti samskipti við eitt af okkar nánustu vinaríkjum en
reyni að sleikja okkur upp í staðinn. Við eigum sömuleiðis að segja
alveg tæpitungulaust að við fordæmum mannréttindabrotin í Kína,
styðjum málstað andófsmanna á borð við Liu og andmælum því að
kínversk stjórnvöld refsi þeim sem ekki vildu láta undan hótunum
þeirra í aðdraganda þess að friðarverðlaunin voru veitt.
Ef kínversk stjórnvöld hafa áhuga á formlegu samstarfi við vest-
ræn lýðræðisríki sem virða mannréttindi verða þau líka að skilja og
virða hvernig lýðræði og mannréttindi virka. Annars á Kína ekkert
erindi í þetta samstarf.
Á Kína að fá aukaaðild að Norðurskautsráðinu?
Tölum tæpitungu-
laust við Kína
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN